Vikan - 06.08.1992, Blaðsíða 2
Gunnur Magnúsdóttir er önnur í röðinni í
keppninni um titilinn forsíðustúlka árs-
ins. Hér segir hún svolítíðfrá sjálfri sér.
8 BÁLTASAR KORyÁKUR
Hann fékk frábæra dóma fyrir leik sinn f
Þjóðleikhúsinu síðastliðinn vetur. Nú fer
hann með aðalhlutverkið á hvíta tjaldinu
í bíómyndinni Veggfóðri.
Anna S. Bjömsdóttir var ( Danmörku á
dögunum og heimsótti þar gagnmerka
konu sem náð hefur undraverðum ár-
angri með framleiðslu náttúrulegra
krema og smyrsla, sem eyða meðal
annars vörtum.
Jóna Rúna svarar ungum pilti sem kom-
ist hefur í kynni við sórkennilegar, dul-
rænar sálfarir.
Margrét Pála Ólafsdótfir er leikskóla-
stjóri í Hafnarfirði. Starfsaðferðir hennar
og kenningar um kynskiptan leikskóla
hafa vakið mikla athygli innanlands sem
utan.
LiNDÁOG
11LES KÓBERYSON ■
Blaðamaður Vikunnar spjallar við þau
Lindu Pótursdóttur og unnusta hennar,
hinn breska Les Robertson fyrirsætu,
sem hélt námskeið hér á landi fyrir
skömmu.
Hann heitir fullu nafni Guðmundur
Magnússon og hefur ferðast um heima
og geima, ýmist sem sjómaður, farþegi
eða fararstjóri. Ellý Vilhjálms átti við
hann skemmtilegt viðtal.
Sumarskólinn á Akureyri er skemmtileg
nýjung í listnámi barna og unglinga en
forsprakki framtaksins er Órn Ingi mynd-
listarmaöur,
Sigtryggur svarar ungum manni sem
segir frá misheppnuðum sambúðum sín-
um. Er honum kannski ætlað að búa
einn?
Benedikt Hákon eða Benni, eins og
hann er oftast kallaður, er fjölfatlaður 11
ára strákur sem stundaö hefur nám í
Æfingaskóla Kennaraháskólans. Hér
segir frá feröalagi sem hann fór í ásamt
móður sinni, Dóru S. Bjamason, og
fóstra til Bandarfkjanna, Nýja Sjálands
og Ástralíu. Þetta er fyrri hluti skemmti-
legrar feröasögu.
Helgi Rúnar Óskarsson er vel með á
nótunum og hefur grafið ýmislegt merki-
legt upp um það sem er að gerast í
þjóðlífinu hér og nú.
Tiskuþátturinn að þessu sinni er helgað-
ur svörtu sem nú er að ryðja sér til rúms
svo um munar.
Malta er staður sem tiltölulega fáir (s-
lendingar hafa komið til. Þeir sem til
þekkja fullyrða að eyjan sú sé Paradís á
jörð, þrungin sögu, menningu og
skemmtilegu mannlffi.
Fróðleiksmolar Vikunnar um það nýjasta
í helmí kvikmyndanna.