Vikan - 06.08.1992, Blaðsíða 31
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
Kæri Stjáni
Þú ert ekki einn um þetta
vandamál sem þú lýsir annars
mjög vel. Það er í raun mjög
algengt að ég fái til mín á stof-
una menn í svipuðum aðstæð-
um. Reyndar konur líka.
AÐ STANDA SIG
Það er greinilegt að þú hefur
mikla þörf fyrir að standa þig í
þeim tilgangi að öðrum líki vel
við þig. Sjálfstraust þitt byggist
greinilega á því að gera vel,
hugsa um aðra og gera það
sem þú getur til að öðrum líði
vel. Þetta gerir það að verkum
að þú hefur sérhæft þig í því
að vita hvað öðrum líður vel
með. í upphafi sambands er
þetta spennandi fyrir konuna
og henni finnst mikil ást fólgin í
þessu. í rauninni er þó aðeins
um umhyggju að ræða.
ÞRÓUN SAMBANDSINS
í upphafi sambands, þegar
kvaðir eru litlar og þið eruð
bara að kynnast, gengur þetta
I augun á konunni. Henni
finnst þú hugsa mikið um hana
og það gerir hana mikilvæga í
þínum augum. Þegar frá líöur
breytist þetta. Þar kemur
margt til. Þú ert alltaf að hugsa
um hana og standa þig fyrir
hana. Það fer hún að upplifa
þannig að þú sért háður henni,
jafnvel sem uppáþrengjandi.
Þú gerir allt fyrir hana, reynir
að vera fullkominn en gerir
engar kröfur á móti svo að hún
upplifir ekki að hún geti gert
neitt fyrir þig, sé óþörf. Þrátt
fyrir að þér finnist þú vera að
sýna henni hversu mikilvæg
hún sé fyrir þig upplifir hún
þveröfugt að hún sé ekki mikil-
væg. Um leið gerist það að
hún fer smám saman að upp-
götva að hún stjórnar þér
gersamlega. Það sem hún vill
er lög fyrir þér. Þú munt ekki
vinna gegn henni. Þannig veit
hún hundrað prósent hvar hún
hefur þig. Þar með verður þú
meira og meira óspennandi f
hennar augum. Líf ykkar verð-
ur einhæft, litlar eða engar
spennandi uppákomur eins og
í upphafi og henni finnst þú
hafa svikið sig miðað við það
hvernig þú kynntir þig fyrir
henni í upphafi. Þú ert svo
upptekinn af því að láta henni
og fjölskyidunni líða vel að þú
gleymir að lifa lífinu. Þú gleym-
ir sjálfum þér og gleymir að sjá
til þess að þér líði vel. Þannig
verður þú enn meira óspenn-
andi. Þú finnur að henni líður
ekki vel með ástandið og
gengur enn lengra í því að
koma til móts við hana og víta-
hringur hefur skapast. Hún á-
sakar þig og þú verður sár og
finnst hún óréttlát.
HVAÐ ER ÁST?
Einhvers staðar í uppvexti
þínum hefur þú ruglast á hug-
tökunum ást og umhyggja.
Umhyggju sýnir þú þeim sem
þér finnst að á henni þurfi að
halda. Hana sýnir þú skilyrð-
islaust og ætlast ekki til neins í
staðinn. Ást er hins vegar
tvíbent. Ást felur I sér löngun
til að gefa en hún felur líka sér
kröfur um það að makinn veiti
manni það sem maður vill fá
frá honum. Ef ást er án slíkra
krafna verður hún umhyggja
og undirgefni og þar með ó-
spennandi fyrir makann.
Þar sem ást er sama og um-
hyggja í þínum augum leitar
þú að maka sem þarfnast um-
hyggju. Þú leitar ekki að maka
sem getur veitt þér það sem
þú vilt fá. Þú vonast hins vegar
til þess að fá það. Ef makinn
þarfnast umhyggju er hann
ekki mjög vel í stakk búinn til
að veita svo að þú verður að
öllum líkindum fyrir vonbrigð-
um. Hugsanlega gerir öll þín
umhyggja makann sterkari
með tímanum og þá hafið þið
einfaldlega vaxið hvort frá
öðru. Hún þarf ekki lengur á
umhyggju þinni að halda.
ERTU ÓHÆFUR í
SAMBÚÐ?
Ef þú hugsar um sjálfan þig,
leitar aö maka sem getur veitt
þér eitthvað, lætur opið í Ijós
hvaö þú vilt í stað þess aö
vonast, þá verður þú vel hæfur
í sambúð.
Þú ættir að slaka svolítið á I
kvennamálum. Gefa þér góð-
an tíma til að læra aftur að lifa
lífinu. Átta þig á því hvað það
er sem þú vilt fá út úr lífinu og
frá maka þínum og þar með
átta þig á því hvers konar
maka þú vilt eiga. Síðan getur
þú leitað að þeim maka sem
uppfyllir það og látið aðrar
konur vera. Konan á svo að
finna það hvort þú upþfyllir
hennar væntingar. Það er ekki
þitt vandamál.
Að öllum líkindum ertu
ágætur eins og þú ert, þú þarft
ekki að vinna fyrir því að vera
elskaður. Konunni getur líkaö
vel eða illa það sem þú gerir
en það ert þú sjálfur sem hún
elskar, ekki það sem þú gerir.
Hugsanlega ættir þú að leita
þér aðstoðar, t.d. sálfræðings.
Gangi þér vel
Sigtryggur
Jiársnyrtistofan
Xlipphnsid sf.
BlLDSHÖFDA 18-112 REVKJAVlK
® 672044
hArskerameistahar
KARÓLlNA WALDERHAUG
SIGRÚN R. SKÚLADÓTTIR
REYKJAVÍKURVEGl 64 ■ HAFNARFIRÐI ■ SÍMI 652620 ■ HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem
fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
HÁRCREIÐSLUSTOFAN GRESIKA
Raudarárstig 21-29, 2. hæö
Sími22430
HÁRSNYRTISTOFAN
QRAMDAVEQI47 0 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Veitum
10% afslatt
viö afhendingu
þessa korts!
Strípur i öllum litum — hárlitur —
permancnt fyrir allar hárgcrðir.
Úrvals hársnyrtivörur.
Opið á laugardögum.
Hrafnhildur Konráðsdottii hárgreidslumeistari
Þurídur flildur Halldórsdóttir hársnyrtir
MKARA- & HÁRqRE/ÐSLÚfSTDFA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVlK
I
16 TBL. 1992 VIKAN 31