Vikan - 06.08.1992, Blaðsíða 55
► Malta er kletta-
eyja og því eru þar
ekkl margar sand-
strendur, en helst er
mælt meö Mellieha.
► Helstu musterin á
Möltu eru um 1000
árum eldri en pýra-
mídarnir i Giga. Mynd-
in sýnir Hagar Qim
musterið.
► Inngangur gömlu
höfuðborgarinnar
Mdina.
► Móðir kennir dóttur
sinni handbragðið
sem móðir hennar
kenndi henni og ...
•4 Malta er um margt
forvitnileg og þar er
margt sem gleður
ferðamanninn, - eins
og fagurt veður, forn
menning og sérstakar
byggingar.
Þaö sem gerir Möltu forvitnilega í aug-
um margra er stórbrotin saga eyj-
unnar. Legu sinnar vegna (Malta er
96 km suður af Sikiley og 290 km
norður af norðurströnd Afríku) hef-
ur Malta í gegnum aldirnar verið mjög mikil-
væg bæði hernaðarlega og viðskiptalega séö.
Þar hafa því margvíslegir menningarstraumar
mæst og skilið eftir spor í sögu eyjunnar. Fyrir
þá sem áhuga hafa á sögu er Malta því óum-
deilanlega staður sem verður að sjá og kynnast
af eigin raun. Ekki skaðar heldur að veðráttan
er með eindæmum góð og ættu þeir sem
sækja í sól og hita að finna nóg af slíku á
Möltu.
EITT ÞÉTTBÝLASTA LAND í HEIMI
Malta samanstendur af þremur eyjum, Möltu,
Gozo og Comino sem samanlagt eru 316 fer-
kílómetrar að stærð. íbúafjöldi er um 330
þúsund og er Malta því eitt þéttbýlasta land í
heimi. Möltubúar eiga sitt eigið tungumál sem
er skylt arabísku en áhrifa frá ítölsku og
frönsku gætir einnig í málinu, þó í minna mæli
sé. Enska er annað tungumál eyjarskeggja og
jafnt ungir sem aldnir skipta á milli þessara
tveggja tungumála án þess að hika. Malta er
klettaeyja og einkennist landslagið af hæðum
og dölum en engin fjöll eða ár er þar að finna.
Byggingarlist er afar sérstæð og ættu áhuga-
menn um slíkt að finna margt forvitnilegt að
skoða því þar sem annars staðar gætir marg-
víslegra áhrifa frá ólíkum menningarheimum.
STUn SÖGUÁGRIP
Yfirleitt er sögu Möltu skipt í tvö megintímabil.
Nýsteinöld, frá 4000 f.Kr. til 1800 f.Kr., er fyrra
tímabilið en það seinna, frá 1530 til 1789, er
kennt við riddara reglu heilags Jóhannesar. Á
milli þessara tveggja tímabila réðu margar
þjóðir eynni, svo sem Rómverjar, Föníkumenn
og Arabar svo einhverjar séu nefndar.
16. TBL. 1992 VIKAN 55