Vikan - 06.08.1992, Blaðsíða 48
<
co
É=
Þ=
O
o
co
O
QQ
CO
<
<
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
ÆVINTÝRI VERULEIKANS
TTTTTTfTTTTTTTTTTTTTTTTTT
ÞANNIG
Guö, mig langar svo aö
tala um kynferöislegt
áreiti en veit ekki al-
veg hvort þaö er í mínum
verkahring af því aö ég er ekki
sérfraeöingur. Ég hef bara orö-
ið fyrir því tvisvar sinnum á
ævinni og misst atvinnu vegna
þess aö ég var ekki þannig.
Já, það var svarið sem ég gaf
þegar ég var klipin af yfirmanni
mínum, ung kona á fjölmenn-
um vinnustaö. Ég er ekki
þannig, varö mér á aö segja
viö þessar aðstæður og hef
alltaf veriö undur ánægö meö
þetta svar mitt. En þá var eng-
in umræöa um þessa hluti í
gangi og ekkert gert i slíkum
málum, yfirleitt. En núna? Er
eítthvað gert í því á vinnustöð-
um á íslandi í dag? Er konan
ekki að biöja um þvíumlíkt ef
hún er lífsglöð og ástfangin af
lífinu og leyfir öörum aö sjá
þaö. Klæðir sig í glaða liti og
frjálslegan stíl, finnst gaman.
Þaö er oft mikil vinna á bak viö
glaðlegt viömót, eða eins og
sagt hefur veriö; þaö þarf mik-
inn kraft og vilja til aö vera
hamingjusamur vegna þess
aö maður veldur sinni eigin
hamingju.
Þaö er annars skrýtiö aö
sumir menn reyna aö hrifsa til
sín fegurðina eins og blóm
sem þeir vilja slíta en kær-
leikurinn er víös fjarri því að
eðli hans er aö gefa, ekki
hrifsa. Konur eru fullfærar um
aö koma skilaboðum til manna
um hvort þær vilji vera þeim
eitthvað og menn ættu aö bíöa
eftir þessum skilaboöum áöur
en þeir vaða út í blómabeöiö.
Því aö konur eru sannarlega
blómabeð í þessu lífi. Ef maö-
ur elskar konu eöa kona elskar
mann má viökomandi gefa af
sér og sýna væntumþykju en
það er allt annar og betri hlutur
en aö hrifsa til sín þaö sem
ekki er fúslega veitt.
Og þegar atvinnumál tengj-
ast slíkum atvikum er mikill
vandi á höndum, sérstaklega
hjá þeim sem verður fyrir
áreitinu. Hvaö á viðkomandi
aö gera? Þegja og skipta um
vinnustað? skyldi hann fá góð
meömæli frá yfirmanninum
sem klípur? Er óhætt aö
treysta því? Veröa menn ekki
pirraðir yfir því aö konur eru
ekki þannig, yfir því aö konur
gera mannamun og elska ekki
alla jafnt? Ég bara spyr? Jæja,
jæja, þaö má alténd skrifa
skáldsögu þar sem allt er látið
flakka. Maöur breytir bara um
nöfn á persónunum og hrærir
duglega í pottinum svo að allir
geti ekki jafn auöveldlega séð
hver er hvað. Svo getur maður
flutt út í einhverja eyju og lifaö
einangraöur, sáttur við sinn
Guö, eða flutt úr landi, fundiö
sér land þar sem menn viröa
konur, menn sem segja
fallega: „Ef þetta er gott fyrir
þig er ég ánægöur."
Hvernig kynnuð þið við þaö,
stúlkur mínar?
TÍMASETNING
í fyllingu tímans
gerast hlutir
ekki mínútu fyrr
ekki mínútu síðar.
Ég þakka Guði fyrir
mistök mín
og sorgir.
Biðtiminn er á enda.
í fyllingu tímans
byrjar lífið.
„Þessi ágæta ætt yðar minnir
mig á kartöflugras."
Það sló þögn og undrun á
gestina en gesturinn bætti við
til skýringar: „Mér virðist nefni-
lega að það besta af henni sé
neðanjarðar."
Maðurinn gortaði ekki meira
af ætt sinni það kvöldið.
Það var við réttarhöld í afskekktri
sveit. Lögfræöingur, sem haföi
þar málflutning, sneri sér að tveim
öldungum og sagöi í hæönistón:
- Ég hef heyrt aö þiö séuö hraö-
lygnir hér í sveit.
- Þaö er nokkuð til í því, svaraði
annar gamlinginn um hæi, - en
sá er munurinn á okkur og yöur
aö við tökum enga borgun fyrir.
„Allt fær sá sem bíður,“ muldr-
aði maður við sjálfan sig á veit-
ingahúsi, - „en hann fær það
kalt.“
- Hvaðan kemur þessi mikli
fróðleiksþorsti hjá syni þínum?
- Fróðleikurinn kemur frá mér
en þorstinn frá föður hans.
Ungur maöur kom eitt sinn inn í
stórverslun sem haföi alls konar
kvenfatnaö til sölu, sneri sér að
fallegri afgreiöslustúlku og kvaöst
þurfa aö kaupa hanska handa
unnustunni, en ekki vita hvaða
númer hún notaði. Eftir nokkra
umhugsun sagöi hann við stúlk-
una:
„Má ég halda i höndina á
yöur?“
Afgreiðslustúlkan leyföi honum
að halda um stund í hönd sér og
svo sagöi hann:
„Mér finnst þetta vera rétt
stærö. Ég ætla að fá eina hanska
af sömu stærð og þér notið.“
Stúlkan pakkaði inn hönskun-
um og sagöi svo:
„Var það nokkuð fleira?"
„Þaö getur verið,“ sagöi piltur-
inn brosandi. „Þegar ég fer aö
hugsa um þaö held ég að kærast-
an mín gæti notað nýjan brjósta-
haldara."
LAUSN SÍÐUSTU GÁTU
Lausn á siðustu krossgátu
+ + + + + + + + + + + + + E + G + 0
+ + + + + + + B Ö R N + 0 G + A L L
+ + + + + + + A L E I N + 0 F L 0 F
+ + + + + + + G I N S E N G 0 L G A
+ + + + + + + A + A T Y F I R + A R
+ + + + + + +1 L I T I Ð + S E F R +
+ Þ R E M I L L + A + + E K L A + 0
Þ J Ó F A N A + K + E R R A D R A F
+ Ó Ð F L U G A A R N A + + R A K T
E Ð A + D + + F R U N S U + A S K A
+ H + B A S L + N N + S N E R T U R
F A K A + T + E I N D A G I + + R +
+ T A L S 1 M I + I R + S A M T + V
S 1 L D + F I M A + A R + F E T T A
E Ð L I L E G U R + G U M A Ð + A R
+ A + N A L + R 1 S + M A R + K U L
+ R A N N S A K A + M U N + F Ö G A
+ D L + S I Ð A + F I R N + A L + +
+ E L D A + F L Æ R Ð + S Y N D I R
+ G A U M + E K K I L S + L A + N A
F I R R U + R E I Ð I N G I + A + F
+ N + G R I Ð + + + R Ö A + P i L S
Þ U S A + N I B B A + A M 0 R + 0 K
+ M E N G U N + P U L S A T 0 R F A
+ + F A G N A Ð + R 0 T N A + A T U
Þ U M B A L D A L E G U R 1 + S L I T
VIKAN 48 16. TBL. 1992