Vikan


Vikan - 06.08.1992, Blaðsíða 4

Vikan - 06.08.1992, Blaðsíða 4
6. ÁGÚST 1992 16. TBL. 54. ÁRG. VERÐ KR. 388 f áskrift kostar VIKAN kr. 310 eintakið ef greitt er með gíró en kr. 272 ef greitt er með VISA, EURO eða SAMKORTI. Áskriftargjaldið er innheimt fjórum sinnum á ári, sex blöð í senn. Athygli skal vakin á því að greiða má áskriftina með EURO, VISA eða SAMKORTI og er það raunar æskilegasti greiðslumátinn. Tekið ér á móti áskriftarbeiðnum I síma 91-813122. Útgefandi: Samútgáfan Korpus hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þórarinn Jón Magnússon Ritstjórnarfulltrúi: Hjalti Jón Sveinsson Framkvæmdastjóri: Jóhann Sveinsson Markaðsstjóri: Helgi Agnarsson Innheimtu- og dreifingarstjóri: Sigurður Fossan Þorleifsson Framleiðslustjóri: Sigurður Bjarnason Sölustjóri: Pétur Steinn Guðmundsson Auglýsingastjóri: Helga Benediktsdóttir Aðsetur: Ármúli 20-22, 108 Reykjavík Sími: 813122 Útlitsteikning: Þórarinn Jón Magnússon Hildur Inga Björnsdóttir Guðmundur Ragnar Steingrímsson Setning, umbrot, litgreiningar og filmuskeyting: , Samútgáfan Korpus hf. Prentun og bókband: Oddi hf. Höfundar efnis í þessu tölublaði: Jónas Jónasson Þórarinn Jón Magnússon Helga Möller Ellý Vilhjálmsdótlir Anna S. Björnsdóttir Hjalti Jón Sveinsson Jóna Rúna Kvaran Þórdís Bachmann Sigtryggur Jónsson Ólafur Þórðarson Jóhann Guðni Reynisson Guðjón Baldvinsson Gísli Ólafsson Helgi Rúnar Óskarsson Esther Finnbogadóttir Guöný Þ. Magnúsdóttir Christof Wehmeier Myndir i þessu tölublaði: Bragi Þ. Jósefsson Kristján Maach Guðný Þ. Magnúsdóttir Anna S. Björnsdóttir Þórarinn Jón Magnússon Magnús Hjörleifsson Binni o.m.fl. Forsíöumyndin: Gunnur Magnúsdóttir lcelandic Models. Nýkjörin „fyrirsæta Suðurnesja 1992“ Ljósm.: Bragi Þ. Jósefsson. Föröun: Kristín Stefánsdóttir með No Name Cosmetics. Sumir eru í svo miklum önnum aö lifa líf- inu að þeir taka ekkert eftir því sem þeir upplifa. Ekki þó gamli maðurinn sem ég mætti á Laugaveginum og var sólskin. Hann kom á móti mér hægum skrefum, þess manns sem er löngu hættur að flýta sér með erindi, hann horfði fast á þá sem á móti komu, einkum ef það var ungt fólk. Stundum sneri hann sér við og horfði á eftir því og stóð þá alveg kyrr um stund. Ég nam staöar og beið hans. JÓNAS JÓNASSON SKRIFAR sem gera mósaíkmynd veruleikans. Svo gruna ég þetta unga fólk um að skapa allan þennan eril úr engu, það býr til hávaða og gervifliss til að fela lífsóttann. Hálfur heimurinn er á laun- um fyrir að gera okkur hálfvitlaus og óánægð með það sem við þó höfum, með skrautsýn- ingum án innihalds, með hávaðanum til að fela þögnina, sem er að verða það dýrmætasta í dag.“ Ég hugsaði til listisnekkjunnar sem lá við festar fyrir framan hótelið sem ég dvaldist á í sumarsól við Napólíflóa. Ég sá fólkið þegar það skrapp í land. Þaö var ekki sérlega glatt á svip. Því leiddist. „Ert þú orðinn hræddur?" - Við ...? „Guðlausa veröld? Við tímann, þetta mikla slagverk sem lemur mann áfram, miskunnar- laust?“ Ég þagði. Þaö er erfitt að vera gáfaður á Laugaveginum í Reykjavík. Sá gamli spurði hvort við ættum að verða samferða. „Ertu ekki að fara eitthvað?" Ég sagði „alveg eins“. Svo röltum við saman LIFS ANNIR - Ertu að glápa á stelpurnar, spurði ég. Hann horfði á mig hvössum arnaraugum undan þykkum brúnum, rétt eins og ég væri eitthvað sem öskubíllinn hefði skilið eftir. „Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að öfunda allt þetta unga fólk, öfunda það af æskunni. Ég vaknaði við þessa spurningu I morgun.“ - Þetta er fallegt fólk, sagði ég. Flest! „Já, mikil ósköp, en ég byrjaði að vorkenna því í Bankastrætinu og nú er ég hreint ekkert viss um að ég vildi vera það, að byrja að vera til, hafa áhyggjur af hjónabandi, börnum, hús- næði og gluggabréfum, yfirvöldum sem eru manni óvinveitt og miskunnarlaus. Fyrir nú utan ósköþin að fá vinnu, lifa í sátt og samlyndi við fólkið, umhverfið, berjast við öfund, illskap og hatur, kaldlyndi og varmaskort í viðmóti fólks.“ - Hvaða, hvaða! Sá er svartur í sinni í öllu þessu sólskini! Sá gamli hristi höfuðið og spurði hvort ég væri á launum að standa þarna á Laugavegin- um. Áður en ég gat svarað gengu tvær frísk- legar og kátar stúlkur framhjá og sá gamli horfði á eftir þeim. „Gasalega eru þær fallegar, ungu stúlkurnar I dag. Þessar eru fallegri en kellan mín. En mér finnst vanta eitthvað í þessa fegurð. Getur það verið innri fegurð sem skortir? Mér finnst innri fegurð kjarni alls." Hann hætti að horfa á eftir framtíðinni, leit á mig og sagði: „Jæja, eigum við að snúa okkur að því að öfunda unga fólkið eða ekki?“ - Það er upptekið af æskunni, og því að verða eitthvað. „Auðvitað! Varstu ekki sjálfur upptekinn við það? sumir eru svo uppteknir við að veröa eitthvaö að þeir taka ekki eftir molunum litfögru upþ Laugaveginn en ég var raunar að fara nið- ur hann. Sá gamli hélt áfram að horfa fast á unga fólkið um leið og hann hélt áfram að tala: „Tíminn er fljótur að líða þegar maður telur ekki mínúturnar. Eins er með lífið, ef maður telur ekki árin. Maður berst með straumnum niður lífsfljótið án þess að fá við neitt ráðið. Maður sér í land, yndislega náttúru; tré, runna og blóm, og grasið græna, fólk og dýr. Litir fjalla í fjarlægð eru yndislegir en maður tók ekki eftir því, flaut bara áfram og allt í einu er orðið of seint að damla í land og byrja að taka eftir þessu öllu sem gerir veröld. Maður berst niöur lífsfljótið og nálgast stöðugt fossinn eilífa og hefur engar árar lengur til að breyta um stefnu. Lífið, sem bjó á árbakkanum, var þrungið ævintýrum; það var alltaf heilmikið að gerast en við tókum ekki eftir því!“ Sá gamli hristi höfuðið. „Æi já, nú fyrst er ég á þeim aldri að kunna að njóta. Og þá er það orðið of seint!" Mér fannst allt í einu komið kvöld, þrátt fyrir alla þessa dagsbirtu. Það getur veriö erfitt að hitta sjálfan sig á Laugaveginum. VIKAN 4 16. TBL. 1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.