Vikan - 06.08.1992, Síða 16
TEXTI: ELLY VILHJÁLMSDÓTTIR / LJÓSM.: BRAGI Þ, JÓSEFSSON
Hann heitir
Guðmundur
Magnússon
og er kallaður
Balli kokkur
Það var fyrir allnokkrum árum að sumar-
leyfinu var eytt á Mallorca. Eins og lög
gera ráð fyrir var það sólin og blíðan
sem heillaði, því bleytan og sólarleysið var
allsráðandi heima fyrir.
Er nú ekki að orðlengja það að nóg var af
sólinni og blíðalogninu á Mallorca og íslend-
ingar í hæsta máta ánægðir. Þess vegna skaut
skökku við morgun nokkurn að fljóðgáttir him-
ins opnuðust og enginn sást á ferli utan einn
maður. Ljóshærður og sannarlega hvítur spíg-
sporaði hann meöfram sundlaugarbarminum
með handklæði hangandi á annarri öxlinni og
söng „0, sole mio‘‘ af mikilli tilfinningu. Hann
virtist njóta þessarar mögnuðu rigningar sem
væri hann staddur í eyðimörk. Við nánari eftir-
grennslan kom í Ijós að þetta var Guðmundur
Magnússon, öðru nafni Balli kokkur, sem ýmsir
kannast við.
Þessi atburður var rifjaður upp rigningardag
einn fyrir nokkru.
SÓLIN ER FYRIR KAKTUSA
„Hvort ég man þetta," sagði Balli og brosti
sínu kankvísa brosi. „Mér var svo meinilla við
sólina þó ég væri alltaf að flandrast þarna
suðureftir. Það eru bara kaktusar og svoleiðis
nokkuð sem þola þessa miklu sól. Hefurðu
ekki séð hvernig fólk lítur út effir maraþonsól-
böðin sem islendingar eru svo áfjáðir í? Þeir
eru stundum komnir í „technicolor", það má
lesa litaskalann á þeim. Hvernig heldurðu að
mönnum líði eftir svona ósköp? Þetta er alveg
stórhættulegt.“
Hvernig stendur á þessu Ballanafni þar sem
þú heitir Guðmundur?
„Það var nú þannig að fyrst þegar ég var til
sjós um tvítugt var ég á bandarísku skipi sem
hét Eldoy, en nafnið held ég að hafi verið
norskt. Áhöfnin var mislit eins og gengur. Það
eina sem strákarnir um borð áttu sameiginlegt
var að geta ekki borið nafnið mitt sómasam-
lega fram. Þar sem þeir vissu að ég hafði séð
kvikmyndina Balalaika einum sex eða sjö sinn-
um brugðu þeir á það ráð að kalla mig Bala-
laika, því það gátu allir sagt. Síðan styttist það
i Balli. Nú, og svo var ég kokkur og þar af leið-
andi fylgdi það með í kaupunum. Ég hef verið
harðánægður með þetta nafn og þegar systur
minar kalla mig Guömund veit ég að ég hef
brotið eitthvað af mér eða þær eru ekki
ánægðar með mig.“
Áttu margar systur?
„Þær eru átta og svo á ég einn bróður, sem
VIKAN 1 6 16. TBL. 1992