Vikan


Vikan - 06.08.1992, Side 25

Vikan - 06.08.1992, Side 25
NAGTABORÐ Margrétar Pálu Þaö gerist enn aö sljóar og óhrifnæmar hlustir sperrast upp á gátt viö aö heyra ferska rödd kveða sér hljóðs. Á vordög- um var haldið skemmtilegt málþing á vegum Jafnréttisráös, umræðuefnið var kreppa karla í nútímanum. Meðal ræðufólks í Rúgbrauðs- gerðinni þennan dag var Margrét Pála Ólafs- dóttir leikskólastjóri og að öðrum ólöstuðum var hún sú sem kom, sá og sigraði á þinginu. Umræöuefni hennar var afar áhugavert - kynja- skiptur leikskóli - en ekki siður konan sjálf. sjálf. Konur á borð við Margréti Pálu eru gjarna kallaðar valkyrjur en væri hún sjálf spurð kall- aði hún trúlega eiginleika sína sammannlega en ekki einstæða fyrir valkvendi. Margrét Pála hefur nú í þrjú ár stýrt leikskólanum Garðavelli í Hafnarfirði sem kynjaskiptan skóla. Á leik- skólanum, sem í daglegu tali er kallaður Hjalli, eru 120 börn. Þegar deilur risu um starfið við Hafnarfjarðarbæ, fyrir tæpum tveimur árum, voru það foreldrar leikskólabarnanna sem urðu til þess að höggva á gordonshnútinn og krefjast þess að starfseminni yrði haldið áfram í óbreyttri mynd. Þegar hér er komið sögu hefur uppgötvun Margrétar Pálu vakið mikla athygli á Norður- löndum og þar er fólk feikilega spennt fyrir starfinu. Hjallastefnan hefur verið kynnt í fjöl- miðlum á öllum Norðurlöndum og finnskur leik- skóli hefur áhuga á að reyna kynjaskiptingu frá og með haustinu. Einnig er komin út bókin Æfingin skapar meistarann, eftir Margréti Pálu, bæklingur um starfsemina og myndband. í bókinni Fagra nýja veröld eru frjóvguð egg sett í Bokanovsky-ferli, þannig að þau skiþta sér og útkoman er 96 einstaklingar í stað eins. Þjóðarskútan ísland þyrfti sannarlega á að halda 96 aðilum með framfaragleði og árang- ursmiðun Margrétar Pálu. í framtíðinni bera ís- lendingar hugsanlega gæfu til að rækta sína frumkvöðla og styrkja; sé byggt á líkum tala þeir þó enn um hríð fyrir daufum eyrum. - Hvernig stóð á því að þú lagðir í þessa tilraun? raun? „Þetta var ekki tilraun þegar ég lagði af stað, því ég var sannfærð um gildi þessarar leiðar. Þetta var viðurkenning á því að sú leið sem við hefðum skokkað eftir hefði engu skilað og þess vegna yrðum við að lúta því að taka stefnubreytingu. Mér er alveg sama hvað yfir- markmið leikskóla segir um að við séum að ala upp börn til að verða sjálfstæðir, sterkir og skapandi einstaklingar á framtíðarbraut og svo framvegis, ef starfið skilar ekki árangri. Það þýðir heldur ekkert að tala um árangur sem á aö nást hjá börnunum tuttugu árum síðar. Við skulum einfaldlega fara leið sem sýnir okkur Mér finnst kvennahreyfingin hafa gengið í björg en bíð spennt eftir því að hún komi út aftur. árangur upp á hvern einasta dag og það sé ég með kynjaskiptingu. Ég er komin með þriggja ára reynslu af kynjaskiptu starfi og hafði áður fjölda ára reynslu af blönduðu starfi, þannig að ég veit hvað ég er að tala um þegar ég segi að blöndunin sé ófullnægjandi leið.“ GJALDÞROT ÁTRÚNAÐARLEIÐAR Margrét Pála kveður fast að eins og Norðlend- ingum í ham er tamt og það væri synd að segja að hún hefði ekki skoðanir á málunum. “Blöndun hefur verið átrúnaðarleið í uþþeldis-, félags- og menntunarmálum til fjölda ára en ég leyfi mér að segja að blöndunin hafi beðið skipbrot, sé gjaldþrota. Allar rannsóknir hafa sýnt að útkoma blöndunar er ekki nógu góð. Blöndun neitar að taka tillit til sérkenna og sér- stöðu. I blöndun er neitað að horfa á það að kynin eru ólíkt stödd. Við neitum að horfast í augu við þá staðreynd að tveggja og þriggja ára börn eru þegar farin aö sýna ákveðna hegðun eftir kynferði. Kannski ekki í heima- húsum, en um leið og hópalögmálið fer í gang, er hegðun þeirra gerólík. Þegar komið er inn í grunnskólann, taka við skammir handa strák- unum, slagsmál og læti í frímínútum en stelp- urnar eru áfram fastar í sínu kvenlega hlut- verki; óvirkar, þegja alltof mikið, halda sér til baka, taka ekkert pláss úti á skólalóðunum, þær sitja meira að segja í verri sjónlínu við kennarann inni í bekkjum. Þetta veit hver ein- asti maður sem fylgist með uppeldis- og men- ntunarmálum og auðvitað er þetta ekkert annað en skipbrot. Þess vegna er mín hugmynd í sjálfu sér svo einföld og sjálfsögö að hver einasta man- neskja sem vinnur við þessi störf hefði átt að geta fengið hana. Staðan gat ekki versnað. Það var ómögulegt að vera með kynin saman vegna gerólíkrar hegöunar og útilokað að gefa hvoru kyni um sig það sem þau áttu rétt á. Þ'vi varð að finna nýja leið og ég sá ekki aðra leið en kynjaskiptingu. Ég var fyrirfram sannfærð um að stelpurnar nytu góðs af skiptingu. Þær fengu sjálfkrafa hundrað prósent athygli, allt plássið, og enginn strákur yrði alltaf fyrstur til að taka besta bitann. Þetta gekk eftir og til gamans má geta þess að strax á fyrstu dögum leikskólans byggðu stelpurnar upp andrúmsloft sem vart er hægt að lýsa á annan hátt en sem helgidómi. Það var mjúkt en skemmtilegt, fjörugt án mikils hávaða og þetta var mér í fyrstu hrein upp lifun." MAÐUR FER OG GERIR BETUR -Græddu strákarnir á skiptingu? „Ég vissi að strákana vantaði meiri mýkt og 16. TBL. 1992 VIKAN 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.