Vikan


Vikan - 06.08.1992, Qupperneq 33

Vikan - 06.08.1992, Qupperneq 33
Seattle og Portland. „Vinafólk tók á móti okkur í Kaupmannahöfn og dvöldum við hjá því I sólarhring. Benni skoðaði Kaupmannahöfn, meira að segja Hafmeyjuna litlu hans H.C. Andersen, þar sem hún norpaði í náttmyrkri undir klakabrynju. Næsta morgun var ferðinni haldið áfram til vesturstrandar Bandaríkjanna. Benni var kominn á heimaslóðir. Vor var í lofti og þeir Friðfinnur notuðu tímann til að blandast iðandi lífi götunnar við háskólann, borða jógúrt-ís meðan ég vann. Einn dag var farið með nesti að strönd Kyrrahafsins. Þar vorum við á undurfögrum stað sem heitir Olnbogi djöfulsins, þar sem klettadrangar ganga í sjó fram og sæljón synda meðfram ströndinni. Á leiðinni heimsótti Benni helli einn mik- inn sem er bústaður hundruða sæljóna. Brimið skall á klettun- um við hellismunnann og þessar skepnur, sem eru lík- astar rostungum, klifu stórgrýt- ið af ótrúlegri fimi og sungu hásri, draugalegri röddu í takt við sjávarniðinn. Af þessu varð ógleymanleg sinfónía. Benni stóð fyrst bergnuminn í hálf- rökkri hellisins en dansaði síð- an í takt við hljómfallið og tók undir sönginn, öðrum ferða- löngum til óblandinnar ánægju. YFIR DAGLÍNUNA TIL HAWAII Nokkrum dögum síðar var enn kominn tími til að kveðja og halda um borð f flugvél sem nám í ferðamannafræöum. Birgir, ungur Akureyringur og unnusti Sigrúnar, var í heim- sókn. Þau sóttu okkur og fóru með okkur út að borða. Veit- ingastaðurinn var við sjóinn. Að lokinni veislumáltíð undir stjörnubjörtum himni gengum við berfætt um hvíta ströndina og óðum volgan sjóinn. Næsta dag leigðum við okk- ur litinn hvítan blæjubil og könnuðum landið. Birgir slóst í förina sem bílstjóri og leið- sögumaður. Við skoöuðum sólbakaðar strendur varðaðar pálmatrjám og syntum í sjón- um sem iðaði af litríkum smáf- iski. Það var eins og við vær- um sem iðaði af litríkum smá- fiski. Það var eins og við vær- fangið á okkur til að éta brauðruður sem við höfðum Benni fór í reiðskóla. Honum tókst bara vel upp meö aðstoð kennaranna og lét sér hvergi bregöa. FERDASAGA DORU BJARNASON OG BENNA, FJOLFATLAÐS SONAR flutti okkur yfir daglínuna til Honululu á Hawaii. Vinnan var að baki um sinn og tími til að taka sér stutt frí, kanna ókunn- ar slóðir og hvílast í sólinni. Við stigum út úr svalri vélinni í funheita, blómskrýdda veröld. Loftið titraði af söng balalæka- hljóðfærisins, þyti í framandi trjám, ókunnum fuglasöng og stórborgarniði. Við héldum á ódýrt hótel, Outrigger Wakiki Surf. Þegar á herbergið kom hringdum við strax í Sigrúnu, frænku Friðfinhs, sem var þarna við HENNAR keypt af tötralegum farand- sala. Benni skemmti sér kon- unglega og buslaði hlæjandi í litskrúðugri fiskatorfunni. Samt var hann á varðbergi ef fisk- arnir gerðust of nærgöngulir og hélt fast í pokann með æt- inu. Við snæddum nesti undir pálmatrjám og skoðuðum síð- an eitt stórkostlegasta sæ- dýrasafn sem hægt er að hugsa sér. Þar gat að lítaflest- Skólafélag- arnir úr Æfinga- skólanum koma á hverjum föstudegi f snúöa- veislu til Benna og Dóru. ar skepnur Suðurhafa, frá mannskæðum hákörlum til lit- ríkra kóralla. Næsta dag fórum við lengra inn á eyjuna og skoðuðum meðal annars eins konar Árbæjarsafn eyjar- skeggja Eyjaálfu. Það var bæði forvitnilegt en líka dapur- legt að horfa á innfædda Hawaii-búa, Maóría, Nýju- Gíneumenn og fólk frá Samóa sviðsetja helgar hefðir sínar túrhestum til þægðar. Við veltum mikið fyrir okkur mannlífinu á Hawaii en þarna er ginnungagap milli lífshátta innfæddra og aðkomumanna. Efnaðir Bandaríkjamenn og Japanir eiga villur við strönd- ina og sums staðar er jafnvel sjálf ströndin i einkaeign. Inn- fæddir búa gjarnan í hálfhrör- legum híbýlum, ekki síst til sveita, og yrkja jörðina. Þarna vex nánast allt sem hugsast getur. Um miðbik eyjarinnar eru regnskógar en norðar, þar sem þeim sleppir, eru ananas- ekrur. ANDVÖKUNÓTT MEÐ BYSSUMÖNNUM Að kvöldi þriðjadags kvöddum við þau Sigrúnu og Birgi eftir herlega máltíð og tókum leigubíl út á flugvöll. Þá brá svo við að við höfðum ruglast í dagsetningum við það að fara yfir daglinuna. Við héldum því aftur hálfskömmustuleg á hót- Benni uppliföi margt á Nýja Sjálandi. Hér er hann staddur viö „Olnboga djöfulsins". elið með allt okkar hafurtask, tvær stórar ferðatöskur og mikinn handfarangur sem var að sliga „Gulla“ hjólakerru. Þegar við drösluðum dótinu okkar út úr leigubílnum varð bakpoki Friðfinns eftir en þar geymdi hann persónulega muni, vegabréf og peninga. Þetta var á þeim tíma þegar Persaflóastríðið geisaði og því hvarvetna miklar öryggisráð- stafanir á flugvöllum. Passa- laus maður á besta aldri til hernaðar átti því nær enga von um að komast til Nýja Sjálands. Við kvöddum út lög- reglu og leynilögreglu hótels- ins, hringdum á allar leigubíla- stöðvar í Honolulu en án árangurs. Vopnaðir menn streymdu um hótelherbergið okkar mestalla nóttina og tóku sömu skýrsluna upp aftur og aftur. Benna leiddist fljótt þófið og fór að sofa. Mörgum mán- uðum síðar kom bakpokinn með skilum til Nýja Sjálands. Þá loks fréttum við að á með- an á þessu brambolti stóð hafði leigubílstjórinn árang- urslaust reynt að skila pokan- um í gestamóttökuna en þar hafði enginn kannast við okkur. Nú voru góð ráð dýr. Við hvorki vildum né gátum skilið Friðfinn eftir á Hawaii. Með hjálp sendiráðs íslands i Washington, móður Friðfinns, íslenska utanríkisráðuneytis- 16.TBL. 1992 VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.