Vikan


Vikan - 06.08.1992, Side 58

Vikan - 06.08.1992, Side 58
TEXTI: CHRISTOF WEHMEIER MISMUNANDI GERÐIR Iþessum pistli langar grein- arhöfund til aö kynna mis- munandi gerðir kvik- mynda, kvikmyndir sem flokka má undir dramatískar kvik- myndir, erótiskar kvikmynd- ir, gamanmyndir, spennu- og hasarmyndir og hroil- vekjur. Kvikmyndir fyrir alla. Við skulum hefjast handa við kynninguna. Kvöldsögur eru ómissandi i uppeldishlutverkinu. Svipmynd úr myndinni Jack the Bear. DANNY DEVITO SEM EINSTÆÐUR FAÐIR í kvikmyndinni Jack the Bear fer Danny DeVito í fyrsta skipti með alvarlegt hlutverk. Leikur hann persónuna John Leary sem nýbúinn er að missa eiginkonu sína. Nú er komið að honum að taka að sér uppeldi sona sinna sem eru 3 og 12 ára gamlir. Þurfa þeir á allri hans ástúð að halda. Myndin leggur mikla áherslu á gott fjölskyldulíf og gott uppeldi því fjölskyldan er máttugasta aflið í samfélag- inu. Án fjölskyldu er ein- staklingurinn nakinn og varn- arlaus. VIKAN 58 i6. tbl. 1992 Danny DeVito þykir standa sig með miklum ágætum og strákarnir tveir sýna þroskað- an leik þrátt fyrir ungan aldur. Þetta er mynd með boðskap. TOM SELLECK OG HORNABOLTI í JAPAN Tom Selleck hefur leikið í nýrri mynd sem heitir Mr. Baseball og lofar söguþráöur- inn góðu. Tom Selleck leikur stoltan og keppnisfullan Bandaríkjamann sem hefur gert það gott í hornabolta- íþróttinni. Hann langar síðan að breyta til og fara til Japans. Japanir eru líka hrifnir af þess- ari íþrótt. Tom Selleck þykir viss um sjálfan sig. Honum gengur þó erfiðlega að aðlaga sig að japönsku samfélagi. Hann skilur ekki hugsunarhátt Japana. Myndin sýnir ólíka menningarheima. Myndin hef- ur líka þann boðskap að maö- ur eigi ekki að vera fordóma- fullur heldur sýna skilning á þvi sem maður ekki þekkir vel. Smám saman lærir persóna Tom Sellecks að meta jap- anskt samfélag og japanskir félagar hans fara að skilja hann betur sem útlending, auk þess sem hann veröur ást- fanginn af japanskri snót. AMERÍSKI DRAUMURINN Stórleikarinn Jeff Bridges hefur leikið í nýjustu mynd sinni sem heitir American Heart. Greinir myndin frá per- sónunni Jack Keely sem leikin er af Jeff Bridges. Jack hefur afplánaö margra ára fangels- isdóm en hann hefur sína drauma. Hann ætlar að hefja nýtt og endurbætt líf í samfé- laginu. Hann ætlar að endur- nýja samband sitt við son sinn sem nú er 15 ára gamall. Auk þess langar hann að kynnast pennavini sínum sem er kona að nafni Charlotte. Síðast en ekki síst vill hann flytjast til Al- aska og hefja þar nýtt líf. Allt gengur vel fyrst. Hann hittir son sinn, hann verður ástfang- inn af pennavini sínum og allt virðist benda í þá átt að hin nýja fjölskylda geti flust til Al- aska. En allt kemur fyrir ekki, fyrrverandi félagar Jacks vilja fá hann með sér í bankarán, bankarán sem gæti tryggt þeim milljónir á milljónir ofan. Jack þarf aö fara í gegnum mikla eldraun. Hvað er mikil- vægara: Miklar fjárfúlgur eða kjarnyrt fjölskyldulif? Það er stóra spurningin. Jeff Bridges bregst ekki frekar en fyrri daginn. HROLLVEKJA SEM GERIST í LENINGRAD Robert Englund er þekktur fyrir hlutverk sitt í Nightmare on Elmstreet þáttaröðinni þar sem hann lék barna- og unglingamorðingjann Freddy Kríiger. Nú hefur hann leikið í nýrri hrollvekju sem heitir Dance Macabre og greinir A Stór- leikarinn Jeff Bridg- es í mynd- inni Amer- ican Heart. ▼ Hlnnvit- skerti dans- ari i hroll- vekjunni The Dance Macabre. ► Taktarn- ir eru til staðar hjá Tom Sell- eck í mynd- inni Mr.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.