Vikan - 15.10.1992, Side 5
[fWlHAVEÍÍUDÍ ÉÓÚÍCNI
þess að áhorfendur tóku and-
köf hvað eftir annað. Það er
hreint með ólíkindum hvað
stúlkan sú getur kallað fram
með Make-Up-Forever.
Dómnefndina skipuðu þær
Jóna Lárusdóttir og Guðrún
Möller frá Módel 79, Bonni
Ijósmyndari, Þórarinn Jón
Magnússon, ritstjóri Vikunnar,
Guðmundur Reynisson, eig-
andi verslunarinnar Persona,
Snúlla frá Módelmynd og loks
María Olsen frá sólbaðs- og
þrekmiðstöðinni Perlunni í
Keflavík, en þar höfðu kepp-
endurnir æft af kappi fram að
keppni í öllum sínum frítíma,
auk þess sem kroppatemjar-
inn Kolla í Módelmynd hafði
þjálfað þá í sviðsframgöngu.
Eftir afar erfitt val á mílli níu bráömyndarlegra herramanna komust þessir þrír í efstu sætin,
t.v.: Birgir, Skúli og Hólmgeir.
Og ekki sakar að geta þess
að það var Jóhannes Harðar-
son á hársnyrtistofunni Edel-
on sem hafði hendur f hári
þeirra.
Það eru ýmsir aðilar á Suð-
urnesjum sem að keppnis-
haldinu standa en helstu for-
sprakkarnir eru þær Kristín
Couch förðunarfræðingur hjá
Nýju útliti og Sigríður Gunn-
arsdóttir, betur þekkt sem
Siddý í snyrtivöruversluninni
Gloríu, þær hinar sömu og
stóðu fyrir kjöri fyrirsætu Suð-
urnesja úr hópi stúlkna fyrr á
árinu. □
Stöllurnar Guörún og Jóna
frá Módel 79 bera saman álit
sitt þar sem þær sitja saman
viö borö dómnefndar.
21.TBL. 1992 VIKAN 5
TEXTI OG MYNDIR: ÞJM