Vikan


Vikan - 15.10.1992, Page 21

Vikan - 15.10.1992, Page 21
„LANGAR AÐ VERÐA FATA- HÖNNUÐUR" - segir ValgerSur Björg Jónsdóttir, óttunda stúlkan sem kynnt er í forsíðustúlkukeppninni TEXTI: HELGA MÖLLER UÓSM.: BRAGI Þ. JÓSEFSSON FÖRÐUN: KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR MEÐNO NAME SNYRTIVÖRUM yrða um hvort hún sé búin aö finna eiginmanninn tilvonandi. Síðastliðin þrjú sumur hef- ur Valgerður unnið í garðin- um við Klepp við aö reyta arfa og hlúa að gróðrinum þar. Þar sem báðir foreldrar hennar eru geölæknar stenst blaöamaður ekki mátið og spyr hvort hana langi ekkert að færa sig inn úr garðinum og feta í fótspor foreldranna. Valgerður hlær við. „Jú, jú, kannski,“ svarar hún. „Ég held samt að ég endi nú ekki þar.“ Það gæti líka farið svo að Valgerður legöi fyrir sig fyrir- sætustörf þvi hún er nýgengin til liðs við lcelandic Models. Enn hefur hún ekkert verkefni fengið en það gæti breyst fljótlega með þátttökunni í þessari keppni. Hvað um dagdrauma? Hvað langar Valgeröi að gera i lifinu? Hún hugsar sig um. „Mig langar að ferðast," svarar hún svo. „Ég hef reyndar ferðast töluvert nú þegar en mig langar aö heim- sækja heimalönd krakka sem ég kynntist í sumarbúðum í Kanada þegar ég var tólf ára, svo sem Costa Rica og Mexíkó." Kanadaferð Valgerð- ar var á vegum félagsskapar sem heitir CISV eöa Childrens International Summer Village og er Valgeröi sérlega minnis- stæð fyrir hvað það var gam- an og segist hún aldrei hafa kynnst öðru eins. Hvers konar stúlka er svo Valgerður Björg? Er hún róleg og heimakær eöa vill hún helst vera á ferð og flugi. „Ég veit ekki alveg hvaö ég á að segja,“ svarar hún. „Ég hef breyst svo mikið síðustu mánuöi. Ég var mikið fyrir að skemmta mér en eftir að ég kynntist kærastanum mínum hef ég róast mikið. Aö öðru leyti held ég að það lýsi mér best að segja að ég sé við- kvæm en ákveðin.“ Valgerður er dóttir hjón- anna Jóns G. Stefánssonar og Helgu Hannesdóttur. Hún er yngst fjögurra systkina, á tvo bræður og eina systur. Ekki má gleyma heimilishund- inum Plató en hann er aöeins einn fjölda dýra sem hafa átt heimili sitt hjá fjölskyldunni. Valgerður Björg Jónsdóttir er 168 sentímetrar á hæð. Hárið er Ijóst og augun græn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. □ 21. TBL, 1992 VIKAN 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.