Vikan


Vikan - 15.10.1992, Síða 34

Vikan - 15.10.1992, Síða 34
► Verkin veröa sýnd sem samstæða og gefst áhorfend- um kostur á aö sjá þau bæöi sama dag- inn eöa sitt hvort kvöldið. Hér er Theodór í hlutverki Vanja frænda. sem ég best veit hefur svona nokkuð ekki gerst áður, að sami leikhópur með sama leikstjóra sé að æfa tvö leikrit í sömu leikmynd. Það breytist ekkert nema fólk skiptir um hlutverk auk þess sem bún- ingar eru aörir og nokkrir leik- munir. Þetta eru samt mjög ólík verk en gerast bæði um svipað leyti á rússneskum sveitasetrum. Það er því mjög létt aö leika þau bæði í sömu leikmynd. Þaö er svolítið skrítið að starfa svona að tveimur hlut- verkum í einu. Maöur er vanur því að setjast niður við borð, byrja að lesa leikrit sem síðan er æft í sjö vikur fram að frumsýningu. Á meðan kemst venjulega ekkert annað að. Þetta venst, okkur þótti þetta aðallega framandlegt fyrst, á meðan við vorum að koma okkur í gang. SPENNANDI VERK Við erum þess fullviss að þessi verk höfði til íslenskra áhorfenda - Tsjékov er góður höfundur og hann er tvímæla- laust einn þeirra sem okkur leikurum þykir hvað mest Sþennandi að glíma við. Verk- in eru mjög vel byggð og text- inn vel skrifaður en Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi Platanov og Árni Bergmann Vanja frænda. Þaö er líka svo margt sem gerist fyrir utan textann, svo mikil ólga sem býr undir, meðfram textanum, sþenna á milli fólks, hvert augnatillit segir eitthvað og getur reynst þýðingarmikið. Platanov er frekar af léttara taginu og býður upp á skemmtun og fjör á köflum. Hitt verkið, Vanja frændi, er örlagasaga og mikiö átaka- verk. Það fjallar um ástir og afbrýðisemi. Vanja frændi er gæðasál en finnst hann hafa orðið undir í lífinu og þess vegna á hann svolítiö bágt. Hann er ekki sáttur við líf sitt og í leikritinu fer uppgjör hans fram. Persónan sveiflast milli grátbroslegrar sjálfsvorkunnar og heilagrar reiði yfir því að hafa lifað lífinu eins og hann hefur gert í stað þess að taka í taumana. Hann vill breyta til, hefja nýtt líf, en hefur ekki dug til þess þegar á reynir. Þetta er skemmtileg glíma fyrir leikarana og vonandi virk- ar þetta jafnspennandi á á- horfendur. Um helgar munum við leika saman með góðu hléi milli sýninga svo fólk geti fengið sér að boröa í sýningarhléi um kvöldmatarleytið. Að sjálf- sögðu standa bæði verkin fyr- ir sínu og tekur hvor sýning um tvær klukkustundir og verða þau sýnd sitt hvort kvöldið i miðri viku. Við hvetj- um leikhúsgesti engu að síður til sjá báðar sýningarnar til að geta myndað sér skoðun á því til dæmis hvernig leikurun- um tekst við að skipta svona um hlutverk og um leið fá þeir skemmtilegan samanburð á verkunum. Það eru ákveðin tengsl á milli sýninganna sem við reynum að laða fram á ýmsan hátt." SETTIST Á SKÓLABEKK Theodór hóf feril sinn sem á- „Tsjékov er góður höfundur og hann er tvímælalaust einn þeirra sem okkur leikurum þykir hvað mest spennandi að glíma við" hugaleikari, án þess hann hefði nokkurn tíma hlotið eig- inlega menntun í leiklist - og fyrr en varði var leiklistin orðin hans aðalstarf. „Ég er fæddur Siglfirðingur en fór til Akureyrar til að leika og fastréö mig þar árið 1977. Á Akureyri var ég allar götur þangað til 1989, aö undan- skildu árinu sem ég var í námi erlendis. Árið 1985 fór ég í skóla í Bretlandi, The Drama Studio í London. Ég var farinn að finna fyrir því að ég þyrfti á einhverri menntun aö halda. Þetta var byggt upp sem end- urmenntunarnám fyrir leikara og kallaðist „post graduate". Þessi tími var mér afskaplega fróðlegur og skemmtilegur og ég naut þess virkilega að sitja á skólabekk. Ég kynntist að sjálfsögðu nýjum viðhorfum í stórborginni og alls konar fólki með afar mismunandi bak- grunn. Þarna voru leikarar alls staðar að úr heiminum, aðal- lega Bretar aö vísu en einnig Frakkar, Svíar, Ameríkanar og Kanadamenn meðal ann- arra. Maður komst í nánari snertingu við heimslistina á einhvern hátt og í skólanum voru alls konar verk tekin fyrir, bæði sígild og nútímaleg. Það var svolítið erfitt fyrir okkur út- lendingana að fara með texta Shakespeares á móöurmál- inu.“ TÍMI TIL AÐ BREYTA TIL Theodór fullyrðir að námið hafi veitt sér mikið og hati það tvímælalaust bætt hann sem leikara. „Ég held að ég hafi litið starfið öðrum augum en áður þegar ég kom heim og ég var farinn að gera mér betri grein fyrir því hvað ég var að gera. Eg var orðinn mjög frískur og hafði rosalega gaman af því að takast á við starfið. Sjálfs- traustið hafði aukist að mun og þess vegna fannst mér orðið miklu léttara að taka stærri verk að mér. Það blundaði líklega allan tímann í undirmeðvitundinni að hafa ekki leiklistarnám að baki og ég fann kannski ómeövitað fyrir því að ég stæði ekki jafn- fætis þeim sem menntaöir voru. Ég varð fljótlega var við einhvern óróleika í mér - mig var farið að langa til aö reyna eitthvað nýtt. Ég var búinn að vera nokkuð lengi hjá Leikfé- lagi Akureyrar og þess vegna var ég orðinn býsna eigin- gjarn. Kannski var ég farinn að ráða of miklu og líklega var mér farið að finnast ég eiga þetta. Ég held að það hafi verið orðið tímabært að ég breytti til, sjálfs mín vegna, samstarfsfólksins og áhorf- endanna. Eftir að ég fór á brott hefur leikhúsið fengið til liös við sig nýja leikara og ég held að það hafi verið til góös." - Hvað varð til þess að þú komst suður? „Ég var svo heppinn að mér bauðst að leika í opnunar- verkinu á stóra sviðinu hér í Borgarleikhúsinu 1989, Höll sumarlandsins. Ég plataði kon- una mína til að koma suður með mér og ætlunin var að vera ekki í höfuöborginni nema þann eina vetur en hér erum við samt búin að vera síðan. Það er gaman að geta þess að eiginkona mín, Guörún Stefánsdóttir, vann líka hjá Leikfélagi Akureyrar. Hún var ekkert spennt fyrir því að flytj- ast suður en gerði það fyrir mín orð svo ég gæti fengið að sþreyta mig í þessu eina verki. Hún réð sig í vinnu hingað líka og er nú miða- sölustjóri, auk þess sem hún hefur umsjón með veitingasöl- unni. Við erum bæði mjög á- nægð hér. Fyrstu tvö árin var ég lausráðinn en er nú fast- ráðinn annað árið í röð." AÐ HALDA STARFINU - Er mikill munur á því að leika hér og fyrir noröan? „Já, en fyrst og fremst er það húsið. Það er öðruvísi að leika í svo litlu samfélagi eins og fyrir norðan. Þar er starfs- fólk leikhússins miklu færra og mun þrengri hópur gesta sækir leikhús. Þar er maöur jafnframt meira í tengslum við alla ákvarðanatöku, bæði hvað varðar val á leikritum og rekstur hússins en ég sat samfleytt í sjö ár í leikhúsráði og var formaður þess um skeið. Hér þarf maöur fyrst og Framh. á bls. 36 34 VIKAN 21.TBL. 1992

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.