Vikan - 15.10.1992, Side 36
THEODÓR
Frh. af bls. 34
fremst aö berjast viö aö halda
vinnunni því aö miklu fleiri eru
um hvert hlutverk.
Auðvitað sakna ég Akureyr-
ar og ég átti svolítið erfitt meö
aö yfirgefa staöinn. Eftir þetta
eina ár í byrjun langaði mig
aftur noröur og löngunin kem-
ur alltaf upp öðru hverju.
Þetta litla, snotra leikhús var
oröiö svo stór hluti af mér
sjálfum og einhvern tíma
kemur vonandi aö því aö ég
stíg þar á fjalirnar á nýjan leik.
Þaö er óneitanlega meira
umleikis hér, meiri spenna,
maöur er aö vinna meö fleir-
um og baráttan fyrir því aö
sanna sig getur jafnframt virk-
aö hvetjandi.
Mér var tekiö afskaplega
vel en auövitaö tók þaö sinn
tíma aö aðlagast þeim reglum
og lögmálum sem gilda hér í
húsinu. Ég hef leikið töluvert
mikiö síðan ég kom hingað
en ekki farið meö stór hlut-
verk eins og ég fékk tækifæri
til að leika fyrir noröan. Ein-
hvern veginn vissi ég aö ég
yrði bara aö bíöa og sjá til. Úr
því ég var búinn aö taka
þessa ákvöröun og vildi vera í
þessu starfi varö ég aö gera
mér það aö góðu þó ég fengi
ekki alltaf óskahlutverkin en
við lítum jafnframt svo á aö öll
hlutverk séu í raun jafnmikil-
væg.
Ég varö óskaplega glaður
þegar Kjartan Ragnarsson
valdi mig í þennan tíu manna
leikhóp, þaö var vissulega
mikil uppörvun en Vanja
frændi er langstærsta hlut-
verkiö sem ég hef fengið aö
spreyta mig á síðan ég kom
suöur.“
- Hvernig líkar þér aö vera
í Reykjavík?
„Ég var strax nokkuð lukku-
legur með búsetuna hér. Viö
leigöum fyrsta áriö en þegar
viö höföum ákveðið aö vera
hér áfram seldum viö húsið
okkar á Akureyri og keyptum í
Kópavogi. Þaö var aö hrökkva
eöa stökkva. Ég hef aldrei
fundiö fyrir þessari miklu
streitu og látum sem svo
margir tala um, mér finnst hún
ekkert meiri en á Akureyri.
Kannski finnur maöur ekki fyr-
ir hraöanum því aö maöur er
alltaf á sama svæöinu, ekur
aö heiman frá sér á morgn-
ana niður í leikhús og heim
aftur að kvöldi. Stundum tek
ég aö mér önnur verkefni og
þá eru þau í Ríkisútvarpinu,
sem er hér í nágrenninu, eöa
ég les inn á auglýsingar. Ég
hef ekki fundið fyrir miklum
mun á Akureyri og Reykjavík
aö þessu leyti."
- Er ekki leikhúsið svona
eins og verndaður vinnustaö-
ur, heimur út affyrirsig?
„Auövitaö er þaö svo - og
þó, okkur starfsfólkinu þykir
þetta bara vera ósköp venju-
legur vinnustaöur. Þaö má
segja aö leikhúsið sé lokaöur
heimur þangaö til við opnum
það fyrir áhorfendum á frum-
sýningu."
ALLTAF SIGLFIRÐINGUR
Theodór hafði umsjón meö
sviðsetningu síldarævintýris-
ins í fæöingarbæ sínum,
Siglufiröi, tvær síðustu versl-
unarmannahelgar. Hann seg-
ist vera Siglfirðingur í húö og
hár og þangað fari hann eins
oft og hann komi því viö.
„Um nokkurra ára skeið,
þangað til fyrir tveimur árum,
fór ég alltaf einn og upp í fjóra
túra á togara frá Siglufirði í
sumarfríinu. Ég hafði óskap-
lega gaman af þeirri tilbreyt-
ingu - aö lifa um skeið í
þessu gjörólíka umhverfi.
Síldarævintýrið tvær síö-
ustu verslunarmannahelgar
hefur fært okkur heim sanninn
um aö Siglufjörður skipar stór-
an sess í hugum allrar þjóöar-
innar. Á síldarævintýriö kom
fólk úr öllum landshornum og
rifjaöi upp liöna daga í yndis-
legu veöri og huggulegheit-
um. Ekki bara gamlir Siglfirö-
ingar, ekki bara fólk af plön-
unum hér áður fyrr heldur all-
ir, meira aö segja menn innan
úr Skagafiröi. Þetta voru ynd-
islegir dagar og þaö var gam-
an aö skipuleggja þessa há-
tíö, þó þaö hafi veriö mikil
vinna og törnin stæði frá
morgni og fram á miðjar næt-
ur.“
Aö síðustu var Siglfirðingur-
inn spurður aö því hvort hann
teldi sig aldrei í hópi Skagfirð-
inga, úr því aö fjörðurinn litli
heyrði til Skagafjarðarsýslu.
„Þaö er töluvert mikill mun-
ur þar á. Þegar ég var aö al-
ast upp höföu Siglfirðingar
miklu meiri samskipti viö Eyja-
fjörö en Skagafjörð. Stærstan
hluta ársins var ekki hægt aö
komast frá Siglufirði nema
sjóleiöina og þá var siglt á
milli meö flóabátnum Drangi.
Þess vegna þótti manni Eyja-
fjöröur miklu nær. Þaö voru
engar ferðir á Sauðárkrók,
hins vegar var siglt til Akur-
eyrar meö viðkomu í Hrísey. í
huganum var Akureyri eins og
stóri bróöir sem gott var að
sækja heim. □
STJÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars-19. apríl
Gættu vel að orðum
þínum upp úr miðjum mánuði
því þú gætir átt á hættu aö
veröa svolítiö uppstökk(ur).
Að ööru leyti er skap þitt Ijúft
um þessar mundir, ekki síst
kringum 24. október. Góöur
dagur 28. október.
NAUTIÐ
20. apríl-20. maf
Þaö kunna fleiri aö
meta þig en þú heldur. Það
geislar af þér enda er heilsa
þín og gæfa meö besta móti.
Njóttu helgarinnar 23.-24.
október út í æsar en varastu
samt að láta þaö kosta of
mikið.
TVÍBURARNIR
21. maí-21. júnf
Stjörnurnar eru í flók-
inni stööu um þessar mundir
hvaö tvíburamerkið varðar
svo aö þér væri hollast aö
halda þig við vanabundin
störf. Að vísu er líklegt aö þú
fáir fullt af góöum hugmynd-
um en hætta er á aö þær geti
reynst ótímabærar.
KRABBINN
22. júní-22. júlf
Áhrif Júpíters frá því
fyrr í mánuöinum færast
smám saman í aukana meö
þeim afleiöingum aö heimili
þitt viröist eiga hug þinn
meira og meira. Þetta haust
veröur þér því friösælla og ró-
legra en mörg önnur og Ijúft
að sama skapi.
UÓNIÐ
23. júlí-23. ágúst
Þú ferö aö ná þér á
strik eftir rólegheitatímabil og
mátt búast við að veröa hrók-
ur alls fagnaðar 24. október.
Þaö má líka segja aö þú
komir til með aö njóta síðustu
daga mánaöarins í ríkum
mæli þótt þú hafir annars í
nógu aö snúast.
MEYJAN
24. ágúst -23. sept.
Fjármál þín ættu aö
vera á grænni grein. Þó er
engin ástæöa til að fara út I
tvísýn viðskipti að svo
stöddu. Rómantíkin segir
rækilega til sín 25. október.
Þú ert meö pálmann í hönd-
unum þessa dagana en lof-
aöu ekki upp í ermina þína.
VOGIN
24. sept.-23. okt.
Seinni hluti október-
mánaöar verður þér viö-
buröaríkur tími. Vogarfólk
með frásagnarhæfileika ætti
jafnvel aö halda dagbók. Ekki
er hægt aö nefna einn dag
öörum fremur svo þú skalt
reyna að njóta þeirra sem
allra best.
SPORÐDREKINN
24. okt.-21. nóv.
Nú feröu loksins að
sjá fyrir endann á tímabili
þrotlausrar þolinmæði því fólk
virðist fara aö meta þig aö
verðleikum. Þó sakar ekki aö
beita skynseminni af og til
enda þarftu rækilega á henni
að halda 28. október.
BOGMAÐURINN
22. nóv.-21. des.
Ýmsir straumar virö-
ast leggja leiö sína til þín upp
úr 19. október. Þaö má því
gera ráö fyrir aö þú verðir í
mikilvægum samböndum viö
fólk. Þau ættu aö ná hámarki
um 24. október. Þann dag
veitir ekki af aö nota heila-
frumurnar.
STEINGEITIN
22. des.-19. janúar
Þú ert í „sviðsljósinu”
um þessar mundir ef svo má
segja enda eru áhrif Júþíters
varðandi frama þér hliðholl
núna. Eftir 25. október er rétti
tíminn til aö afla ráölegginga
varöandi viðkvæmt mál.
VATNSBERINN
20. janúar-18. febr.
Haustiö fer vel í þig
og þú nýtur hæfileika þinna
betur en oft áður. Þó gæti
verið hætta á að tilfinningar
spili um of inn ( gerðir þínar
en þaö gætiröu átt erfitt meö
aö ráöa viö. Síðasta vika
mánaöarins veröur eftirminni-
leg.
FISKARNIR
19. janúar-20. mars
Aö synda með
straumnum er eðli margra
fiska og þaö virðast flestir
þeirra einmitt eiga í vændum
seinni hluta október. Tímabil-
iö veröur aö mestu tíðinda-
laust ef undan er skilið svolít-
ið frávik frá því 23. október.
36 VIKAN 21.TBL. 1992