Vikan - 15.10.1992, Qupperneq 62
TEXTIOG UÓSM.: GUNNAR H. ÁRSÆLSSON
T Fimm
fræknir á
sínum tíma,
Frankie
Goes to
Hollywood.
Frá vinstri:
Peter Gill,
Brian Nask,
Holly Jokn-
son, Paul
Rutkerford
og Mark
O’Toole.
lakaðu á eða Relax
i heitir lagið á frummál-
inu. Nafn hljómsveitar-
innar, sem flutti það lag, var
ennþá skrýtnara; Frankie
Goes to Hollywood, eftir
ferðalagi sem Frank Sinatra
tók sér fyrir hendur til háborg-
ar kvikmyndanna á sínum
tíma.
STOFNUÐí
BÍTLABORGINNI
Fyrir nákvæmlega tíu árum, í
bítlaborginni Liverpool á Eng-
landi, var hljómsveitin stofnuð.
Það voru þeir Holly Johnson
(söngur), Paul Rutherford
(söngur og dans),
O’Toole (bassi), Pei
(trommur) og Brian Nas.
ar). Boltinn fór að rúlla eft.
þeir komu fram f þekktum
varpsþætti hjá John Peel ,
rás 4 í BBC og sjónvarps-
þættinum The Tube. Fljótlega
réð maður nokkur að nafni
Trevor Horn, sem nú er einn
fremsti upptökustjóri popp-
geirans,
þá til fyrir-
tækis sfns,
ZangTuum
T u u m
h I j ó m -
platna.
(nóvem-
ber 1983
hóf fyrsta afurð Frankie - áð-
urnefnt lag, Relax - för sína
um breska vinsældalistann og
í janúar 1984 var Relax komið
inn fyrir topp 10. Þegar lagið
komst svo í sjötta sæti listans
gerðist það að morgunpiötu-
snúður nokkur hjá BBC, Mike
Read, lýsti vanþóknun sinni á
textanum og umslagi plötunn-
ar. Afleiðingin var sú að lagið
var bannað rétt áður en það
átti að fara i fyrsta sæti list-
ans.
Betri auglýsingu var ekki
hægt að hugsa sér. Bannið
kom heldur ekki í veg fyrir að
lagið settist á toppinn og þar
sat það í fimm vikur. Samtals
var Relax fjörutíu og átta vikur
á lista eða ellefu mánuði og er
það þriðja lengsta dvöl lags á
lista frá upphafi. Alls seldist
Relax í um 1,8 milljónum ein-
taka í Bretlandi en fór einnig
sigurför um Evrópu og Banda-
ríkin.
FRANKIE-ÆÐI
í kjölfar lagsins braust út
Frankie-æði í Evrópu og bolir
með alls konar Frankie-slag-
orðum seldust betur en heit-
ustu lummur.
Næsta lag með Frankie
Goes to Hollywood, sem náði
vinsældum, var stríðsádeilan
Two Tribes. Það sat níu vikur
llmslagió sem geröi allt vitlaust,
Relax. A bakhliö þess er mynd af
hönd sem togar í járnhring sem
hefur verið festur í geirvörtu
á karlmanni. Oj barasta!
Lagiö er samt einn
besti poppsmellur
em framleiddur
hefur veriö.
í toppsæti
breska vinsælda-
sæidalistans og seldist í um
1,5 milljónum eintaka í Bret-
landi. í desember 1984 var
það svo kraftur ástarinnar eða
The Power of Love sem sett-
ist í efsta sæti vinsældalistans
og þar með jafnaði Frankie
met Gerry & The Pacemakers
sem árið 1963 náðu toppsæti
með fyrstu þremur smáskífun-
um sínum.
Breiðskífan Welcome to the
Pleasuredome, sem Relax og
Two Tribes voru á, seldist f
um 1,1 milljón eintaka og setti
met í fyrirframsölu. Framhald-
ið var ekki eins glæsilegt og
platan frá 1986, sem hét ein-
faldlega Liverpool, gerði enga
stórkostlega lukku, þrátt fyrir
að eitt lagið á henni, Rage
Hard, næði nokkrum vinsæld-
um og 84 milljónum ísl. króna
hefði verið kostað til.
Eftir þá plötu hætti þetta
stúdíóundur störfum en marg-
ir héldu því fram að velgengni
sína ætti Frankie einvörðungu
að þakka hreint frábærum
upptökustjóra. Einnig áttu lög-
fræðilegar deilur innan hljóm-
sveitarinnar stóran þátt í því
að hún hætti.
HVAÐ GERA ÞEIR NÚ?
Síðan þetta var hefur lítið
markvert gerst hjá þeim félög
um. Holly Johnson gaf þó árið
1990 út plötuna Blast og af
henni náðu lögin Americanos
og Love Train nokkrum vin-
sældum. Hann er sem stend-
ur að leita sér að útgáfufyrir-
tæki eftir að MCA lét hann
flakka.
Brian gítarleikari sneri sér
aftur að rafvirkjun, Mark
bassaleikari flutti til Los Ang-
eles, vann þar eitthvað með
hljómborðsleikara en ekkert
kom út úr því, flutti síðan aftur
til Englands og reynir áfram
fyrir sér í tónlistinni.
Paul Rutherford hefur að
undanförnu unnið við útlits-
hönnun en einnig eitthvað í
tónlist með Bruce Smith úr
Public Image Ltd. og er sem
stendur að vinna sjálfur sitt
eigið efni fyrir sólóplötu.
Peter trommuleikari er enn-
þá í tónlistinni, var einn
þriggja í hljómsveit sem bar
heitið Love Station en hefur
nýverið stofnað hljómsveit
sem kallar sig Slam.
Þessi urðu örlög hljómsveit-
arinnar sem setti allt á annan
endann í breskum poppheimi
árið 1984. □
ú líður að því að fyrsti
diskur hljómsveitarinn-
ar Jet Black Joe komi í
hillur plötuverslana. Áætlað-
ur útgáfudagur er 15. október.
Diskurinn ber einfaldlega heiti
hljómsveitarinnar, inniheldur
ellefu lög og skiptist til helm-
inga hvað varðar róleg lög og
keyrslulög.
Upptökum stjórnaði Eyþór
Arnalds í Todmobile eins og
Vikan sagði frá í 15. tbl. í
spjalli við Gunnar Bjarna
Ragnarsson gitarleikara kom
fram að upptökurnar hefðu
gengið framar vonum og að
um töluverða tilraunastarf-
semi hefði verið að ræða.
Hann sagði þá hafa legið mik-
ið yfir trommuhljómi, verið að
► Jet Black Joe á Coca
Cola rokkínu. Eins og sjá má
hafa þeir svolítiö sérstaka
sviðsframkomu. Hún spillir
þó engu - nema síöur sé.
leika sér með að hafa gítarleik
aftur á bak og fleira í þeim
dúr. Fyrirhafnarsamasta lagið
á upptökustiginu sagði Gunn-
ar hafa verið lag sem ber heit-
ið Falling og er róleg ballaða.
Varðandi texta á plötunni
sagði Gunnar þá fjalla um ým-
islegt en nefndi dæmi úr lag-
inu Chics in the House þar
sem útgangspunkturinn væri
sá hvað þeim hefði gengið
mun betur í samskiptum við
hitt kynið eftir að þeir tóku upp
gítarana. Hann sagði lagið
vera jafnt ádeilu á þá sjálfa
sem og fyrirbærið rokk og ról.
Jet Black Joe voru á fullu f
allt sumar og hafa reyndar
verið það frá því þeir hófu
samstarfið fyrir tæpu ári.
Hvaða tónleikar skyldu hafa
verið skemmtilegastir? „Það
voru tónleikar sem við héldum
í MR um daginn," segir Gunn-
ar Bjarni og bætir við: „Það
sást ekki vín á nokkrum ein-
asta manni en samt var alveg
meiri háttar tryllt stemmning.
Svo lentum við í því að spila í
brúðkaupi í sumar og það var
líka skemmtilegt. Einnig spil-
uðum við fyrir hóp af krökkum
í Njarðvík og það var mjög
gaman.“
Eins og venja er ætlar
hljómsveitin Jet Black Joe að
halda útgáfutónleika. „Þeir
verða tveimur til þremur vik-
um eftir að platan kemur út og
það verður mikið um dýrðir
vegna þess að við verðum
með gott Ijósakerfi sem á að
gefa frá sér mikið litaflóð,”
sagði Gunnar Bjarni að lok-
um. Óhætt er að fullyrða að
langt er síðan blaðamaður
hefur beðið innlendrar plötu
með viðlíka eftirvæntingu. □
62 VIKAN 21.TBL. 1992