Vikan - 16.06.1993, Blaðsíða 7
ESTHER ERLINGSDÓTTIR, ÞRIÐJI
ÞÁTTTAKANDINN í
FORSÍÐUKEPPNINNI:
MÉR LÍÐUR VEL
FYRIR FRAMAN
MYNDAVEUNA
Esther er 19 ára, verður
tvítug þann 29. júlí. Hún
er 173 sentímetrar að
hæð, með dökkt hár og blá
augu. Foreldrar hennar eru
Fjóla Sigríður Hoblyn og Unn-
ar Erling Óskarsson. Hún er í
Ijónsmerkinu og segist búa yfir
ýmsu því sem sagt er ein-
kenna fólk í því merki. „Það
þarf að fara rétt að Ijóninu, það
hefur mikið að segja. Ég er
mjög frek og býsna skapstór."
Esther er fædd og uppalin í
Reykjavík en hefur búið í
Keflavík síðasta eitt og hálft
árið þar sem sambýlismaður
hennar starfar sem pitsubak-
ari. Saman eiga þau sex mán-
aða gamlan son.
Esther var á heimavistar-
skóla á Núpi í Dýrafirði þar
sem hún lauk grunnskólaprófi.
Þá kom hún suður og fór að
vinna við ýmis störf, varð
barnshafandi upp úr því og
starfar nú sem húsmóðir.
„Mér finnst alveg meiri hátt-
ar að vera með syni mínum og
annast hann. Annars kann ég
mjög vel við mig í Keflavík. Ég
þarf síður en svo að láta mér
leiðast. Mér hefur verið tekið
mjög vel og hef eignast marga
vini og kunningja þar. Þarna
búa jafnframt móðursystkini
mín og hafa þau
tekið frábærlega á móti mér.
Þar fyrir utan er rosalega
skemmtilegt að fara út að
skemmta sér í Keflavík þó að
ég sé ekkert mikið fyrir það
nema af sérstöku tilefni. Mér
finnst betra að fara sjaldnar og
skemmta mér vel en að fara
oft og þykja það hversdags-
legt. Á skemmtistaðnum Þot-
unni hittir maður margt gott
fólk. Keflvíkingar eru bæði hlýir
og opnir. Þeir bjóða alla vel-
komna og maður er fljótur að
kynnast þeim.“
FULLTRÚI SUÐURNESJA
Esther er spurð að því hver
framtíðaráformin séu. „Mig
langar að eignast fleiri börn
en ætla að láta það biða um
sinn. Núna hef ég mestan
áhuga á að fá að spreyta mig
á fyrirsætustörfum. Ég hef
haft hug á því um nokkurt
skeið og hef verið að reyna
að koma mér á framfæri. Til
dæmis hef ég tekið þátt í
keppninni um titilinn ungfrú
Reykjavík og Ford-keppninni.
Ég hlaut annað sætið í fyrir-
sætukeppni Suðurnesja á
dögunum og þá féll það í
minn hlut að vera fulltrúi Suð-
urnesja í forsíðukeppni Vik-
unnar og Wild. Mér hefur þótt
þetta ofsalega spennandi.
Mér líður mjög vel fyrir framan
myndavélina og hef gaman af
að sýna föt.“
Esther segist ekki bara
hafa gaman af að sýna föt,
hún sé háð því að geta keypt
sér fallegar flíkur öðru hverju
þegar fjárráð leyfi slíkt. „Ég
get ekki saumað á mig sjálf,
því miður. Það er eitthvað
sem ég virðist ekki geta lært.“
Aðspurð um hvort gifting
standi fyrir dyrum segir Esther
að slíkt sé ekki á dagskránni í
bráð. „Maður verður svo full-
orðinn við að giffast, þess
vegna vil ég bíða með það í
nokkur ár. Ég er búin að finna
draumamanninn. Hann er 23
ára og stærri en ég, dökk-
hærður með græn augu.
Hann er frá Chile í aðra ætt-
ina og íslendingur í hina, ég
er mjög ánægð með hann.
Hann hefur stutt mig dyggi-
lega meðan á undirbúningi
hinna ýmsu keppna hefur
staðið og hvatt mig til dáða.
Ég á líka svo góða fjölskyldu í
Keflavík sem hefur hjálpað
mér mikið.“ □