Vikan - 16.06.1993, Blaðsíða 32
TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON/UÓSMMAGNÚS HJÖRLEIFSSON
VALASKJÁLF Á EGILSSTÖÐUM
EITTHVAD AD GERAST
- SEGIR HARPA EINARSDÓTTIR HÓTELSTJÓRI
▲ Harpa
Einars-
dóttir
hótel-
stjóri.
▼ Hótel,
veitinga-
staöur,
félags-
heimili,
kvikmynda-
hús og ráó-
stefnu-
aóstaöa
undir sama
þaki.
Harpa Einarsdóttir heitir
nýi hótelstjórinn í Vala-
skjálf á Egilsstöðum en
hún tók við því starfi þann 1.
nóvember síðastliðinn. Hótel-
rekstur var henni samt ekki
alls ókunnur því að áður var
hún fjármálastjóri á Holiday
Inn í Reykjavík.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Harpa býr utan höfuðborgar-
svæðisins og segir hún að sér
og lítilli dóttur hennar líki vistin
á Egilsstöðum mjög vel.
„Þetta var vissulega talsverð
breyting fyrir mig. Fjölskylda
mín og vinir eru í Reykjavík
og maður finnur stundum fyrir
því. Mér stendur aftur á móti
sama um skemmtanalífið,
kvikmyndahúsin og allt það
sem borgin býður upp á, ein-
faldlega vegna þess að ég var
löt við að sækja slíkt á meðan
ég bjó fyrir sunnan. Ég verð
samt að viðurkenna að ég fer
yfirleitt til Reykjavíkur svona
einu sinni í rnánuði."
- Hvert var fyrsta verkefnið
þegar þú komst austur?
„Ég tók við ágætis búi af
forvera mínum. Það má
kannski segja að ég hafi leit-
ast við að breyta nokkrum á-
herslum í rekstrinum, reynt að
auka þátt veitingasölunnar en
hér rekum við bæði matsölu
og bar. Þetta hefur gengið
bærilega en í sannleika sagt
hefur mér þótt erfitt að draga
Egilsstaðabúa og nágranna
þeirra út að borða - nema
þegar eitthvað sérstakt hefur
verið í boði. Ástæðan er sú að
fólk hefur ekki átt því að venj-
ast að fara út að borða nema
þá í tengslum við árshátíðir
eða hliðstæða viðburði. Þess
má geta að við höfum verið
með nýjan og girnilegan mat-
seðil síðan í febrúar - enda
erum við hér með góða mat-
reiðslumenn og framreiðslu-
fólk.
Við verðum að leggja á-
herslu á heimamarkaðinn á
veturna á meðan hlé er á
ferðamannastraumnum. í því
sambandi má geta þess að
við höfum verið að reyna að
fá hingað um helgar fólk neð-
an af fjörðum. Við höfum því
boðið upp á helgarpakka á
góðu verði - þar sem um er
að ræða gistingu, mat og
dansleik á eftir en hér er eitt-
hvað að gerast um hverja ein-
ustu helgi.
Hingað koma margir sölu-
menn yfir vetrarmánuðina. Ég
hef hug á því næsta vetur að
reyna að gera hótelið að-
gengilegra fyrir þá og heimilis-
legra til þess að gera þeim
dvölina bæði ánægjulegri og
sjálfsagðari. Gistiþátturinn
byggist mikið á þessum hópi
yfir vetrartfmann og því þarf
að búa þannig um hnútana að
þeim þyki gott að vera hér.
Félagsheimilið er sambyggt
hótelinu og veitingastaðnum
og er um sameiginlegan
rekstur að ræða. Aðsóknin er
32 VIKAN 12. TBL. 1993