Vikan - 16.06.1993, Blaðsíða 49
- Hvernig skyldi standa á því
að nautið lagði mig í einelti?
- Það hlýtur að hafa komist
að því að þú ert jurtaæta og
étur matinn frá því.
Ræðumaður á framboðsfundi: -
Sá sem viðurkennir að hafa á
röngu að standa er skynsamur
en sá sem heykist á því að halda
fram sannleikanum...
Rödd úr salnum: - Ertu giftur?
Læknir nokkur hafði fyllt út
dánarvottorð. Daginn eftir
hringdi tryggingarfélag hins
látna og kvaö lækninn hafa
gleymt að undirrita vottorðið.
- Ég man vel aö ég skrifaði
nafnið mitt á skýrsluna, sagði
læknirinn.
- Það er rétt, saraði trygg-
ingarmaöurinn, en þú skrifaðir
það í dálkinn fyrir banamein.
Rússneskur hermaður var að
koma heim eftir að hafa verið í
stríöi í fimmtán mánuði og hon-
um til mikillar undrunar var konan
hans nýlega búin að ala barn.
Hann yfirheyröi hana hörkulega.
- Var það Fjodor vinur minn?
- Nei.
- Nú, var það þá ívan vinur
minn?
- Nei.
- Þá hlýtur það að hafa verið
Dimitri vinur minn.
- Nei.
Rússinn hélt því samt örvænt-
ingarfullur fram að þaö hlyti að
vera einhver þeirra - um hverja
aðra gæti svo sem verið að
ræða?
- Heldurðu að ég geti ekki átt
mína eigin vini? svaraði konan.
Óli kjaftur fór til tannlæknis til
að fá setta í sig tönn.
- Oþnaðu munninn, sagði
tannlæknirinn. - Betur, betur.
- Nú hver andsk... hrópaði
Óli. - Ætlarðu ekki að standa
fyrir utan.
Tannlæknirinn leit þá upp í
Óla.
- En sú hola.
- En sú hola!
- Það bað þig enginn að
segja það tvisvar!
- Ég sagði það ekki tvisvar,
hrópaöi tannlæknirinn ösku-
vondur. - Hitt var bergmál!
FINNDU 6 VILLUR
Finniö sex villur eða fieiri á milli mynda
nsAed ? ub»b jbjuba jeiunu 9 ‘bj«Ms jb yjjBApuuö g ‘uAejq qusa jn|eq !iu|?fq
tr 'BUjpUÁlil ? U!LUO>J J0 BJB|SUJBA £ ‘JBUJBJJ J0 (UUnfQjlU \ B Jnjpj £ ‘6njO J0 BjnH ' 1.
STJÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 20. apríl
Áform þín um að vera ekki
ginnkeyptur fyrir málamiðlunum
geta haft afdrifaríkar afleiðingar
sem gætu snert einkalíf þitt, eink-
um á vettvangi ásta, kynlífs og fjár-
festinga. Tími breytinga er að fara í
hönd, þú munt sjá þess merki þrátt
fyrir miklar annir.
NAUTIÐ
21. apríl - 21. maí
Þú ert kannski gáskafullur
en alls ekki stressaður, þó að ein-
hverjir reyni eflaust að telja þér trú
um það. Þú vilt lifa því lífi þar sem
allt verður að hafa sinn gang. Vinir
og fjölskylda munu skilja að þú viljir
ekki breyta því. Einhver á eftir að
reyna að ná athygli þinni á næst-
unni.
TVÍBURINN
22. maí-21. júní
Þú ert spenntur að geta
byrjaö á nýjum verkefnum en verð-
ur að hafa þolinmæði og bíða
þangað til þú hefur gengið frá öllum
lausum endum. Vertu ekki feiminn
við að segja nei, slíkt er nauðsyn-
legt sjálfsvirðingunni.
KRABBINN
22. júní - 23. júlí
Þú stendur vel að vígi og
þess vegna þarftu ekki að hafa
samviskubit og hafa á tilfinningunni
að þú þurfir að standa þig aðeins
betur til þess að uppfylla þær kröfur
sem gerðar eru til þín. Það sem þú
þarfnast núna er að taka til hend-
inni heima fyrir og vera í góðum
tengslum við þína nánustu.
UÓNIÐ
24. júlf - 23. ágúst
Það er rólegur tími fram
undan hjá þér og ýmsir hlutir sem
hafa verið þér mikilvægir að undan-
förnu skipta ekki lengur eins miklu
máli. Notaðu tímann til að hlaða
rafhlöðurnar - á eftir verður þú
þess albúinn að takast á við spenn-
andi verkefni.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Þú hefur verið upptekinn af
aö vinna eitthvað sjálfum þér í hag
en nú er kominn tími til þess að þú
farir að líta á hlutina með sameigin-
lega hagsmuni í huga. Þú hefur
ýmislegt til málanna að leggja og
reyndar áttu auðveldara með að
leysa málin fremur en að láta öðr-
um það eftir.
VOGIN
24. september - 23. okt.
Þú verður að finna jafn-
vægið á milli þeirra krafna sem þú
reynir að standa undir í skóla eða á
vinnustaö og hinna sem fjölskyldan
gerir til þín. Þú hefur hæfileika til að
umgangast fólk og ná góðu sam-
bandi við það. Leyfðu þeim að
njóta sín á næstunni.
SPORDDREKINN
24. október - 22. nóv.
Þú munt leggja kapp á að
komast inn í ákveöna hópa fólks.
Þess vegna er þér mikiö í mun að
vita hvað öörum finnst um þig og
viðhorf þín. Þú hefur mikið að gefa
öðrum og þess vegna ætti þér að
takast ætlunarverk þitt.
BOGMAÐURINN
23. nóvember - 22. des.
Þér finnst spennandi að
fást við störf þín heima og heiman
og hefur hæfileika til að mála
hversdagsleikann björtum litum.
Framundan er góður tími til að gera
ýmislegt sem þig hefur lengi langað
til að spreyta þig á, einkum og sér í
lagi eitthvað sem hugur og hönd
þurfa að vinna að saman.
STEINGEITIN
23. desember - 20. jan.
Á næstu dögum ættir þú
að leggja kapp á að ræða sam-
band þitt og þinna nánustu, einnig
ýmis ágreiningsmál sem komið
hafa upp á vinnustað. Láttu líka eft-
ir þér að sökkva þér niður í hluti
sem þú hefur lengi beðið eftir að
komast í tæri viö. Mundu bara
að hætta leik þegar hæst hann
stendur.
VATNSBERINN
21. janúar - 19. febrúar
Um þessar mundir hafa ör-
yggi og tryggð meiri þýðingu fyrir
þig er frelsi og þjóðfélagsmál. Sum-
um kann aö finnast að þú hafir
misst kraftinn en I raun og veru er
hann aðeins falinn um sinn. Þú
þarft ekki alltaf að vera hugmynda-
smiðurinn.
FISKURINN
20. febrúar - 20. mars
Þó svo að þú viljir fara
með varúð af stað með ýmislegt á
næstu dögum muntu brátt komast
að því hversu mikið þú ræður við.
Reyndu að komast hjá óþægileg-
um samskiptum við fólk sem þér er
nauðsynlegt að hafa á þínu bandi.
12. TBL. 1993 VIKAN 49