Vikan - 16.06.1993, Blaðsíða 66
Marcolínu, en þaö gengur
ekki vel aö heilla hana. Hún
kvartar yfir aö hann sé andfúll
og meö bauga undir augun-
um. Casanova er þekktur fyrir
annað en aö gefast upp en
þaö tekur hann langan tíma
aö vinna ástir stúlkunnar. Ekki
batnar ástandiö þegar ungur
hershöfðingi veitir honum
haröa samkeppni. Hver fær
svo blómarósina ungu? Casa-
nova eftir mikil erfiði. Þolin-
mæöi þrautir vinnur allar.
HEFNDIN ER SÆT
Donald Sutherland, Amy Ir-
ving (Carrie, Yentl) og Gra-
ham Greene (Thunderheart,
Dances with Wolves) leika í
sálfræðilegri spennumynd
sem hlotiö hefur titilinn Bene-
fit of the Doubt. Myndin fjall-
ar um Karen sem á ellefu ára
son. Hún vinnur í næturklúbbi
og á sér elskhuga. Líf hennar
virðist í jafnvægi þar til hún
byrjar aö fá martraðir. Hún sér
fyrir sér hvernig faöir hennar
hrindir móöur hennar niður
stiga - morö hefur verið
framið. Karen sá þetta allt
saman þegar hún var lítil og
var aðalvitnið þegar faöir
hennar var dæmdur til tuttugu
ára fangelsisvistar. Áöur en
hann var leiddur út úr réttar-
salnum öskraöi hann á
skelfda dóttur sína: Pabbi
mun ekki gleyma þessu! Tutt-
ugu og tveimur árum síðar
kemur faðirinn til heimabæjar
dóttur sinnar. Karen óttast um
► Píanó-
stúlkan
saklausa.
▼ Skrifaðí
þessi app-
elsínugulu
ástar-
bréfin?
▼ Eva á
eftir aö
hverfa
sporlaust í
myndinni
Hin lygnu
vötn.
öryggi sitt en faðir hennar
(sem leikinn er af Donald
Sutherland) viröist vera búinn
aö gleyma orðum sínum forö-
um daga og fer vel á meö
þeim. Allt virðist slétt og fellt
þar til faðirinn kemst á snoðir
um aö elskhugi Karenar ætlar
að kvænast henni. Æöi renn-
ur á hann og hann drepur
kærastann. Karen flýr og
pabbi hennar er tekinn fastur.
Hann kemst undan og hefst
mikill eltingarleikur þar sem
dóttir og faðir berast á bana-
spjótum.
FJÖLSKRÚÐUGT
HALLARLÍF
í myndinni Jagd auf Schmett-
erlinge (Fiðrildaveiöin) er
greint frá skrýtnu fólki í rík-
mannlegri höll í Suður-Frakk-
landi. Roskinn leikstjóra, Otar
losselimi, dreymir um góöu
gömlu dýröardagana og viö
sögu koma líka tvær eldri
dömur. Önnur dýrkar kirkju-
tónlist og skyttirí en hin er í
hjólastól og hefur unun af því
að gera viö gamla bíla. í höll-
inni er þar aö auki prestur
▲ Alain
Delon sem
Casanova
aö gera
hosur sín-
ar grænar.
sem verður aö fá sér brenni-
vínsstaup á morgnana og sér-
trúarflokkur sem eldar krydd-
aðan mat daginn út og daginn
inn. í höllinni býr sem sagt
margt furöulegt fólk og þykir
myndin skondin meö afbrigö-
um.
HIN LYGNU VÖTN
Les eaux dormantes eöa
Hin lygnu vötn er hörku-
spennandi tryllir. Leikstjóri er
Frakkinn Jacques Trefouel
sem sagður er fylgja læri-
meistara sínum, Alfred
Hitchcock, vel eftir í spennu-
myndagerö. Jacques er nefni-
lega mikill aödáandi Hitch-
cocks og myndin Vertigo meö
James Stewart og Kim Novak
er uppáhaldsmyndin hans.
Snúum okkur aö söguþræði
Les eaux dormantes: Læknir-
inn Denis de Lespincere hefur
eytt þremur erfiöum árum í
Asíu þar sem hann starfaði á
vegum læknasamtakanna
Médecins sans frontieres eöa
Læknar án landamæra. Þegar
hann snýr aftur til Frakklands
til að byrja nýtt líf gerir hann
sér Ijóst að erfiðleikarnir eru
ekki aldeilis aö baki. Faöir
hans er sporlaust horfinn og
enginn veit um afdrif hans.
Denis er þetta hulin ráðgáta
og hefur rannsókn á málinu á
eigin vegum. Þegar hann hittir
Evu, fyrrum ástkonu sína,
verður hann hrifinn af henni
aö nýju og þar sem Denis er
þreyttur eftir leitina ákveöa
þau að taka sér smáfrí sam-
an. Þegar hann ætlar svo að
sækja Evu fyrir feröalagiö
hverfur hún líka sporlaust.
Tvö mannshvörf hafa orðiö og
Denis stendur á gati. Hvaö er
eiginlega aö gerast? Denis
ákveöur að gefast ekki upp og
er staðráðinn í aö finna fööur
sinn og sína heittelskuðu
hvað sem þaö kostar.
PÍANÓSTÚLKAN
Myndin L’accompagnatrice
fjallar um forboöna ást. Fer-
tugur leikstjóri veröur yfir sig
ástfanginn af átján ára stúlku
sem stundar píanónám. Mynd
þessi gæti verið svar við ást-
arsambandi Woody Allen viö
fósturdóttur Miu Farrow en
eins og lesendur vita kom þaö
hneyksli upp í fyrrahaust. Ric-
hard Bohringer leikur í Pí-
anóstúlkunni en hann sáum
viö siðast I frönsku sakamála-
myndinni Monsieur Hire sem
sýnd var á kvikmyndahátíð-
inni í Regnboganum áriö
1991. Dóttir hans, Romane
Bohringer, fer einnig meö
hlutverk í myndinni. □