Vikan - 16.06.1993, Blaðsíða 16
ÞEIRRA
FYRSTU
KYNNI
Þar sem við höfum verið að fjalla um brúðkaup og undir-
búning þeirra hér á síðunum á undan látum við fylgja
upprifjun úr gömlum Vikum á frásögn nokkurra þjóð-
kunnra íslendinga á því hvernig fundum þeirra og makanna
bar saman. Frásagnirnar eru að vonum misjafnar eftir því
hver í hlut á en það á við um allmörg þessara hjóna eins og
svo víða í kringum okkur að kynnin hófust æði oft á dans-
leikjum eða skemmtunum. Lítum á þetta.
JÓN R. RAGNARSSON
OG PETRA
BALDURSDÓTTIR
„í hvaða merki ert þú fædd?”
spurði ókunnur piltur Petru
Baldursdóttur þegar hún sté
inn í sjoppuna við hlið
Stjörnubíós. Ökukappinn Jón
R. Ragnarsson var að lesa
stjörnuspána í Vikunni og
þótti tilvalið að spyrja að-
komumeyna. Petra svaraði að
bragði að hún væri í steingeit-
inni sem var einmitt merki
Jóns og þegar betur var að
gáð reyndust þau eiga sama
afmælisdag, 12. janúar. Það
var ekki að sökum að spyrja,
nokkrum dögum seinna voru
þau farin að hittast daglega.
Þann 13. október 1962 lá leið
þeirra síðan upp að altarinu
en Jón hafði fengið undan-
þágu til að giftast því hann var
aðeins sautján ára gamall.
Petra var tveimur árum eldri,
nítján ára. Sumir höfðu ótrú á
að hjónaband, sem stofnað
væri til þrettánda dag ein-
hvers mánaðar, myndi bless-
ast en hjónin segja þrettán
vera góða tölu fyrir þau.
GUDMUNDUR J.
GUÐMUNDSSON OG
ELÍN TORFADÓTTIR
Það var snjóbolti sem var að-
dragandinn að sambandi
verkalýðsleiðtogans Guð-
mundar Jaka og konu hans,
Elínar. Þau gengu í sama
barnaskóla en það var ekki
fyrr en í gagnfræðaskóla að
Guðmundur henti hinum ör-
lagaríka snjóbolta i Elfnu. Hún
svaraði fyrir sig og fljótlega
eftir það fóru þau að vera
saman. Guðmundur segir að
hann hafi gjóað augunum við
og við til Elínar og veitt því at-
hygli að því var ekki illa tekið.
Því fór sem fór. Guðmundur
og Elin giftu sig 3. júlí 1948
hjá borgardómara. Brúð-
kaupsferðin var rútuferð til
Þingvalla, þar sem' þau borð-
uðu saman góða máltið, gistu
á Valhöll eina nótt og tóku svo
rútuna í bæinn daginn eftir.
SIGURJÓN PÉTURSSON
OG RAGNA
BRYNJARSDÓTTIR
Margar ástarsögurnar gerast
á sjúkrahúsum og ástarsaga
Sigurjóns Péturssonar borgar-
fulltrúa og konu hans, Rögnu
Brynjarsdóttur, hófst einmitt á
sjúkrahúsi. Sigurjón lá veikur
af berklum og sjúkraliðinn
Ragna færði honum mat á
bakka. Sjúkralegan varði í eitt
ár og á þeim tíma tókust góð
kynni milli Sigurjóns og
Rögnu. Á haustdögum var
Sigurjón orðinn nógu góður til
að fá að skreppa á gömlu
dansana í Þórskaffi og með
honum í för var einmitt
Ragna. Það var á þessu balli
að þeim varð Ijóst hvert
stefndi og þau líta á þetta
kvöld sem upphafið að sam-
bandi þeirra. Mánuði síðar
gekkst Sigurjón undir lungna-
aögerð og var fjarlægt úr hon-
um eitt rif en hann fékk konu f
staðinn, eins og hann segir.
Hringana settu þau upp 17.
júní 1961 og 11. nóvember
sama ár heimsóttu þau dóm-
ara og létu pússa sig saman.
Um kvöldið fóru þau út að
borða til hátíðabrigða.
16VIKAN 12.TBL. 1993