Vikan


Vikan - 16.06.1993, Blaðsíða 14

Vikan - 16.06.1993, Blaðsíða 14
Þá er komið aö því að bragða á brúðartertunni. Arnar Guömundsson Hrafnkelssonar vildi ólmur komast til mömmu þegar hún kom í veisluna aö lokinni myndatöku. Gummi og Halldór, sem nú er oröinn mágur hans, þóttu ekki mjög lið- iækir viö skreytingu á salnum en betri en enginn þegar kom aö tækni- málunum. sjálfur og það kostar blóð, svita og tár. Valdís og Gummi völdu síðari kostinn og því var unnið dag og nótt í eldhúsinu heima hjá foreldrum Valdísar síðustu dagana fyrir brúðkaup- ið. Pinnamaturinn var ákaflega górnsætur að mati sælkera Vikunnar og tíma ættkvenna Valdísar vel varið í undirbún- ing hans. Meðal þess sem var á boðstólum voru skinkurúllur með aspas og rjómaosti, döðl- ur fylltar með gráðaostmauki og litlar kjötbollur með súrsætri sósu. Þessu góðgæti var svo skolað niður með ítölsku Asti Gancia freyðivíni sem kitlar bragðlaukana svo um munar. Aö sjálfsögöu fengu brúöhjónin fyrst allra aó bragða á krás- unum. Allur pinnamaturinn var heimatilbúinn. Þrjár mínútur í þrjú, Valdís vill ólm drífa í því aö gifta sig en Pálmi prestur róar hana niöur og gefur gestum tækifæri til þess aö setjast i sæti sín. Brúðartertan var sömuleiðis heimatilbúin, bökuð í eldhús- inu á bernskuheimili Valdísar. Það er ekki amalegt að gifta sig inn í fjölskyldu þvílíkra myndarkvenna! TÖFRASTUNDIN NÁLGAST Þegar allur undirbúningur er að baki, veisluföng komin á sinn stað, hár brúðarinnar komið í skorður og andlits- farðinn orðinn óaðfinnanleg- ur fer spennan að magnast. Brúðguminn og faðir hans mæta f kirkjuna og taka á móti gestum á hefðbundinn hátt, sitja uppi við altarið, standa upp og hneigja sig þegar gestir koma í kirkjuna. Á meðan leggja brúðurin og faðir hennar lokahönd á und- irbúning hennar og stíga inn í brúðarbílinn fagurlega skreyttan. Gestirnir tínast inn f kirkjuna, þeir allra síðustu hlaupa síðasta spölinn til að verða á undan brúðinni. Svo er öllu stressi lokið. Prestur- inn segir nokkur uppörvandi orð við brúðina í anddyrinu áður en hann gengur inn gólfið, kemur sér fyrir uppi við altarið og gefur organ- leikaranum merki um að byrja á brúðarmarsinum. Þá upphefst tignarlegasta and- artak dagsins. Brúðurin og faðir hennar sigla inn gólfið og gamlar frænkur átta sig á því að þarna fer litla rósin þeirra, orðin kona. í brúðkaupi Guðmundar og Valdísar gekk allt upp. Veðr- ið var fállegt, sólin skein en örlítill næðingur var uppi á hæðinni þar sem Kópavogs- kirkja er. Engar uppákomur urðu sem komu brúðhjónun- um úr jafnvægi, Arnar sonur þeirra varð að vísu aðeins að láta Ijós sitt skína en hann var í „gjörgæslu" hjá Halldóri bróður Valdísar. Arnar lét að vísu ekki verða af því að segja uppáhalds- setninguna sína, „áfram Val- ur“, en lét samt nokkur skondin ummæli flakka. Séra Pálmi flutti fallega ræðu um vinskapinn og keppnina á velli lífsins þar sem tveir standa oftar en ekki í markinu! Mjög falleg og skemmtileg ræða eins og Pálma er von og vísa. Er at- höfninni lauk var hrísgrjónum sáldrað yfir brúðhjónin og þau hurfu inn í brúðarbílinn og brunuðu á braut. Eftir Ijósmyndatöku birtust brúðhjónin í Breiðfirðingabúð þar sem þau voru hyllt og skáluðu við gestina í freyði- víni. Þau fengu svo heldur en ekki hlýlegar móttökur frá syni sínum, Arnari. Eftir að gestir höfðu gætt sér á mat og drykk var komið að kaff- inu og brúðartertunni sem eins og áður segir var heimabökuð. Gestir gerðu henni góö skil og kvöddu sfðan brúðhjónin sem héldu upp í sumarbústað þar sem þau dvöldu fyrstu tíu hveiti- brauðsdagana, fyrir utan laugardaginn 5. júní er þau voru viðstödd brúðkaup Geirs Sveinssonar og Guð- rúnar Arnarsdóttur. Þau voru í sömu sporum og Gummi og Valdís, höfðu ekki haft tíma til þess að gifta sig fyrir handboltakeppnum síðustu árin. □ 14VIKAN 12. TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.