Vikan


Vikan - 20.05.1995, Side 32

Vikan - 20.05.1995, Side 32
HUÐ OG HEILSA Appelsínuhúð „cellulite" mörgum þungum áhyggjum eða veldur konum en hún hefur, eins og nafnið gefur til kynna, svipaða áferð og yfir- borð appelsínu-það er með inndregnum smáblettum. Þessu fyrirbæri hefur einnig verið líkt við nálapúða. Orsakir appelsínuhúðar eru meðal annarra fitu-, eit- urefna- og vökvasöfnun ásamt slæmri blóðrás í húð- Halvorsen frá Pierre Fabre fyrirtækinu og átti blaðamað- ur Vikunnar við hana stutt spjall. Elisabeth var spurð að því hvað væri það nýjasta sem komið hefði fram um appels- ínuhúð. „Við hjá Pierre Fabre höf- um komist að því að myndun á appelsínuhúð er mikið til háð tíðahringnum11 segir Elisabeth. „Appelsínuhúðin myndast að mestu leyti sam- hliða hormónaframleiðslu líkamans sem er aðalatriðið. Við komumst að því að á sama tíma og egglos verður víkka æðar vegna áhrifa est- NÝJAR STAÐREYNDIR OG LAUSNIR: APPELSÍNUHÚÐ HÁÐ TÍÐAHRINGNUM TEXTI OG UÓSM.: ÞORSTEINN ERLINGSSON Elisabeth frá Pierre Fabre ásamt Eybjörgu Einardótt- ur fulltrúa umboðsaö- ilans, H. Jónssonar hf. inni. Appelsínuhúð myndast einkanlega á læra- og rass- svæðinu en getur þó einnig verið annarsstaðar á líkam- anum. Pierre Fabre Dermo-Cos- métique var fyrsta fyrirtækið í heiminum sem framleiddi efni gegn appelsínuhúð sem voru Elancyl-vörurnar. Marg- ir þekkja eflaust þetta vöru- merki en vörurnar komu fyrst fram á sjónarsviðið árið 1971 og hafa gefist svo vel að þær eru enn notaðar reglu- lega af fjölda kvenna um heim allan til að losna við þessi líkamslýti. Elancyl vörurnar eru að sjálfsögðu í stöðugri þróun og bættar eftir því sem vitn- eskja manna og reynsla eykst. Miklum peningum hef- ur verið varið til að rannsaka hvernig appelsínuhúð mynd- ast og hvað hefur áhrif á að hún hverfi. Því hefur fyrir- tækið verið leiðandi á þessu sviði. Nýlega kom til landsins Elisabeth 'or a fírm, profíled body Slimuloiing mussogc: 10III (OKIMI Lotalised íoily doposíls: HPH SPECIIIC rógens sem þýðir að meiri vökvi fer úr æðunum og inn í vefina en ella. Sama má segja um fituna. Á tímabilinu áður en egglos verður er líkami konunnar að undirbúa sig undir barnsburð og safnar því aukafitu í fitu- frumurnar. Þarna eru því tvö megin mál, í þessu sambandi, á ferðinni það er vökvasöfnun annars vegar og fitusöfnun hins vegar. Ef konan verður ekki barnshafandi hefjast blæðingarnar og eiga vefirn- ir, sem tóku til sín fituna og vökvann, að öllu jöfnu að skila þessum efnum aftur en það gera þeir ekki hjá sum- um konum og appelsínuhúð myndast. Þetta ferli á sér stað mán- aðarlega, ár eftir ár, megnið af ævi konunnar-verði hún ekki því oftar ófrísk. Vandamálið verður til þeg- ar líkaminn missir smám saman hæfni sína til að skila aftur vökvanum og fitunni til baka sem þá safnast í vef- ina. Vökvan- um fylgir sú tilfinning að konunni finnst hún þrútin og þung um átta dögum fyrir tíðir og safnast hann þá að- allega á Diffose lolly deposits: mjaðmirnar, lærin og mag- ann-en þó víðar. Þegar klipið er í húðina á þessum svæð- um sýnist hún þrútin og Ijós- rauðleit. Það er erfitt að sjá þessar breytingar en við- komandi finnur greinilega fyrir þeim. Fitan safnast á þá staði sem verða fyrir áhrifum barnsburðar það er á mag- ann, mjaðmirnar, rasskinn- arnar og stundum innanvert á lærin þannig að fitusöfnun- in er staðbundnari en söfnun vökvans. Fitusöfnunina er hægt að sjá mjög greinilega og verður yfirborð húðarinnar á þessum stöðum útlits eins og börkur á appelsínu. Þetta sést enn betur sé húðin klipin. Hún virðist einnig laus í sér og ójöfn. Það má því segja að tvær gerðir séu til af appelsínu- húð; það er sú sem myndast vegna auka vökva og hin sem myndast vegna auka fitu." TVÆR LAUSNIR „Pierre Fabre fyrirtækið hófst því handa við að þróa tvær gerðir af Elancyl vörum, unnum úr þekktum lækn- ingajurtum, fyrir sitt hvorn þátt þessa vandamáls í staðin fyrir eina áður. Annars vegar áburð gegn vökvasöfnuninni sem nefnist Cellutlite Control Formula og hins vegar gel gegn fitusöfn- uninni sem nefnist Intensive Cellulite Formula. Þessi efni eru notuð eftir bað í um mánaðarskeið. Eft- ir þann tima er í framhaldi gott, fyrir þær konur sem eiga mikinn vanda til að fá appelsínuhúð, að nota Cellulite Control Formula í átta daga fyrir blæðingar þar sem uppsöfnun vökva er mest á þeim tíma. Sá með- ferðartími er algert lágmark ef um upphafsmeðferð er að ræða. Eftir ráðlagðan meðferðar- tíma með Cellutlite Control Formula á konunni að finn- ast hún laus við allan þrota og léttari. Þessi áburður er þannig hannaður að hann er einnig nærandi og mýkjandi fyrir húðina og getur því komið í stað hefðbundinna rakakrema. Intensive Cellulite For- mula gelið er sterkara efni en áburðurinn gegn vökva- söfnuninni og er það notað um tveggja mánaða skeið ef verið er að nota gelið í fyrsta sinn en annars ( einn mán- uð. Gelið er aðeins borið á þá staði þar sem fitusöfnun- in á sér stað. Það inniheldur um 5% af svo kölluðu virkj- uðu koffeini, sem vinnur gegn fitunni og önnur efni sem örva blóðrásina og byggja upp húðina á ný eins og vítamín-en slík uppbygg- ing er nauðsynlegur þáttur til að fyrirbyggja að appelsínu- húðin komi aftur. Niðurstöður læknisfræði- legra rannsókna hafa leitt í Ijós að með fjögurra vikna notkun Cellutlite Control For- mula eykst blóðstreymi um háræðanet húðarinnar um 23% sem þýðir að vökvi hreinsast betur út úr vefjun- um og hjá 80% þeirra sem tóku þátt í rannsókninni minnkaði ummál um 2,5 sm. Hvað varðar Intensive Cellulite Formula hafa rann- sóknir sýnt að appelsínuhúð minnkar og hverfur í 80% til- vika og minnkað ummál um allt að 3,5 sm í 71% tilvika ásamt því að húðin sýndist stinnari hjá 68% þeirra sem tóku þátt í rannsókninni. Þess má að lokum geta að árangur af notkun beggja þessara efna sést þetur með málbandi en á vigtinni enda vandamálið þess eðlis. Húð- in verður stinnari og unglegri en áður og appelsínubarkar- útlitið hverfur“ segir Elisa- beth að lokum. Til viðbótar við þessi tvö efni er mælt með nokkrum öðrum þáttum til notkunar samhliða eins og til dæmis Toni Compact nuddburstan- um en nudd með honum mýkir vefina, örvar blóð- streymið og eykur þar með áhrif meðferðarefnanna, Firming Body Cream sem styrkir collagen- og elastín- net húðarinnar, Firmig Bust Gel sem bætir lögun brjóst- anna, þéttir húðþekjuna og gerir þau stinnari og ung- legri, Specific Vergetures sem hindrar og dregur úr húðsliti af ýmsum orsökum, Toning Shower Gel, mýkj- andi hreinsigel sem gerir húðina meðtækilegri fyrir meðferðarvörunum en það sama má segja um Beautify- ing Body Scrub sem er mýkj- andi hreinsigel með kornum í sem fjarlægir dauðar húðfr- umur og örvar endurnýjun þeirra. □

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.