Vikan - 20.05.1995, Blaðsíða 35
bárust um 20 leikþættir í
keppnina.
SIGTRYGGUR VANN
OG GÍMALDIN
Tveir leikþættir voru valdir
úr þessum 20 til uppfærslu
fyrir Stúdentaleikhúsið. Ann-
ars vegar var það „Sú kalda
ást sem höfundarnir
gleyma“, eftir Sigtrygg
Magnason, 21 árs Þingeying
og íslenskunema við Há-
skóla íslands. Leikþáttur
hans var upphaflega hluti af
verkefni í náminu en að mati
höfundarins er leikritun
skemmtilegasta tjáningar-
formið. í stuttu viðtali við Sig-
trygg, sem birtist í sýningar-
skrá, er hann spurður hvern-
ig honum þyki að sjá eigið
leikrit á sviði. Hann svarar:
....Mér líður bara eins og
guði.“
Höfundur að hinum leik-
þættinum, „Beygluskeiðar-
þætti“, velur að nefna sig
Gímaldin. Þáttur hans er
fjarska frumlegur en þó jarð-
bundnari en „Sú kalda ást
sem höfundarnir gleyrna".
Saman mynda bæði leik-
verkin eina heild; „Beyglaða
ást“. Gímaldin hefur ekki
mörg orð um sjálfan sig í
sýningarskránni en hefur að
hugsjón að auka hlut góðra,
íslenskra bókmennta í þjóð-
félaginu þar sem sé „fullt af
erlendu rusli“.
Það var Benedikt Erlings-
son sem leikstýrði „Beyglaðri
ást“ og alls munu um 400
manns hafa komiö á sýning-
arnar.
LEIKARAR ÚR ÝMSUM
GREINUM
Við uppsetningu á „Beygl-
aðri ást“ koma allmargir við
sögu, flestir stúdentar við Há-
skólann en einnig útskrifað
fólk þaðan og fleiri. Leikar-
arnir koma úr ýmsum grein-
um innan skólans og má þar
nefna líffræði, bókmennta-
fræði, hjúkrunarfræði, félags-
fræði, ensku, lögfræði, mál-
vísindi, jarðfræði, íslensku,
stjórnmálafræði og sagn-
fræði. Og það eru ekki að-
eins íslendingar sem stíga á
stokk heldur eru meðal leik-
enda bandarísk stúlka,
Kendra J. Willson, og sænsk-
ur „fóstri“, Mats Jonsson.
Ég mælti mér mót við
Kendru, Mats, Sigríði Krist-
insdóttur og Jónu Valborgu
Árnadóttur, einn íslensku leik-
endanna, fyrir utan aðalbygg-
ingu Háskóla íslands á vor-
dögum. Jabb, vordögum! Sól
skein í heiði svo við settumst
út á tröppurnar rétt hjá þeim
félögum Sæmundi og seln-
um. Þar var tekið til við spjall.
KENDRAJ.
WILLSON:
LÉKÍ
NJÁLU Í
HARVARD
Kendra J. Willson er
frá Ames í lowa f
Bandaríkjunum. Hún
kynntist íslenskum fræðum
þegar hún nam norræn
fræði við Harvard-háskóla
og er hingað komin til þess
að rannsaka tónlistarlegan
bakgrunn rímna. „Ég er að
gera tilraun til þess að beita
málvísindalegum kenningum
til þess að lýsa tónlist rímn-
anna með málfræðilegum
hætti,“ segir Kendra. Enn
sem komið er hefur það víst
ekki gengið alltof vel en hún
mun þó halda rannsóknum
sínum áfram enn um sinn.
Kendra mun þó að öllum lík-
indum halda aftur til Banda-
ríkjanna að ári.
„Ég byrjaði í stærðfræði
en langaði síðan að reyna
eitthvað annað. Móðir mín
kunni að tala sænsku eftir að
hafa verið í Stokkhólmi með-
an afi var að læra þar veður-
fræði. Mig langaði til að læra
tungumálið og þannig kvikn-
aði áhugi minn á norrænum
fræðum," segir Kendra.
Þrátt fyrir að Mats, sem er
Svíi, og Kendra hafi bæði
Kendra
J. Will-
son kom
frá lowa
í Banda-
ríkjunum
tilnáms
á íslandi.
Hreinsilínan frá
LANCÖME
minnkar til þess
að hún passi í
ferðatöskuna þína
Þú færð 100 ml. hreinsimjólk eða
andlitsvatn (Galatée Douceur, Galatéis,
Tonique Douceur, Tonique Fraicheur),
þegar þú kaupir 400 ml. stærð af
hreinsimjólk eða andlitsvatni frá
LANCÖME.
Komdu á næsta LANCÖME útsölustað
og notfærðu þér þetta stórkostlega tilboð
á meðan birgðir endast!
_____LANCÖME^^
P A R I S
5. TBL. 1995 VIKAN 35
NAMSFOLK