Vikan - 25.06.1998, Side 4
Seljavegur 2,
Sími: 515 5500
Fax:515 5599
Áskriftarsími:
515 5555
Stjórnarformaður
Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri
Steinar J. Lúðvíksson
Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri
Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512
Ritstjóri
Sigríður Arnardóttir
Simi: 515 5582
Vikan@frodi.is
Ritstjórafulltrúi
Anna Kristine Magnúsdóttir
Sími: 515 5637
Anna@frodi.is
Blaðamaður
Þórunn Stefánsdóttir
Sími: 515 5653
Thorunn@frodi.is
Auglýsingastjóri
Björg Þórðardóttir
Sími: 515 5628
Vikanaugl@frodi.is
Ljósmyndarar
Bragi Þór Jósefsson
Gisli Egill Hrafnsson
Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Grafískir hönnuðir
Ivan Burkni Ivansson
Ómar Örn Sigurðsson
/e&cmiu..
Það kemur fyrir þegar lesendur Vikunn-
ar hafa samband við mig að þeir rabbi al-
mennt um lífið og tilveruna í framhaldi af
lestri blaðsins. Greinin um skilnaðarmark-
aðinn svokallaða, í síðasta tölublaði, varð
t.d. tilefni umræðu um forgangsatriði í lífi
okkar. Leggjum við næga rækt við það
sem skiptir okkur mestu máli þegar grannt
er skoðað? Hver og einn gerir örugglega
sitt besta en margir geta ábyggilega samt
tekið undir það með mér að við erum á
svo miklu spani við að sinna öllum okkar
hlutverkum að það gleymist oft að njóta
líðandi stundar. Við erum að stefna að
einhverju, búa í haginn fyrir framtíðina, koma okkur áfram í lífinu og svo framvegis en
lífsspekin Carpe Diern - gríptu daginn, mætir afgangi. Sumarblíðan hefur gert mig enn
ákveðnari í því að reyna að vera í deginum í dag. Eg ætla að veita mér einhverja smá
upplyftingu á hverjum degi. Lifa núna, en stefna ekki bara að einhverju seinna meir.
Hvernig væri að við tækjum t.d. Dani og Spánverja okkur til fyrirmyndar að einu
leyti; þeir halda smá hátíð hvern dag. Þeir eru frægir fyrir að kunna að slaka á og
„hygge sig” eða hafa litla síestu hvern dag. Hvers vegna að geyma það að gera sér
glaðan dag þar til á morgun eða hinn?
Margir smábarnaforeldrar vita að það er „núið” sem skiptir máli, börnin verða ekki
lítil aftur. Og tvíburasysturnar á tískusíðu Vikunnar, bls. 22, eru samstiga í því að njóta
dagsins í dag. Önnur gengur með barn en hin er nýbúin að eiga. Þær taka þetta með
stæl, eru smart í mömmuhlutverkum sínum og njóta þessa tímabils.
Fleiri konur, sem njóta lífsins, eru á síðum Vikunnar. Það er t.d. upplífgandi að kynn-
ast glæsikonunni Salome Þorkelsdóttur, fyrrum forseta Alþingis, sem býr yfir svo
mörgum hugmyndum og mikilli orku, þrátt fyrir að hafa verið hafnað í pólitík sökum
aldurs, eins og hún orðar það. Salome er búin að fá nóg af æskudýrkun en nýtir
reynslu sína og þekkingu til margvíslegra starfa. Hún heldur líka litla fjölskylduhátíð í
blómahafinu sínu í Mosfellsdalnum um hverja helgi og nýtur þess að rækta sambandið
við fjölskyldu sína. En lífið er ekki dans á rósum og lífsreynslusagan á bls. 14 er frá-
sögn konu sem missti mann sinn snögglega og sá engan tilgang með lífinu í langan tíma
á eftir. Hún segir frá því hvernig hún fann fegurðina í hversdagsleikanum aftur. Já, við
vitum aldrei hvað gerist á morgun svo það er eins gott að gera það besta úr líðandi
stund.
Njóttu Vikunnar
Verð í lausasölu
Sigríður Arnardóttir ritstjóri
Kr. 399,-.
Verð í áskrift
Anna Kristine Þórunn
Magnúsdóttir Stefánsdóttir
ritstjóraf ulltrúi blaðamaður
Ómar Örn
Sigurðsson
útlitsteiknari
Björg
Þórðardóttir
auglýsingastjóri
Kr. 329,-. Pr eintak
Ef greitt er með greiðslukorti
Kr. 297,-. Pr eintak
Unnið í Prentsmiðjunni Odda
hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
Símsvari Vikunnar
S: 515 5690
Tekið er við upplýsingum og
hugmyndum um efni allan
sólarhringinn.
Vinsamlegast látið nafn og
símanúmer fylgja erindinu.