Vikan - 25.06.1998, Síða 34
I • Þú átt á hættu að dansa eins og fífl
ef þú drekkur úr þessariflösku.
6 Neysla áfengis getur orðið þess
valdandi að þú segir sömu leiðin-
legu söguna aftur og aftur, þar til
vini þína langar mest til að berja
þig-
új • Neysla áfengis getur orðið til þess
að þú “þegir þlutina þvona”.
• Neysla áfengis getur komið þeirri
ranghugmynd inn hjá þér að fyrr
verandi elskhugar þrái að heyra í
þér klukkan fjögur að morgni.
• Neysla áfengis getur orðið þess
valdandi að þú hafir ekki hug-
mynd um hvar nærbuxurnar þínar
séu niðurkomnar.
• Neysla áfengis getur orðið til þess
að þegar þú opnar augun morg
uninn eftir sjáirðu eitthvað sem
vekur þér ótta (eitthvað, sem þú
getur ómögulega munað hvað
heitir).
• Neysla áfengis getur valdið því að
þú teljir þig miklu laglegri, sterk
byggðari og gáfaðri en þann sem
ætlar að berja þig.
Nú er verið að hanna viðvörunar-
merki í Bandaríkjunum til að
setja á áfengisflöskur. Ljósrit af
nokkrum tillögum fóru á flakk
svo hér má sjá sýnishorn af því
sem Bandaríkjamenn ætla
anlega að setja á allar vínflöskur:
Lesendur hafa orðið
Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins skrifar
I grein um Krossinn í síðustu Viku
koma fram staðlausir stafir. Það er tvennt
sem mig langar til að leiðrétta, sem er
bæði rangt og meiðandi. í greininni er
sagt að „í Krossinum er konum uppálagt
að sleppa skólagöngu”. Þetta eru hrein
ósannindi. Hið öndverða er sannleikur-
inn. Við hvetjum alla, bæði konur og
karla, sem hafa til þess möguleika og
getu, að fara í nám. Að halda öðru fram
er móðgun við það vel menntaða og hæfa
fólk sem er í Krossinum. Bæði þá sem
hafa lokið háskólanámi og fagnámi.
Þekking og menntun er undirstaða fram-
fara. Menn verða með einum eða öðrum
hætti að menntast til að hafa fótfestu í nú-
tímasamfélagi. Ég hef oftar en einu sinni
haft afskipti af ungmennum sem hafa
verið að gefast upp í námi og hvatt þau til
að halda áfram. Nú á sunnudaginn var
vorum við að heiðra sérstaklega tvær
ungar konur sem höfðu báðar verið að
útskrifast með góðum vitnisburði úr
kröfuhörðu námi.
Annað atriði sem mig langar til að
leiðrétta er fullyrðingin um að Kross-
inn sé karlrembusamfélag. Það er
einnig rangt. Það er óvíða á byggðu
bóli sem konur eru metnar meir en i
Krossinum. Við trúum því staðfast-
lega að í Kristi sé hvorki karl eða
kona, eins og postulinn Páll segir. í
Krossinum njóta konur fulls jafnrétt-
is á við karla, bæði í orði og verki. Við
elskum konurnar okkar og skiljum
mætavel að hlutverk þeirra og fram-
lag hefur síst minna gildi en karl-
mannsins.
Megi góður Guð varðveita starfs-
menn og lesendur Vikunnar fyrir
launsmjaðri.
Gunnar Þorsteinsson.
Hvaða merki passa best saman?
Sími: 905-2020
‘fSörnos
'Z>,r
66.50 mín
34