Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 14
Þegar vinnudegi Huldu
lýkur taka sveitarstjórnar-
málin gjarnan við. Hún situr
í sveitarstjórn Aðaldæla-
hrepps fyrir kosningafélagið
Framtíðarbandalagið. „Við
vildum breyttar áherslur í
umfjöllun um sveitarstjórn-
armál og fengum inn tvo
menn af fimm sem sæti eiga
í sveitarstjórninni,“ segir
Hulda. „Það er ekki hollt
fyrir bandalag eins og okkar
að vera með meirihluta í
fyrstu atrennu, því við verð-
um að fá tíma til að vera
bæði áhorfendur og þátttak-
endur þar sem við erum
byrjendur í þessum mál-
um.“
Ertu pólitísk? „Ég hef
alltaf verið að leita mér að
stjórnmálaflokki sem ég
gæti tilheyrt en ekki fundið
þann flokk ennþá sem ég
gæti fullkomlega rekist í.
Kannski gerir það enginn,
en ég hef kosið að vera
óflokksbundin. Ég sé eitt-
hvað gott og slæmt við alla
flokka og meðan ég hef
ekki fundið rétta flokkinn
ætla ég bara að vera í Fram-
tíðarbandalaginu sem er
þverpólitískt félag. Ég við-
urkenni þó að ég er meira
til vinstri en hægri. Við
stöndum vel saman, sem
mér þykir mikilvægt, og
mér finnst hafa sýnt sig í
prófkjörum að undanförnu
að fólk er að berjast of mik-
ið innbyrðis sem mér líkar
Hulda Ragnheiður með
sanistarfskonum sínum á
saumastofunni Prýði. Fyr-
ir ári síðan sat Huida og
saumaði íslenska hátíðar-
búninginn fyrir herra en í
dag hefur hún vart tíma
til að sitja við sauma.
ekki. Ég er lítið
fyrir rifrildi þótt
ég sé ákveðin og
ég vil fá niður-
stöðu með því að
ræða málin. Ég
vil fá skýrt já eða
skýrt nei því ég
þoli ekkert
humm. Ég er
þreytt á því fólki
sem bölsótast yfir
öllu en leggur
ekkert af mörk-
um sjálft. Ætlast
bara til þess að
aðrir sjái um að
breyta hlutun-
um.“
En hvers vegna
skildi Hulda hafa
verið beðin að
ganga til liðs við
Framtíðarbanda-
lagið? „Sennilega
vegna þess að
fólk hafði frétt af ákveðnum
skoðunum mínum. Ég taldi
hins vegar að ég væri búin
að skipta mér nógu mikið af
hlutunum og ætlaði ekki að
bæta þessu á stundaskrána."
Hulda talar um að það
komi sér á óvart hversu
skemmtileg henni þyki
sveitarstjórnarmálin en þau
séu tímafrek, eigi að setja
sig vel inn í hlutina. „En
þetta er líka gefandi," segir
hún ...“og maður fær mjög
mikla fræðslu, t.d. um ýms-
ar reglugerðir, sem gott er
að vera inni í til að geta
Prýði tekur að sér hin ýmsu verkefni. Hér er
Hulda með afrakstur Prýðiskvenna, glæsilega
flíspeysu, sem þær sauma fyrir vörumerkið
Nikita sem Týndi Hlekkurinn í Reykjavík selur.
verið virkur í umræðunni
um ýmis mál. Ég hef alltaf
tekið mikinn þátt í félags-
málum og fundið hjá mér
hvöt til að blanda mér inn í
þá umræðu sem er í gangi
en þó fyrst og fremst til að
fræðast. Ég lít á þetta starf
sem skóla, bæði um það
sem var og það sem er og
þarf að breyta til þess að
við séum sátt við okkar
samfélag."
Gustar af þér? „Ég veit
það ekki. Það er enginn sér-
stakur hávaði í kringum mig
en fólk verður vart við mig
ef ég er á svæðinu. Ég er
engin kvenréttindakona ef
spurt er um það og ég er
ljóst og leynt mjög á móti
kvenréttindabaráttu. Mér
finnst hún neikvæð. Að
sjálfsögðu eiga allir að
vinna á jöfnum grunni hvort
sem þeir líkjast meira
Adam eða Evu. Ég er
virkilega ósátt við um-
fjöllun um jafnrétti, inn-
an gæsalappa, því mér
finnst það oft vera bar-
átta fyrir forréttindum."
Nú vinnurðu á mikl-
um kvennavinnustað,
ræðið þið konurnar ekk-
ert um pólitík? „Mjög
lítið og ég blanda ekkert
saman þessum tveimur
heimum mínum. Kon-
urnar heyra mig nánast
aldrei tala um pólitík.
Það eina sem þær merk-
ja af þeim vettvangi er
að ef ég kem máluð og í
dragt í vinnuna þá er ég
annað hvort að fara á
fund eða á námskeið.“
Þykir þér gaman að
hafa þig til fyrir fundi?
„Ég reyni að haga segl-
um eftir vindi og er sjálf
öruggari með mig ef ég
lít vel út. Þar af leiðandi
hef ég mig til. Það er
fyrir mig sjálfa gert en
ekki aðra.“
Þegar Hulda er spurð að
því hvort hún stefni lengra í
pólitík en í sveitarstjórnar-
málin svarar hún um hæl:
„Ég er ekki að fara á þing.
Ég hefði hins vegar áhuga á
að taka þátt í uppbyggingu
og starfi sameinaðs sveitar-
félags, sem af verður eftir
nokkur ár, í hvaða formi
sem það verður. Þetta er
minn heimur, heimur sem
mér líkar og mig langar
ekki að breyta neitt stór-
kostlega.“
14 Vikan