Vikan


Vikan - 01.03.1999, Side 30

Vikan - 01.03.1999, Side 30
Texti: Steingerður Steinarsdóttir Myndir: Bragi Þ. Jósefsson Starfsemi G i g t a ------- --------- Mörg tengjum við gigt fyrst og fremst við elli og sjáum fyrir okkur gamalt fólk að staulast við staf upp og niður stiga. Gigtarsjúk- dómar hrjá hins vegar fólk á öllum aldri, jafn- vel börn, og eru að verða eitt algengasta heilsuvandamál þjóð- arinnar. Einkum hefur slitgigtartilfellum farið fjölgandi með aukinni þátttöku almennings í íþróttum með tilheyr- andi meiðslum. I stöð Gigtarfélags íslands er stöðugur straumur fólks út og inn allan daginn. Emil Thórodd- sen, framkvæmdastjóri félagsins, segir að sennilega fari milli sjö og átta hundruð manns þar um á hverjum degi. Talan er ekki óraun- hæf þegar hugsað er til þess að einn af hverj- um fimm íslendingum þjáist af gigt og 3.700 félagar eru í Gigtarfé- laginu. Félagið rekur fjölbreytta starfsemi á tveimur hæðum við Ármúla. Á neðri hæð- inni eru tveir leik- fimisalir, tækjasalur og fundaraðstaða, í efra, eins og starfsfólk nefn- ir það, er sjúkra- og iðjuþjálfun og lækna- stofur. Gigt er í raun margir sjúkdómar í bandvefj- um líkamans og sársauka- fullir kvillar í stoðkerfinu. Gigtarsjúkdómar eru hátt á annað hundrað en helstu tegundir eru liðagigt (ikt- sýki), hrygggigt, slitgigt, beinþynning, rauðir úlfar og vefjagigt. Markmið Gigtar- félags íslands er að sögn Emils að bæta líðan fólks og hjálpa því að byggja sig upp. „Að lifa með gigt er að lifa við stöðuga verki. Sjálf- ur er ég ekki gigtarsjúkling- ur en því var lýst þannig fyrir mér, þegar ég byrjaði að vinna hér, að það væri eins og að búa við stöðugan tannverk að vera með gigt. Gigtarsjúklingar er al- mennt mjög duglegt fólk. Margir þeirra vinna þrátt fyrir sjúk- dóminn og bjarga sér lengi einir inni á heim- ilum sínum þrátt fyrir þær takmarkanir sem sjúkdómurinn setur þeim. Það þarf sterkt fólk til að geta lifað með gigt því gigtarsjúk- lingur hreyfir sig ekki án verkja. Ég tel að gigt sé eitt best varðveitta leyndar- mál samfélagsins því al- mennt ræðum við ekki um vandann en ég tel að ef einhver væri beð- inn að nefna gigtarsjúk- ling þyrftu fæstir að leita langt. Bróðir, syst- ir, faðir eða móðir eru mjög líklega gigtarsjúk- lingar annars sleppa ættir misvel. Sumar ætt- ir virðast lausar við gigt. Fleiri konur en karlar þjást af gigt þótt það sé nokkuð mis- munandi eftir sjúkdóm- um, t.d. eru fleiri konur með vefjagigt en karlar, aftur á móti snýst hlut- fallið við þegar um hrygggigt er að ræða. Hugsanlega stafar þetta einnig af því að konur viðurkenna frekar heilsu- vandamál sín og eru ófeimnari við að leita sér hjálpar. Gigtarfélag íslands Ingibjörg K. Jónsdóttir: „Ég hef veriö með slitgigt í tíu ár“ Ingibjörg K. Jónsdóttir er með slitgigt og stundar líkamsþjálfun hjá Margréti. Hún segir leikfimina halda sér í formi. „Þessi leikfimi er mér mátulega erfið. Ég var í mörg ár í venjulegri leikfimi en þetta hentar betur. Ég hef líka ver- ið í vatnsleikfimi en vatnið gerir allar hreyfingar auðveldari. Mér er nauð- synlegt að halda mér í einhverju formi og ég finn, ef ég hætti um tíma, að ég stirðna upp. Ég hef verið með slitgigt í tíu ár og finn að einkennin fara versn- andi. Ég er ánægð með þjálfunina hér en finnst vanta ögn fleiri tæki í tækja- salinn. Ég finn fyrir stöðugum verkj- um við hreyfingu en ef áreynslan er ekki of mikil gerir hún mér gott. Þægi- legast væri auðvitað að hætta að hrey- fa sig en þetta heldur mér gangandi.“ vill leitast við að fá umræðu um gigtarsjúkdóma upp á yfirborðið enda sýnir það sig að því meira sem fólk veit um sjúkdóminn þess lengur starfar það og bjarg- ar sér. Öll vinna með gigt er það sem kallast teymisvinna. Hér koma saman sjúkra- þjálfarar, iðjuþjálfarar og læknar. Hugsanlega má segja að starf félagsins hafi gengið í gegnum þrjú skeið. Það fyrsta var að safna fé og gefa ýmis tæki til grein- ingar á gigt, næst að stofna stöðina hér vegna þess að þá skorti einfaldlega svona aðstöðu og núna leggjum við áherslu á fræðslu og að koma til móts við skjólstæð- inga okkar í því að byggja sig upp. Oft greinist fólk seint og er lengi búið að vera að berjast við sjúk- dóminn og það kemur niður á félagslegum aðstæðum, af því leiðir streita og öll strei- ta setur sjúkdóminn á fleygiferð. Á Norðurlandi eystra og á Suðurlandi eru starfandi deildir í Gigtarfélaginu og sjálfshjálparhópar hafa ver- ið stofnaðir um hvern sjúk- dóm fyrir sig og hittast meðlimir og styðja hver annan. Vefjagigtarhópurinn er með símatíma þar sem fólk getur hringt inn og fræðst um sjúkdóminn af öðrum sjúklingum. Gigtar- félagið er með í bígerð fræðslusíma sem ætlunin er að hrinda í framkvæmd sem fyrst og þá verður hægt að hringja í hóp sérfræðinga hér og fá góð ráð.“ 30 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.