Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 32
Heimild: Cosmopolitan. Myndir: Eydís S. Luna E.
Persónuleikapróf
Ertu vinur vina þinna ?
Hvenær líður þér best? Er það þegar þú spjallar á rólegu nótunum við besta
vin þinn? Eða kannski þegar þú er miðpunkturinn í stórum hópi fólks?
Hvernig þú kemur fram við vini þína segir meira um þig en þig grunar.
Merkið við eitt
atriði í hverri
spurningu nema
annað sé
tekið fram.
inir þínir endur-
spegla persónuleika
þinn, væntingar þín-
ar til lífsins og samband þitt
við foreldra þína. Svaraðu
spurningunum sem hér fara
á eftir - það getur opnað
augu þín fyrir hvernig þú
getur gert samband þitt við
vini þína nánara og dýpra.
Q Þú og mamma þín eru
mjög nánar. Já eða nei.
J Hvað ert þú reiðubúin
að gera fyrir vinkonu þína?
(Merku við eins marga liði
og þú vilt)
a) Útvega henni vinnu á
vinnustaðnum þínum
b) Kynna hana fyrir kyn-
tröllinu bróður þínum
c) Kynna hana fyrir
öðrum vinum þínum
d) Hlusta þolinmóð ef
hún hringir grátandi í
þig um miðja nótt eftir
að kærastinn sagði
henni upp - jafnvel
þótt þú þurfir að mæta
á áríðandi fund
eldsnemma morguninn
eftir
e) Hilma yfir með henni
ef hún heldur fram hjá
kærastanum sínum
j) Eyða helginni í að
hjálpa henni við að
ljúka mikilvægu verk-
efni á réttum tíma
g) Samþykkja að fara á
stefnumót með frænda
kærastans hennar -
jafnvel þótt þér finnist
hann ömurlegur
Q Hvað er ALLRA mik-
ilvœgast í lífi þínu þessa
stundina?
a) Vinir þínir
b) Löngun eftir hjóna-
bandi eða a.m.k. föstu
sambandi
c) Starfsframi þinn
d) Skemmtanalífið
e) Ræktun andlegu
hliðarinnar
Q Um hvað rœða þú og
vinir þínir helst?
a) Ástina, stjórnmál,
megrun og heilsu,
stjörnurnar í
Hollywodd
b) Vinnuna eða það sem
hæst ber í fréttum
c) Framtíðardrauma
d) Vandamál eða vel-
gengni í kynlífinu,
hvort sem um er að
ræða kynlíf þitt, ykkar
vinkvennanna eða
sameiginlegra vina
ykkar
e) Það sem kemur upp í
hugann hverju sinni
Q Þú og besta vinkona
þín hafið smám saman
fjarlœgst hvor aðra. Hvem-
ig tekur þú á málinu?
a) Álítur sem svo að hún
hafi mikið að gera og
þið munið halda áfram
þar sem frá var horfið
þegar hægist um hjá
henni
b) Veltir því fyrir þér
hvort það sé þér að
kenna
c) Lætur þér fátt um finn-
ast - vinátta er nú einu
sinni svona
d) Spyrð hana við fyrsta
tækifæri hvort allt sé í
lagi á milli ykkar
e) Lætur nokkra mánuði
líða áður en þú gerir
nokkuð í málinu
J| Hverja telur þú til vina
þinna? (Merku við eins
marga liði og þú vilt)
a) Gamla kærasta
b) Æskuvini
c) Helminginn af starfsfé-
lögum þínum
d) A.m.k. einn einstak-
ling frá gamla vinnu-
staðnum
e) Samleigjendur þína -
fyrrverandi og núver-
andi
f) Systur þínar
g) Bræður þína
g) Vini vina þinna
Láttu þér þykja vænt
um vini þína og viður-
kenndu galla þeirra
jafnt sem kosti.
] Fyrri hluti: Gœtir þú
hugsað þér að svíkja vin-
konu þína til þess að kom-
ast á spennandi stefnumót?
Já eða Nei
Seinni hluti: Efþú svaraðir
fyrri hluta spurningarinnar
játandi, myndir þú segja
vinkonu þinni sannleik-
ann?
Já eða Nei
2 Þér er sagt upp vinn-
unni. Fyrir utan kœrastann
þinn, og allar ráðninga-
skrifstofur borgarinnar,
hverja mundirþú hafa
samband við ekki seinna en
núna?
a) Mömmu þína
b) Pabba þinn
c) Bestu vinkonu þína
d) Alla ofantalda
e) Alla þá sem skrifaðir
eru í símanúmerabók-
ina þína
2 Þú ert í veislu og þekk-
ir engan. Hvað er líklegast
að þú takir til bragðs?
a) Eyðir kvöldinu í eld-
húsinu og reynir að
vera að gagni
b) Smeygir þér inn í lítinn
hóp fólks, hlærð á rétt-
um stöðum og reynir
að koma þínum skoð-
unum á framfæri
c) Skoðar bækurnar í
bókaskápnum og von-
ar að einhver komi og
bjargi þér
d) Tekur að þér að stjór-
na plötuspilaranum og
skipuleggjur conga -
dans
e) Leitar í hópnum að
annarri einmana sálu
og hengir þig á
viðkomandi
m Samband þitt við kœr-
astann hefur lengi hjakkað
í sama farinu. Þú...
a) Slítur sambandinu -
ástin hlýtur að eiga
vera meira spennandi
en þetta
b) Talar út um hlutina við
hann
c) Spyrð vini þína ráða
d) Stingur upp á því að
þið gerið hlé á sam-
bandinu og hittið aðra
menn/aðrar konur
e) Hangii með honum
þangað til eitthvað
annað og betra býðst
32 Vikan