Vikan - 01.03.1999, Page 36
Heimilið
Kartöflur í nýjum tilgangi
Börn hafa gaman af að búa eitthvað til sjálf og þeim
finnst sérstaklega gaman að fá að
skreyta herbergið sitt eða húsgögn
sem þau eiga sjálf. Því ekki að leyfa
þeim að skera út kartöflustimpla og
stimpla mynstur á veggi eða gömul
húsgögn sem þau mega nota?
Skerið mynstrin út með dúkahníf og i
gætið þess að stimpilflöturinn sé al-
veg rennisléttur og kartaflan þurr
áður en hafist er handa við að skrey-
ta. Best er að pensla málninguna á
kartöfluna áður en stimplað er.
Er pláss?
Blautar diskaþurrkur
er best að hengja upp
þannig að þær þorni
áður en þarf að grípa
til þeirra næst. I bygg-
ingavöruverslunum er
hægt að fá teina eins
og þessa sem draga má
út undan borðbrún eða
úr skáp. Þeir taka lítið
pláss en eru hið mesta
þarfaþing í eldhúsinu.
Þeir geta líka hentað
vel undir handklæði á
baðherberginu eða til
að hengja upp dúka til
geymslu.
Blikkbaukar í tísku
„Nostalgían" skín út úr þessum bauk-
um undan kakói og kexi frá árunum
1906 - 1920. Þessir baukar hafa allir
fengist á Islandi en eru orðnir mjög
sjaldgæfir. Talsvert er enn til af blikk-
baukum í landinu og í verslunum
má sjá nokkrar vörutegundir í
baukum. Vitað er um nokkra safn-
ara hérlendis sem safna baukum af
ýmsum stærðum og gerðum og er-
lendis eru til verslanir sem sér-
hæfa sig í þeim.
Við á Vikunni hefðum gaman af
að heyra af söfnurum sem eiga
blikkbauka, salt og pip-
arsett, kaffi- og rjóma-
könnur og vildu leyfa
okkur að skoða og
mynda safnið sitt. Skrif-
ið okkur nokkrar línur,
heimilisfangið er VIK-
AN, Seljavegi 2, 107 Reykjavík.
%
Einföld gluggatjöld
Hver segir að efnismikil gluggatjöld séu best?
Það má alveg eins kaupa efni sem passar inn í
gluggakarminn (að vísu þarf að reikna með saum-
fari) og festa síðan gluggatjaldið á gluggastöng
sem passar innan í gluggakarminn. Það er auðvelt
að draga frá og fyrir því það má einfaldlega sauma
mjóan borða í miðjuna og binda gluggatjaldið upp
eða kaupa gardínuklemmur í næstu gluggatjalda-
verslun. Góð hugmynd fyrir þá sem eiga glugga
með fallegri umgjörð sem þeir vilja láta njóta sín
til fullnustu.
Gamlir
skókassar
öðlast
nýtt líf
Gjafapappír getur
gert kraftaverk á
gömlum kössum.
Þegar búið er að
líma hann utan um
kassana eru þeir
orðnir að skraut-
kössum sem má nota til að geyma í hluti án þess að þurfa að fela þá inni í
skápum eða geymslum. Hér eru notaðir mildir ólífugrænir litir og svo bláir.
En það má að sjálfsögðu líka kaupa skærrautt eða skræpótt. Hér getur hver
og einn látið sinn eigin smekk ráða. Ein rúlla af pappír endist mjög ríflega
utan um tvo myndarlega kassa og tvær rúllur duga utan um fimm kassa.
3 6 Vikan