Vikan - 01.03.1999, Page 39
Hugmyndir o g uppskriftir
Fermingin er ein af stóru stundunum í lífi margra og halda því flestir veislu af því til-
efni. Tími ferminganna nálgast óðfluga og er því ekki seinna vænna en að fara að huga
að því hvað gera skal. Hér á eftir kemur hugmynd að uppsetningu fermingarhlaðborðs
og veitingum. í þessu tilfelli er fermingarbarnið hjólabrettastrákur, og þótti því við
hæfi að nýta brettið í skreytinguna til að minna á hver væri í aðalhlutverki á þessum
merka degi, þ.e.a.s. fermingarbarnið sjálft. Skemmtilegt getur
verið að búa til spjöld með nöfnum gestanna og t.d. einhverjum
málshætti eða spakmæli aftan á eða inni í. Þetta má t.d. hengja
á glösin (sjá myndir bls. 40 og 42). Munnþurrkurnar má brjóta á
margvíslegan hátt og í þessu tilviki er notað brot sem hefur þann
eiginleika að hægt er að leggja hnífapörin inn í eins og vasa. Séu
notaðar bréfmunnþurrkur eru Dunilin frá Duni afar hentugar og
fást þær í mörgum mynstrum og litum, m.a. í Nýkaup í Kringlunni.
Lagt var upp með það að leiðarljósi að hafa allt mjög einfalt, gott
og skemmtilegt. Veitingarnar eru því eitthvað sem allir geta gert
án mikillar fyrirhafnar.
Umsjón: Marentza Poulsen
Myndir: Gísli Egill Hrafnsson
Frísklegur
forréttur
rœkjur ¥ w
gul melóna
salatblöð
sítrónumelissa til skrauts
Sósa:
1 dós sýrður rjómi (18%)
1 lítil krukka rauður kavíar Hrærið varlega saman.
Aðferð: Búið til kúlur úr
melónunni með þar til gerðu kúlujárni sem fæst m.a. í Húsasmiðjunni. Setj- ið salatblað í hverja skál Ú
ásamt rækjum og melónu- I %
kúlum. Setjið eina skeið af
sósu í miðjuna. Skreytið
með sítrónumelissu og smá-
vegis af rauðum kavíar. Berið fram með ristuðu
brauði og limesneiðum (eða sítrónusneiðum).
Vikan 39