Vikan - 01.03.1999, Page 54
Texti: ióhanna Harðardóttir Mynd: Gunnar Gunnarsson
Það er algengt vandamál hjá góðu fólki að geta ekki sagt nei. Jafnvel þegar illa stendur á og við-
komandi hefur þegar allt of mikið að gera segir hann já þegar hann er beðinn um greiða. Það er
góður eiginleiki hvers manns að vilja hjálpa náunganum og einnig að vera duglegur að vinna og
draga ekki af sér þegar hans er þörf. Það er hins vegar ekki kostur þegar fólk tekur þarfir annarra
fram yfir sínar og lætur greiðasemina eyðileggja líf sitt. Þegar svo er komið er orðið tímabært að
bæta einu orði í orðaforða sinn, orðinu nei. Það skiptir ekki máli hvort það er heima eða á vinnu-
stað, það er vel hægt að segja nei án þess að særa nokkurn eða valda öðrum erfiðleikum.
Vertu sjálfum þér
samkvæmur
Þegar einhver, t.d. ættingi eða fjöl-
skyldumeðlimur, biður þig um að gera
eitthvað sem þú hefur alls ekki tíma
til, skaltu vera heiðarlegur við báða
aðila og segja: „ Eg vildi að ég gæti
hjálpað þér, en því miður get ég það
ekki.“
Ef haldið er áfram að þrýsta á þig
skaltu ekki láta undan heldur endur-
taka svarið mjög kurteislega: „ Nei, því
miður, það er útilokað að ég geti það,
ég hef of mikið að gera nú þegar.“
Ef þú ert vön (vanur) að segja alltaf já
er því miður hætta á, að reynt verði
aftur seinna að fá þig til verksins, þá
verður þú að vera enn ákveðnari og
segja: „Það hefur ekkert breyst, ég hef
ekki tíma og þótt ég gjarnan vildi gera
þetta þá get ég það ekki. Eg veit að þú
vilt ekki koma mér í þá klípu sem ég
mundi lenda í ef ég tek þetta að mér.“
vinnunni
Þegar þrýst er á þig í vinn-
unni er erfitt að segja nei,
sérstaklega ef það er yfir-
maður sem gerir of miklar
kröfur. Það er samt hægt og
alveg nauðsynlegt til að
koma í veg fyrir áframhald-
andi þrýsting á vinnustaðn-
um. Ef þú ert beðinn að
vinna eftirvinnu á tíma sem
þú hefur þegar ráðstafað
öðruvísi og getur eða vilt
ekki breyta, skaltu segja
sannleikann og reyna að
finna málamiðlun. Þú gætir
t.d. boðist til að vinna þessa
aukavinnu á öðrum tíma.
Þú gætir líka sagt:„ Eg á
þess því miður ekki kost að
vinna í kvöld. Gæti ég
kannski komið tveim tím-
um fyrr á morgun í stað-
inn?“
Ef vinnan er erfið
og sífellt er verið
að bæta á þig
verkefnum skaltu
gera í huganum
lista yfir verk þín á
hverjum degi.
Næst þegar þú ert
beðinn um að
bæta á þig verk-
efnum skaltu fara
yfir listann með
yfirmanni þínum
og segja að þessi
verkefni taki allan
tíma þinn nú þeg-
ar. Síðan skaltu
bjóðast til að
sleppa einhverju
þeirra til að geta
tekið nýja verk-
efnið að þér.
Gefðu þér tíma
Þeir sem hafa aldrei lært
að neita neinum um neitt
geta alls ekki lært að
segja nei strax og verða
miður sín þegar einhver
nákominn biður þá bónar.
Það þarfnast æfingar eins
og allt annað að breyta
lífsstfl sínum og til þess
að forðast að segja já án
þess að meina það, þegar
þú er beittur þrýstingi,
skaltu svara: „ Ég get
ekki svarað þessu nema
athuga fyrst hvort ég er
upptekinn á þessum tíma,
ég hef samband við þig
seinna.“
Notaðu svo tímann til að
herða þig upp. Hafðu
samband og svaraðu kurt-
eislega og yfirvegað - og á
þínum eigin forsendum.
54 Vikan