Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 59
Frá Klein
eftir Nicholas
Wright / leikstjórn:
Inga Bjarnason /
þýðing: Sverrir
Hólmarsson / lýs-
ing: Alfreð Sturla
Böðvarsson / bún-
ingar: Aslaug
Leifsdóttir / sviðs-
mynd: Inga
Bjarnason o.fl. /
leikendur: Margrét
Ákadóttir, Stein-
unn Ólafsdóttir og
Guðbjörg
Thoroddsen /
Hvunndagsleik-
húsið í Iðnó
ES Það er allt annað andrúms-
loft sem ríkir í húsi sálkönnuð-
arins Frú Klein á sviðinu í
Iðnó, enda leitar höfundur þess
verks á önnur og ólík mið.
3 Já, það er víst óhætt að
segja. Þar erum við komin til
London, rétt í stríðsbyrjun, og
inn á gafl á vel „mubleruðu“
heimili frú Klein sem var einn
af mörgum lærisveinum Freuds.
Höfundur leikritsins virðist
fylgja æviþræði þessa merka
sálkönnuðar mjög nákvæmlega.
Hennar eigin lífsreynsla er sögð
hafa mótað mjög kenningar
hennar um sálarlífið, ekki síst
sálarlíf barna.
Q| Samspilið milli fræðanna og
lífsins er einmitt þungamiðjan í
leikritinu. Það er óhugnanlegt
hvernig sálkönnuðurinn frú
Klein notar börnin sín sem til-
raunadýr í þágu fræðanna.
m Já, ég er sammála því. Hún
virðist vanhæf til að vera í til-
finningalegri nálægð og þess
vegna sýnir hún börnum sínum
eingöngu fræðilegan áhuga.
Þetta upplifa þau síðan sem
hræðilega höfnun.
E9 I mannlegum samskiptum
er þessi merka fræðikona hálf-
gert skrímsli. Höfundur er öðr-
um þræði að sýna okkur dæmi
um fræðimann sem lifir á skjön
við sínar eigin kenningar - sem
er langt frá því að vera eins-
dæmi í vísindasögunni. Þetta
misræmi tekur hins vegar á sig
mjög ógeðfellda mynd vegna
þess að frú Klein er að fást við
rannsóknir á sálarlífi barna.
0 Sjálf hefur frú Klein ekki
myndað náin tengsl við móður
sína og í stað náinna samskipta
reynir hún að stýra öllum sem
hún umgengst. í því felst bæði
styrkur hennar og veikleiki.
Hún hefur góða stjórn á lífi
sínu sem fræðimaður og er þar
bæði róttæk og frumleg.
ES Kannski er höfundurinn
líka að glíma við þá spurningu,
hvað er heilbrigt og hvað er
sjúkt. Freud kom reyndar sjálf-
ur með þá athyglisverðu hug-
mynd að hugsanlega væri þorri
alls fólks á Vesturlöndum and-
lega vanheill og ekki nema fá-
einir einstaklingar heilbrigðir.
Stundum finnst manni innst
inni að sá gamli hafi haft nokk-
uð til síns máls, ekki síst þegar
maður leiðir hugann að öllum
þeim vitfirringslegu styrjöldum
sem háðar hafa verið á öldinni.
E2 Verkið er á köflum töluvert
geggjað og reynir mikið á
leikkonurnar þrjár. Þær eru all-
ar mjög góðar karakterleikkon-
ur og þar með eins og klæð-
skerasniðnar fyrir þetta leikrit.
ES Þó að leikurinn sé yfirleitt
jafngóður hjá þeim öllum
fannst mér Steinunn Ólafsdótt-
ir á stundum sýna sérstaklega
fín tilþrif, ekki síst þegar hún
hellir sér yfir móður sína. Auk
þess fannst mér taugaveiklun
hennar mjög sannfærandi.
□ Já, ég er sammála því, en
mér finnst líka aðdáunarvert,
hvernig Guðbjörgu Thorodd-
sen tekst að halda þéttri athygli
með nærveru sinni og litlum
texta. Það er mikil kúnst sem
hún hefur vel á valdi sínu.
E9 Margrét Ákadóttir er sterk
og traust í hlutverki frú Klein,
sem sveiflast á milli yfirgangs-
semi og öryggisleysis og verður
á köflum kvendjöfulsleg, sér í
lagi þegar hún er búin að setja
upp svartfjaðraða hattinn sinn.
EB Það eina sem mér finnst há
þessari annars ágætu sýningu er
að textinn er of bóklegur á
köflum. Þýðingin er á vönduðu
máli, eins og Sverris Hólmars-
sonar er von og vísa, en hefði
mátt vera mun talmálslegri og
þjálli í munni.
m Mér finnst líka að stundum
hefði mátt undirstrika blæ-
brigði í framvindu verksins bet-
ur með meira nostri við ýmis
atriði í sviðsetningunni. Það
hefði t.d. verið hægt að nota
lýsinguna betur í þessum til-
gangi, eins og þegar frú Klein
er látin setjast fremst á sviðið.
Þarna hefði auðveldlega verið
hægt að nota lýsinguna til að
skipta um stemmningu. Að
þessu leyti finnst mér sýningin
renna of eintóna fram.
ES í heild er þetta samt for-
vitnileg og góð sýning sem vek-
ur til umhugsunar og skilur
töluvert eftir. Það væri synd ef
leikhúsáhugafólk léti hana fara
framhjá sér.
□ Já, ég vil eindregið hvetja
fólk til að fara í Iðnó og sjá
þetta stórgóða leikrit, flutt af
þremur frábærum karakter-
leikkonum.
Vikan 59