Vikan


Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 60

Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 60
TEXTI: SÆVAR HREIÐARSSON SELUR SIG ODYRT Breski leikarinn Sean Connery lækkaði launa- kröfur sínar verulega til að geta leikið í myndinni Playing by Heart. Vana- lega fær hann um 800 milljónir króna fyrir hver- ja mynd en sjarmörinn sætti sig við aðeins 4,5 milljónir fyrir þessa vegna þess að honum leist svo vel á handritið. Ekki nóg með það heldur fékk hann líka mótleikara sína, þ.á.m. Gillian Anderson, Angelinu Jolie, Madeleine Stowe, Genu Rowlands og Ellen Burstyn, til að leika í myndinni fyrir álíka „smáaura". Þetta er ekkert einsdæmi í Hollywood. Bruce Willis vann nánast launalaust í mynd- inni Pulp Fiction og Tom Cruise lék smáhlutverk í myndinni Magnolia fyrir „skiptimynt". NISKUPUKI George Clooney fær ekki góð meðmæli hjá út- kastara á nektardansstaðnum Scores í New York. Þangað hafa margir frægir og ríkir komið í leit að fullnægjandi skemmtun og vöðvabúntið Steve Hart hefur kynnst ýmsum stórstjörnum í starfi sínu sem útkastari. Hann segir að Cioon- ey sé „nískur aumingi" og er greinilega ekkert hrifinn af hjartaknúsaranum. „Eitt kvöldið gerði ég George Clooney þann greiða að segja hon- um að það væri heil hersing af paparazzi Ijós- myndurum fyrir utan,“ segir Hart. Leikarinn var alveg á nálum þar sem það hefði ekki komið sér vel fyrir ímyndina að láta almenning sjá barnalækninn af Bráðavaktinni yfirgefa strippbúllu. „Ég bauð honum að fara út bakdyramegin og hann rétti mér 20 dollara seðil. Það er svo sem ágætt þjórfé ef ég væri pípari í Brooklyn en frá manni sem fær 100 þúsund dollara fyrir hvern þátt, þá er þetta bara skiptimynt. Ég náði mér niður á honum með þvf að hringja í vin minn sem er Ijósmyndari. Hann kom og náði mynd af nískupúkanum þegar hann rölti út bakdyramegin." Útkastarinn var rekinn daginn eftir að þetta ~| viðtal birtist í bandarísku tímariti. HRAKFALLABALKUR New York er hættuleg borg og gamla brýnið Donald Suther- land fékk að kenna á því á dög- unum. Leikarinn þurfti ekki einu sinni að yfirgefa hótelherbergið sitt til að lenda í óhappi. Hann var nýbúinn að innrita sig á Parker Meridien hótelið og var að flýta sér að opna fyrir her- bergisþernunni (Degar hann hljóp á vegg og fékk stóran skurð á ennið. Starfsmenn hót- elsins kölluðu á lækni en þá tók ekki betra við. „Þegar læknirinn kom var ég með íspoka á höfðinu. Ég stóð upp til að opna fyrir hon- um og féll um farang- urinn minn og tá- brotnaði," sagði hrakfallabálkurinn. Það þurfti að sauma sjö spor í ennið á honum. GAMALL OG GOÐUR MEÐ SIG Gamla brýnið Robert Redford segist ekki óttast efri árin. Hann er orðinn 61 árs og segist eiga nóg eftir í Hollywood. í kvik- myndabransanum legst aldurinn oft illa í stjörnurnar og þær reyna að halda unglegu útliti með hjálp lýtalækna. „Það er ekki fyrir mig,“ segir Redford. „Ég er ekki hræddur við að eldast því það er bara hluti af lífinu.“ En þó Red- ford segist ekki vera eins hégómafullur og margir félaga hans í Hollywood er hann ekki laus við stjörnustæla. Breska blaðið Observer birti frétt um það að leikarinn bóki alltaf heila sætaröð í fyrsta farrými í flugvélum þegar hann ferðast, til að þurfa ekki að spjalla við ókunnuga á leiðinni. Hann heimtar líka að vera fyrstu út úr vélinni, jafnvel þó hann þurfi að troða sér framúr fötluðum farþegum í hjólastól. Afmælisbörn vikunnar 1. mars: Harry Belafonte (1927), Ron Howard (1954), Timothy Daly (1956), Alan Thicke (1947). 2. mars: Mikhail Gorbachev (1931), Jon Bon Jovi (1962), Kelly Lynch (1959), Lou Reed (1944). 3. mars: Miranda Richardson (1958). 4. mars: Patsy Kensit (1968), Chastity Bono (1969), Chris Rea (1951). 6. mars: Shaquille O’Neal (1972), Moira Kelly (1968), Tom Arnold (1959), Rob Reiner (1945). 7. mars: Daniel J. Travanti (1940). 8. mars: James Van Der Beek (1977), Freddie Prinze Jr. (1976), Kathy Ireland (1963), Aidan Quinn (1959), Lynn Redgrave (1943). 9. mars: Juliette Binoche (1964), Kato Kaelin (1959). 10. mars: Ját- varður prins (1964), Eva Herzigova (1973), Sharon Stone (1958), Chuck Norris (1940). 11. mars: Rupert Murdoch (1931), Lisa Loeb (1968), Peter Berg (1964), Alex Kingston (1963). 12. mars: Liza Minnelli (1946). 13. mars: Anna- beth Gish (1971), Adam Clayton (1960), Dana Delany (1956), William H. Macy (1950). 14. mars: Albert prins (1958), Quincy Jones (1933), Michael Caine (1933), Billy Crystal (1947). 15. mars: Judd Hirsch (1935), Bret Michaels (1963), Fabio (1961), Renny Harlin (1959)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.