Vikan


Vikan - 10.05.1999, Side 52

Vikan - 10.05.1999, Side 52
texti: Jóhanna Harðardóttir - verður kynlífið útundan ? klukkustund á dag og miðað við að parið hafi einhver önnur mál sem það langar til eða verður að sinna í sameiningu má búast við hálftíma á dag - HÁMARK - til að sinna ástinni á ein- hvern hátt. Miðað við þennan tíma er ekki von til þess að kynlífið sé jafn fjörugt og þegar parið var barnlaust. Foreldrar ungra barna lenda mjög oft í kynlífs- vandamálum og í einstaka tilfellum verður það til þess að eyðileggja sambandið. Það þarf góð tilfinninga- tengsl til að takast á við þennan vanda og í sumum tilfellum þarf aðstoð sér- fræðinga að koma til. Konur virðast oftar lenda í þeirri kreppu að verða of þreyttar, missa löngunina til ásta og einangrast tilfinn- ingalega í framhaldi af því. Karlar sleppa þó alls ekki við þessi einkenni þótt þeir eigi auðveldara með að koma sér út úr tilfinninga- flækjunni sem þessu fylgir. Er verkaskiptingin rétt? Ef annar aðilinn er alltaf of þreyttur og illa upplagður fyrir kynlíf þá er eitthvað að. Tvær algengustu ástæðurnar eru þessar: Veikindi. Óeðlileg þreyta getur stafað af sjúkdómi sem hefur búið um sig í líkamanum eða skorti á nauðsynlegum efnum. Ef grunur leikur á að þetta geti verið ástæðan er sjálfsagt að leita til læknis og fá úr því skorið sem fyrst. Röng verkaskipting. Ef báðir aðilar eru heilbrigðir þá er of mikið álag á annan aðilann sennilegasta skýringin. Getur verið að verkaskiptingin heima sé ekki rétt? Ber annar aðilinn of mikla ábyrgð á sameiginlegum verkefnum, barna- uppeldi, þrifum og heimilishaldi, fjármálum eða einhverju öðru? Það er ekki aðeins hætta á líkamlegri þreytu við slík- ar aðstæður, heldur verður sá sem hefur of mikið að gera einnig pirraður og neikvæður í sambandinu með tímanum. 1 2 Enginn tími Sérfræðingar í Noregi hafa reiknað það út að for- eldrar tveggja barna á aldr- inum 0-16 ára eigi að meðal- tali saman um 6 klukku- stunda frítíma á viku án barnanna. Það er ekki ósennilegt að hér á íslandi sé þetta mjög svipað, jafnvel enn óhagstæðara fyrir for- eldra. Ef áfram er reiknað kem- ur í ljós að þarna er ekki um að ræða nema tæplega 52 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.