Vikan - 10.05.1999, Blaðsíða 60
TEXTI: SÆVAR HREIÐARSSON
ROMANTISKUR BOND
Ofurgæjinn Pierce Brosnan lætur dekra
við sig við tökur á nýjustu James Bond-
myndinni, sem hefur hlotið
nafnið The World Is Not En-
ough. Hann heimtar að aðstoðar-
fólk sé ávallt tilbúið með slopp og
inniskó svo hann þurfi ekki að hafa fyrir því að
finna þessar nauðsynjar á milli atriða sem hann
leikur í. Auk þess vill Brosnan hafa kavíar til taks í
hjólhýsi sínu. Sennilega notar hann frítímann við
ritvélina því nýjustu fréttir herma að hann sé að
skrifa kvikmyndahandrit. Hann telur sig vera með
góða hugmynd að rómantískri gamanmynd og not-
ar hrörlega gamla ritvél sem eitt sinn var í eigu lan
Fleming, skapara James Bond. Brosnan viðurkennir
að það væri sennilega fljótlegra að nota tölvu en
hann vonast eftir að fá innblástur frá Fleming í
gegnum forngripinn.
ÆTLAR A HVITA
TJALDIÐ
l’rski söngvarinn Bono er nú búinn að
sökkva sér í kvikmyndirnar. Nú standa
yfir tökur á myndinni The Million Dollar
Hotel þar sem Bono leikur á móti Mei
Gibson, Millu Jovovich og Jimmy
Smits. Bono er reyndar ekki í stóru
hlutverki en hann samdi handritið og er
framleiðandi myndarinnar. Söngvarinn
ætlar ekki að láta staðar numið þegar
þessari mynd líkur og heyrst hefur að hann muni leika í
næstu Star Wars mynd. Tökur á henni hefjast síðar á árinu
en nýjasta StarWars myndin.The Phantom Menace, verð-
urfrumsýnd í Bandaríkjunum á næstu dögum.
HRÆDDUR VIÐ MADONNU
Körfuboltaormurinn Dennis Rodman kann
vel við lífið meðal stjarnanna í
Los Angeles en þangað flutti
hann eftir að hann hætti að
spila með Dhicago Bulls.
Það eru ekki allir jafn
hrifnir af Rodman og söng-
og leikkonan Madonna var
sögð foxill eftir að hann
skrifaði um ástarsamband
þeirra í ævisögu sinni. Það
voru því taugaóstyrkir
þjónar á veitingastaðnum Asia de Cuba West þegar Rodman pantaði borð fyrir tólf
sama kvöld og Madonna átti pantað borð fyrir sex. Yfirþjónninn brá á það ráð að
láta þau vera sitt hvorum megin í matsalnum. Madonna var að halda upp á að
hún var frjáls undan samningi við Freddy DeMann, félaga sinn hjá Maverick
Records og í hennar fylgdarliði voru m.a. vinkonurnar Ingrid Casares og k.d.
lang. En allar áhyggjur af árekstrum voru ástæðulausar því Rodman hætti við
að koma á síðustu stundu. Körfuboltamaðurinn missti kjarkinn og þorði ekki
að mæta Madonnu í ham.
AFMÆLISBORN VIKUNNAR
10. maí: Linda Evangelista (1965), Bono (1960) 11.
maí: Austin O'Brien (1981), Laetitia Casta (1978),
Natasha Richardson (1963) 12. maí: Samantha Mathis
(1970), Stephen Baldwin (1966), Emilio Estevez (1962),
Ving Rhames (1961), Katharine Hepburn (1907), Bruce Box-
r (1950), Gabriel Byrne (1950) 13. mai: Dennis Rodman (1961),
Julianne Phillips (1960), Stevie Wonder (1950), Harvey Keitel (1939)
14. maí: Natalie Appleton (1974), Tim Roth (1961), George Lucas
(1944), Francesca Annis (1944) 15. maí: David Charvet (1972), Richard
Avedon (1923), Chazz Palminteri (1952) 16. maúTori Spelling (1973),
Tracey Gold (1969), Janet Jackson (1966), Anne Parillaud (1960),
Mare Winningham (1959), Debra Winger (1955), Pierce Brosnan
leitner
UUj'JUJj'Jj'J
JU\Uj'J;\JJ£JíJ
Harvey Keitel hefur leikið
ýmsa afbrygðilega náunga á
hvíta tjaldinu. Hann þótti því
H henta vel í hlutverkið sem hann
hlaut í erótíska tryllinum Eyes
Wide Shut sem hjónakornin Tom
Cruise og Nicole Kidman leika aðalhlut-
verkin í. En Keitel var rekinn áður en tök-
um iauk og ýmsar sögur hafa verið á
kreiki um ástæðuna. Groddalegasta sagan
var um sjálfsfróunaratriði sem fór úr böndunum og í
framhaldi af því hafi Kidman heimtað að Keitel yrði
rekinn. Hvort þetta er satt eða ekki fæst seint úr því
skorið því leikstjóri myndarinnar, Stanley Kubrick
heitinn, lét alla sem að henni komu skrifa undir
þagnareið og Keitel er skaðabótaskyldur ef hann
blaðrar eitthvað um myndina án leyf-
is. Sjálfsfróunarsagan er svo útbreidd
að nánir vinir leikarans hafa kvatt
hann til að leysa frá skjóðunni og
segja hvað raunverulega gerðist.
Keitel hefur látið það leka út að
hann hafi sjálfur viljað hætta
þar sem tökur á myndinni
drógust á langinn og hann
þurfti að leika í annarri
mynd. Hin sagan þykir
betri.