Vikan - 10.05.1999, Blaðsíða 63
Þessi upptalning lýsir bara broti af því sem hægt er
að gera í París. Þarna komu ekki fram staðir eins og
Disney búðin á Champs Élysée, Hagendas ísbúðirnar,
bakaríin og öll litlu sætu kaffihúsin og veitingastað-
irnir. Það er því ekki um annað að ræða en að drífa
sig og uppgötva sjálfur það sem blaðamaður komst
ekki yfir að þessu sinni. Það er nefnilega fátt
skemmtilegra en góð vi
Amtsbókasafnið á Akureyri
03 591 148
Ef fólk er ekki í skapi til aö versla eða þeytast um borgina
getur líka verið gaman að virða fyrir sér fjölbreytilegt
mannlífið á bökkum Signu. Til þess er engin betri leið en
að fara í siglingu niður eftir ánni. Farið er á hálftíma fresti
og kostar farið á venjulegum bát ekki nema um 500 krón-
ur íslenskar. Þá er hægt að fara í dýrari ferðir og snæða
um borð. Ferðin tekur rúma klukkustund og í góðu veðri er
þetta ágæt leið til að skoða borgina. Þessi maður lét fara
vel um sig á Signubökkum og kippti sér ekkert upp við
syngjandi túrista sem sigldu fram hjá.
Þá má ekki missa af því að skoöa
hina fögru kirkju Sacré Coeur.
Þegar maður kemur út úr kirkj-
unni er stórkostlegt að ganga nið-
ur tröppunar og niður í hverfið
fyrir neðan, sem kallað er Rauða
hverfið. Þetta er ráðlagt að gera í
dagsbirtu. Þegar gengið er inn
götuna sem tekur við þegar kom-
ið er niður tröppurnar taka við
margar forvitnilegar verslanir.
Þessi búð sem við tókum sér-
staklega eftir selur góbelín mynd-
ir, dúka og púðaver á verði sem
við höfum ekki séð áður. Nína
Björk Gunnarsdóttir fann þar
margt fallegt og
naut sín í París.
Montmartre er iðandi mannlíf. Þar er betra að gefa sér góðan
tíma. Gott væri að byrja á því að fara á listamannatorgið sem
staðsett er rétt ofan við Sacré Coeur. Þarna safnast listamenn
saman til aö selja list sína. Hægt er að kaupa ódýrar myndir af
þekktum stöðum í borginni auk þess sem hægt er að fá falleg-
ar myndir sem mundu sóma sér vel heima í stofu. Verðið á
þessum myndum er frá 120 krónum og upp í einhverja tugi
þúsunda. Síðari
talan er þó und-
antekning.
Einnig erhægt
að láta teikna af
sér mynd og er
um að gera að
ganga aðeins
um til að byrja
með og sjá hver
sé bestur. Eins
og sjá má eru
þessir menn
færir í sínu fagi.
Það eru margir haldnir þeirri trú að það sé dýrt að versla í París. En ýmislegt á eftir að
koma þessu fólki þægilega á óvart. Verslunarkeðjur eins og Etam og Zara eru í flestum
hverfum borgarinnar en þar má gera góð kaup í kvenfatnaði. Þá eru undirfötin í Etam eitt-
hvað sem engin kona ætti að missa af. Við 1 rue, ST Denis er síðan Mekka barnafólksins.
Þar er nefnilega stór Du Pareil au Méme verslun. Þar má aldeilis gera góð kaup. Sem
dæmi má nefna að meðalverð á barnapeysu á tveggja ára barn er 500 krónur. Svo eru föt-
in líka svo falleg. Það er því engin ástæða til að vera smeykur við að fara inn í búðirnar.
Það er um að gera að fara bara inn. Þú sérð það um leið og þú lítur á fyrsta verðmiðann
hvort þetta sé eitthvað fyrir þig. Vikan mælir sérstaklega með Latínuhverfinu og Leal.