Vikan - 29.06.1999, Blaðsíða 19
Texti: Steingerdur Steinarsdóttir
Mynd: Hreinn Hreinsson
onur eiga
ekki, að
þurfa að
meta það
út frá
vinnu sinni
hvort þær séu í aðstöðu til
að eignast börn eða ekki og
Alþingi er einfaldlega
vinnustaður. Fjölskyldur
eiga að hafa frjálst val um
það hvort og hvenær börn
fæðast. Við eigum að búa
þannig í haginn fyrir fjöl-
skyldur, bæði með frjálsum
samningum á vinnumarkaði
og með lagasetningu, að þær
þurfi ekki að velta því fyrir
sér hvort það sé möguleiki
að eignast börn eða ekki, "
segir Þorgerður. „Það kom
margt til að ég tók sæti á
lista núna. Bæði það að ég
hef alltaf haft áhuga á póli-
tík og svo þrýsti góður hóp-
ur á mig fólks að gefa kost á
mér. Ég taldi þennan tíma
jafngóðan og hvern annan
og vissi að ég hafði stuðning
stórfjölskyldunnar að baki
mér, bæði tengdafjölskyld-
unnar og minnar eigin. Það
er ómetanleg hjálp við
ákvarðanatöku og í vinnu."
Kjósendur virðast sam-
mála Þorgerði í því að tíma-
setningin sé rétt ef marka
má fylgið sem flokkur henn-
ar naut í kjördæminu. En
hvernig leggst það í Þor-
gerði að taka sæti á Alþingi?
„Afskaplega vel. Ég hef
heyrt að Alþingi sé góður
vinnustaður. Fólk úr öllum
flokkum vinni saman og beri
virðingu fyrir skoðunum
hvert annars. Þar sé góður
andi. Ég hef mikinn áhuga á
að vinna að málefnum fjöl-
skyldunnar í heild. Það þarf
að skapa henni svigrúm til
athafna, t.d. í gegnum
skattakerfið. Þar er ýmislegt
sem ég hef áhuga á að end-
urskoða. Umhverfið verður
að laga sig að þörfum fjöl-
skyldnanna; þetta er spurn-
ing um samspil milli að-
stæðna á vinnumarkaði og
löggjafans. Stöðugleiki og
ábyrg efnahagsstjórnun er
undirstaða þess að þetta
megi takast. Það er ekki
hægt að byggja ofan á fyrr
en búið er að leggja grunn-
inn. Ég hef einnig áhuga á
utanríkismálum og atvinnu-
málum en löggjafarstarfið í
heild er auðvitað afskaplega
áhugavert og spennandi
verkefni. Það er ósköp auð-
velt að koma á framfæri ótal
gæluverkefnum sem flestir
eru samþykkir, mestu skiptir
að þau séu í tengslum við
raunveruleikann og hægt sé
að koma þeim í fram-
kvæmd."
Gæti hugsað sér að
eiga fimm börn
Þorgerður er eiginkona
handboltamannsins Krist-
jáns Arasonar og það er
þeirra annað barn sem hún
gengur með. Þorgerður seg-
ist hafa gaman af börnum og
í raun ekki hafa neitt á móti
því að eignast fjögur eða
fimm ef guð og lukkan leyfa.
„Ég á systur sem er mín
besta vinkona og það var
okkur ómetanlegt að fá að
alast upp saman. Kristján er
hluti af stórum systkinahóp;
þau eru sex systkinin og
ákaflega samheldin. Bæði
mín fjölskylda og hans hafa
sannfært mig um að það sé
fátt sem komi í stað þess að
vera hluti af stórri, samheld-
inni fjölskyldu.
Mér þykir líka gaman að
horfa á barn mótast og
þroskast. Þá sér maður hvað
manneskjan er fjölbreytileg
og hvað hver einstaklingur
er einstakur. "
Erfitt að vera án fjöl-
skyldunnar
Kristján og Þorgerður
bjuggu erlendis um tíma
meðan hann var atvinnu-
maður í handbolta. Fyrst
bjuggu þau í Þýskalandi en
síðan á Spáni. Þorgerður
segir að við getum margt af
Þjóðverjum lært og öfugt.
Hún sér hins vegar eftir að
hafa ekki dvalið langdvölum
á Spáni meðan Kristján var
þar og gefið sér tíma til að
læra málið.
„Ég var þá í lagadeildinni
og ferðaðist mikið milli
landa. Spánn er yndislegt
land og fólkið vingjarnlegt
og hlýtt. Þeir gætu tileinkað
sér meiri stundvísi og áreið-
anleika en það má líka segja
að það sé hluti af þeirra
skemmtilega persónuleika.
Lífsgleði þeirra og „sjarmi"
er óborganlegur. Spánn er
ákaflega fjölskylduvænt
land, þótt á annan hátt sé en
hér. Þeir eru mjög stoltir af
fjölskyldunni og börnin fá
mikið rúm í lífi þeirra. Það
tíðkast gjarnan að börnin
fari með út að borða og í
veislur og boð. Hugsanlega
spilar veðurfarið þarna eitt-
hvað inn í.
A meðan við bjuggum ut-
anlands þótti mér það verst
að geta ekki hitt fjölskyld-
una á hverjum degi eða
hringt án þess að þurfa að
hugsa um kostnaðinn við
það. Það var þó plástur á
sárin að fá reglulega heim-
sóknir frá ættingjum og góð-
um vinum. Það er ómetan-
leg reynsla að hafa kynnst
öðrum lífsstíl og annarri
menningu. Ég tel að sú
reynsla muni nýtast mér vel
á þingi og sömuleiðis
menntun mín sem lögfræð-
ingur."
Þetta var í fyrsta sinn sem
Þorgerður tók þátt í kosn-
ingabaráttu sem frambjóð-
andi. Var eitthvað sem kom
henni á óvart í þeim slag?
„Þetta var mun meiri
vinna og álag en ég hafði
gert mér grein fyrir. Barátt-
an sjálf var mjög vel skipu-
lögð hjá okkur og það skil-
aði sér. Við erum búin að
vinna vel, að mínu mati. Að
kynnast mismunandi lífsvið-
horfum er hollt fyrir hvern
og einn, ekki síst stjórn-
málamenn. Ég hlakka til að
takast á við þingstörfin á
vorþinginu og lít auðvitað
björtum augum til sumars-
ins."
Vikan 19