Vikan - 16.11.1999, Qupperneq 6
Texti: Jóhanna Harðardóttir
Myndir: Gísli Egill Hrafnsson
Við erum Dað
sem uið gerum
segir Arngrúður Karlsdóttir
Það gustar af Arn-
þrúði þegar hún
kemur askvaðandi
á fund blaðamanns.
Þeir sem þekkja hana
verða ekkert hissa. Hún er
þannig kona. Hingað til hef-
ur hún ekki fetað troðnar
slóðir. Hún fer það sem hún
vill og læðist ekkert við það,
enda þekkir fólk hana úr
ýmsum hlutverkum.
Arnþrúður er ein þeirra
kvenna sem hefur getið sér
gott orð í íþróttum og hún
hefur m.a. leikið 38 lands-
leiki í handknattleik fyrir ís-
land og unnið til fjölda verð-
launa í frjálsum íþróttum og
sundi. Arnþrúður var ein af
fyrstu lögreglukonunum
sem útskrifuðust úr Lög-
regluskóla ríkisins og var
m.a. rannsóknarlögreglu-
maður hjá RLR í átta ár.
Með starfinu stundaði hún
nám í öldungadeildinni í
Hamrahlíð. Hún sótti nám í
blaðamennsku í Noregi og
hefur unnið að þáttagerð og
fréttamennsku í Noregi og
hér heima. Hún hefur líka
komið við sögu í pólitík.
Hún er búin að vera jafn
lengi í Framsóknarflokknum
og Halldór Ásgrímsson, hef-
ur verið bæjarfulltrúi í Hafn-
arfirði og setið sem vara-
maður á þingi ásamt því að
gegna mörgum trúnaðar-
störfum fyrir flokkinn. Síð-
ustu fjögur árin hefur hún
verið kaupmaður og rekur
tvær tískuvöruverslanir,
Sissu Tískuhús við Lauga-
veg og Hverfisgötu.
Það hefur verið fylgst með
Arnþrúði gegnum tíðina og
það er gert enn og þegar
Arnþrúður auglýsti Sissu til
sölu fóru sögurnar á kreik
og þær voru ýmsar. Arn-
þrúður átti ýmist að vera að
fara á hausinn, að skilja,
flytja til útlanda eða vera
helsjúk.
Kjaftasögur
„Já, já, ég þekki þessar
sögur og er búin að heyra
allan ands... í þessu sam-
bandi. Mér finnst eiginlega
toppurinn að heyra að ég sé
að flytja til útlanda og
stundum velti ég því fyrir
mér að gera það hreinlega!
Það væri margt vitlausara,"
segir Arnþrúður og hlær
með sinni djúpu, hásu rödd.
„Starfsfólkið hefur líka ver-
ið spurt hvort ég lægi bana-
leguna og ég hef ráðlagt því
að svara þessu játandi og að
ég muni ganga aftur og það
all hressilega. En að öllu
gamni slepptu þá eru auðvit-
að skýringar á öllu. Málið er
einfaldlega að ég ætlaði að
selja a.m.k. aðra búðina í
vor vegna þess að ég var
komin á fullt með að skipu-
leggja nýtt fyrirtæki. Ég sá
fram á að geta ekki verið á
tveim stöðum í einu, eins og
það hefur pirrað mig stund-
um, og ég varð einfaldlega
að velja og hafna. Við það
situr enn og ég ætla að selja
búðina á Laugaveginum en
ekki þá á Hverfisgötunni.
Ég er búin að ráða svo stór-
kostlegan verslunarstjóra á
Hverfisgötuna, Þrúði
Guðnadóttur, að ég þarf
þess ekki. Hún stjórnar þar
harðri hendi og er svo snjöll
að hún sér um þetta allt og
lætur mig halda að ég ráði,
svo ég er alsæl! Ég get ein-
beitt mér að öllu því sem ég
er að undirbúa vegna nýja
fyrirtækisins án þess að hafa
áhyggjur af búðinni.1'
Arnþrúður stofnaði Sissu
árið 1996 og byggði rekstur-
inn upp sjálf. Hún þekkti
ekkert til verslunarekstrar
þegar hún byrjaði en hana
langaði til að reyna eitthvað
nýtt. Hún hafði áður flutt
inn vörur frá Ítalíu og fór
því strax að flytja inn fatnað
„Þruður stjórnar öllu hér en