Vikan - 16.11.1999, Blaðsíða 11
Itaguliildiir
oj> Tinna,
ekki beint
líkar
prófasts-
dætrum
m %
1 k- /ÖÞ 'w
1 f
í Jli
L . ííJkr A
Rannveig er hins vegar allt
öðruvísi, hún er tilfinninganæm
og lætur siðareglur samfélagsins
ekki stjórna sér og það á Þuríð-
ur bágt með að skilja. Eftir að
Rannveig er farin til Kaup-
mannahafnar og kemur til baka
ólétt verða kaflaskil í samskipt-
um systranna. Þuríður og pró-
fastsfrúin sviðsetja heilan leik-
þátt fyrir þorpsbúa til að breiða
yfir skömmina og smánina sem
Rannveig hefur kallað yfir fjöl-
skylduna að þeirra mati. Þær
búa til lygasögu um frægan
mann og brúðkaup, sem síðan
verður ekkert úr vegna þess að
brúðguminn deyr skömmu áður
en hann þarf að birtast í þorp-
inu. En þetta er ekki nóg fyrir
Þuríði því eftir að barnið er fætt
verður hún friðlaus af afbrýði-
semi. Hún getur í raun ekki
unnt systur sinni þess að eiga
barn með manninum sem hún
sjálf elskaði og elskar enn. Hún
tekur til sinna ráða, og það sem
hún gerir er aiveg ofboðslegt og
í raun ófyrirgefanlegt, - en
Rannveig hefur svo stórt hjarta
að hið ómögulega verður
mögulegt."
„Kvikmynd hlýtur alltaf að
vera sjálfstætt verk,” segir
Ragnhildur. „Sjálf búum við öll
til okkar eigin kvikmynd í hug-
anum jafnóðum og við lesum
góða sögu. A breiðtjaldinu er
búið að gera þetta fyrir okkur
og þá þýðir ekkert að hugsa sí-
fellt um hvernig við hefðum
sjálf viljað sjá hlutina gerast.
Við verðum að losa okkur við
fyrirframhugmyndir og skoða
kvikmyndina á hennar eigin
forsendum. Svo getum við auð-
vitað ákveðið hvort okkur líkar
myndin eða ekki, en það er allt
önnur saga."
Búksláttur og grískur
harmleikur
Ragnhildur og Tinna eru
báðar búnar að leggja frá sér
hannyrðir prófastsdætranna í
Húsinu og farnar að vinna við
allt annað. Tinna er að leika að-
alhlutverkið í Fedru eftir
Racine í Þjóðleikhúsinu.
„Racine er franskur sautj-
ándu aldar höfundur. Hann
byggir verkið á grískri goðsögn
um Fedru drottningu sem verð-
ur ástfangin af Hyppolytosi
stjúpsyni sínum með hörmuleg-
um afleiðingum," segir Tinna
og bætir við: „Racine er mjög í
hávegum hafður í hinum
frönskumælandi leikhúsheimi
og honum gjarnan líkt við
Tinna og Kagnhild-
ur í lilutvcrkiini
síiiuni í niyndinni
mn nngfriina góðu
Og lllisið.
I
Shakespeare, höfuðskáld
enskra leikhúsbókmennta, enda
er Fedra snilldarlega skrifað
verk sem gaman er að glíma
við."
Ragnhildur ætlar á næstunni
að halda tónleika til að fylgja
eftir nýútkomnum geisladiski
með The Human Body
Orchestra sem heitir High
North.
„Þeir Gunnlaugur Briem og
Arnar Gíslason, báðir snillingar
á trommur, munu verða með
mér ásamt tæknifólki og það
stendur til að halda tónleika
einhvern tímann í nóvember,"
segir Ragnhildur. „Það er heil-
mikil kúnst að ná saman góðu
búksláttarfólki, trommuleikari
getur haft góðan takt án þess að
ná góðum búkslætti. Það er allt
önnur og alveg sérstök tilfinn-
ing."
Það þarf ekki að spyrja að
því hvað sem öðrum verkefnum
líður, að þær Tinna og Ragn-
hildur eru góð blanda á hvíta
tjaldinu.
Vikan 11