Vikan


Vikan - 16.11.1999, Qupperneq 11

Vikan - 16.11.1999, Qupperneq 11
Itaguliildiir oj> Tinna, ekki beint líkar prófasts- dætrum m % 1 k- /ÖÞ 'w 1 f í Jli L . ííJkr A Rannveig er hins vegar allt öðruvísi, hún er tilfinninganæm og lætur siðareglur samfélagsins ekki stjórna sér og það á Þuríð- ur bágt með að skilja. Eftir að Rannveig er farin til Kaup- mannahafnar og kemur til baka ólétt verða kaflaskil í samskipt- um systranna. Þuríður og pró- fastsfrúin sviðsetja heilan leik- þátt fyrir þorpsbúa til að breiða yfir skömmina og smánina sem Rannveig hefur kallað yfir fjöl- skylduna að þeirra mati. Þær búa til lygasögu um frægan mann og brúðkaup, sem síðan verður ekkert úr vegna þess að brúðguminn deyr skömmu áður en hann þarf að birtast í þorp- inu. En þetta er ekki nóg fyrir Þuríði því eftir að barnið er fætt verður hún friðlaus af afbrýði- semi. Hún getur í raun ekki unnt systur sinni þess að eiga barn með manninum sem hún sjálf elskaði og elskar enn. Hún tekur til sinna ráða, og það sem hún gerir er aiveg ofboðslegt og í raun ófyrirgefanlegt, - en Rannveig hefur svo stórt hjarta að hið ómögulega verður mögulegt." „Kvikmynd hlýtur alltaf að vera sjálfstætt verk,” segir Ragnhildur. „Sjálf búum við öll til okkar eigin kvikmynd í hug- anum jafnóðum og við lesum góða sögu. A breiðtjaldinu er búið að gera þetta fyrir okkur og þá þýðir ekkert að hugsa sí- fellt um hvernig við hefðum sjálf viljað sjá hlutina gerast. Við verðum að losa okkur við fyrirframhugmyndir og skoða kvikmyndina á hennar eigin forsendum. Svo getum við auð- vitað ákveðið hvort okkur líkar myndin eða ekki, en það er allt önnur saga." Búksláttur og grískur harmleikur Ragnhildur og Tinna eru báðar búnar að leggja frá sér hannyrðir prófastsdætranna í Húsinu og farnar að vinna við allt annað. Tinna er að leika að- alhlutverkið í Fedru eftir Racine í Þjóðleikhúsinu. „Racine er franskur sautj- ándu aldar höfundur. Hann byggir verkið á grískri goðsögn um Fedru drottningu sem verð- ur ástfangin af Hyppolytosi stjúpsyni sínum með hörmuleg- um afleiðingum," segir Tinna og bætir við: „Racine er mjög í hávegum hafður í hinum frönskumælandi leikhúsheimi og honum gjarnan líkt við Tinna og Kagnhild- ur í lilutvcrkiini síiiuni í niyndinni mn nngfriina góðu Og lllisið. I Shakespeare, höfuðskáld enskra leikhúsbókmennta, enda er Fedra snilldarlega skrifað verk sem gaman er að glíma við." Ragnhildur ætlar á næstunni að halda tónleika til að fylgja eftir nýútkomnum geisladiski með The Human Body Orchestra sem heitir High North. „Þeir Gunnlaugur Briem og Arnar Gíslason, báðir snillingar á trommur, munu verða með mér ásamt tæknifólki og það stendur til að halda tónleika einhvern tímann í nóvember," segir Ragnhildur. „Það er heil- mikil kúnst að ná saman góðu búksláttarfólki, trommuleikari getur haft góðan takt án þess að ná góðum búkslætti. Það er allt önnur og alveg sérstök tilfinn- ing." Það þarf ekki að spyrja að því hvað sem öðrum verkefnum líður, að þær Tinna og Ragn- hildur eru góð blanda á hvíta tjaldinu. Vikan 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.