Vikan - 16.11.1999, Side 43
Botn
150 g smjör
100 gflórsykur
200 g hveiti
50 g möndlur, malaðar
1 eggjarauða
vanilla
Smjöri, hveiti og flórsykri er blandað saman.
Möndlum og eggjarauðu er bætt út í ásamt
vanillu. Deiginu er blandað vel saman og það
kælt í eina klukkustund.
Setjið í form og bakið við 180 C° í 10-15
mínútur.
Góð hugmynd er að þrýsta deiginu vel að
köntunum á forminu svo það renni ekki niður.
Petta er kælt og appelsínufyllingin sett í form-
ið. Bakið í 45 mínútur við 170 C°. Kælið.
Fylling
2 stórar blóðappelsínur
1 bolli sykur
1/4 bolli vatn
2 msk. sítrónusafi
2 msk. maizena mjöl
1/4 bolli smjör
1 stórt egg
2 msk. Grand Mariner
Pera í
Appelsínur eru þvegnar vel og börkurinn
tekinn af með fínu rifjárni. Skerið hvíta hluta
barkarins af og hreinsið aldinkjötið frá himn-
unum og setjið í pott með berkinum ásamt 1/4
bolla af vatni og 1/4 bolla af sykri. Setjið yfir
vægan hita og sjóðið þar til aldinkjötið hefur
losnað í sundur. Látið kólna.
Maizena mjöl, smjör og afgangur af sykri er
þeytt saman, egginu síðan bætt út í og þeytt
meira. Appelsínu-
blöndunni og Grand
Marnier er að lokum
bætt út í.
Því miður eru blóð-
appelsínur ekki alltaf
á boðstólum en í stað
þeirra má gjarnan
nota venjulegar appel-
sínur og nota þá í stað
vatns og sítrónusafa
frosinn blóðappel-
sínusafa (Chiquita)
sem fæst í mörgum
verslunum.
4 perur, mátulega þroskaðar
(mega ekki vera oflinar)
1 flaska Vin Santo, 175 nxl
100 gsykur
strimlar af appelsínuberki, u.þ.b.
af 1/2 appelsínu
1 kanilstöng
Perurnar eru afhýddar og soðnar
í Vin Santo, sykri og
kanil þar til þær verða
mjúkar, en það tekur
rúmlega 30 mínútur.
Soðnar perurnar eru
síðan kældar. Safinn er
látinn sjóða og þykkna.
Þá er honum hellt yfir
perurnar og þetta allt
kælt.
Borið fram með
staupi af Vin Santo og
valhnetu-rús-
ínusmákökum.
ífpldnetu-,
rusmusmakokur
(u.b.b. 40 st.)
2 bollar af rúsínum, lagðarí
sjóðandi vatn
2 bollar hveiti
1 msk. lyftiduft
11/2 bolli sykur
1 bolli smjör
1/2 tsk. vanilludropar
3 stór egg
3 bollar valhnetur
Smjör og sykur er þeytt saman.
Eggjum bætt saman við og því næst
er hveiti og lyftidufti bætt út í
ásamt vanilludropum. Rúsínur eru
þerraðar vel og þeim bætt út í deig-
ið. Kælt vel. Myljið hnetur og mót-
ið deigið í litlar kúlur. Bakað í
u.þ.b. 10-15 mínútur við 180 C°.
Vikan 43