Vikan


Vikan - 16.11.1999, Side 68

Vikan - 16.11.1999, Side 68
Prjónað úr Kaðlapeysa með laskaúrtöku Upplýsingar um hvar garnið frá Tinnu fæst f sima 565 4610 Stærðir á flíklnni sjálfri (S) M (U Yfírvídd: (87) 96 (105) sm. Sídd: (52) 54 (56) sm. Ermalengd: (48) 49 (50) sm. Garn; flLffl Grátt 1050: (11) 12 (13) dokkur ADDI prjónar frá TINNU: 80 sm hringprjónn nr. 5,5 og 7 40 sm ermaprjónn nr. 7 40 eöa 50 sm. hringprjónn nr. 6 (kragi) Sokkaprjónar nr. 5,5 Gott að eiga: Kaðlaprjóna, segulplötu fyrir munsfurteikningu, merkihringi, prjónanælur. Prjónfesta á ALFA: 13 lykkjur á prjóna nr. 7 = 10sm. 29 lykkjur kaðlamunsfur fyrir miðju u.þ.b. 16 sm. Kaðall á ermi u.þ.b. 3,5 sm. Bolur: Fitjið upp á prjóna nr. 5,5 (120) 132 (144) lykkjur. Prjónið hringinn 2 sléttar 2 brugðn- ar 15 sm. Prjónið eina umferð slétt prjón og auk- ið út 10 lykkjur jafnt yfir hringinn = (130) 142 (154) lykkjur á prjóninum. Skiptið yfir á prjóna nr. 7. f næstu umferð prjónast: (18) 21 (24) lykkjur sléttar + kaðlamunstur fl + D + Cyfir næstu 29 lykkjur + (18) 21 (24) lykkjur sléttar, setjið merkihring þegar prjónaðar hafa verið (65) 71 (77) lykkjurtil að merkja milli framstykkis og bakstykkis með (65) 71 (77) lykkjum. Prjónið eins yfir bakstykkið, setjið merkihring í. Prjónið munstur eftir munsturteikningu þar til allur bol- urinn mælist (26) 27 (28) sm. Fellið þá af 4 lykkj- ur sitt hvoru megin við hliðarmerkin = 8 lykkjur í hvorri hlið. Leggið bolinn til hliðar og prjónið ermarnar. Ermar: Fitjið upp 32 lykkjur á sokkaprjóna nr 5,5 eins fyrir allar stærðir. Prjónið 2 sléttar 2 brugðnar 10 sm. í síðustu umferð er aukið út um 1 lykkju = 33 lykkjur á hringnum. Skiptið yfir á ermaprjón nr. 7. í næstu umferð prjónast 12 lykkjur sléttar + kaðall A yfir næstu 8 lykkjur + 12 sléttar + 1 brugðin = merkilykkja, hún er alltaf prjónuð brugðin og það er aukið út um 1 lykkju sitt hvoru megin við hana með (4) 3,5 (3) sm. millibili eða þar til (51) 53 (55) lykkjur eru á prjóninum. Þegar ermin mælist uppgefin lengd eða mátuleg eru felldar af 4 lykkjur sitt hvoru megin við merkilykkjuna og hún með = 9 lykkjur. Prjónið hina ermina eins. ATHUGIÐ: Endið kaðlamunstrið eins og á bolnum. Laskaúrtaka: Prjónið ermarnar við bol- inn yfir affelldu lykkjurnar = (198) 214 (230) lykkjur á prjóninum. Prjónið eina umferð yfir allar lykkjurnar jafnframt sem tekið er úr með því að prjóna 2 lykkjur brugðnar saman á öllum 4 samskeytunum (eina lykkju af ermi + eina lykkju af bol). Þessar lykkjur eru merkilykkjur þær eru alltaf prjónaðar brugðnar og tekið úr sitt hvoru megin við þær. Prjónið 2 umferðir. í næstu umferð er tekið úr fyrir laskaúrtöku 1 lykkja sitt hvoru megin við brugðnu lykkjurnar þannig : Prjónið 2 lykkjur sléttar snúnar saman (farið aft- an í lykkjurnar) prjónið brugðnu lykkjuna, prjónið 2 lykkjur saman. Endurtakið þessa úrtöku á öll- um samskeytum ermi/bolur í 4. hverri umferð samtals (10) 11 (12) sinnum, og svo í 2. hverri umferð þar til að úrtöku lýkur. ATHUGIÐ: Þegar bolurinn mælist (46) 48 (50) sm. eru miðjulykkj- urnar (9) 9 (11) að framan felldar af og prjónað fram og til baka. Gætið þess þegar byrjað er að prjóna fram og til baka að það standi þannig á munstri að úrtaka og kaðalsnúningur komi á réttunni. Fellið áfram af við hálsmál 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar (prjónið munstur og úr- töku áfram) þar til allar lykkjurnar á framstykk- inu að merkilykkjunni sitt hvorum megin eru felldar af. Fellið af 2 lykkjur hvoru megin í byrjun hvers prjóns 2 sinnum jafnframt sem að laskaúr- takan heldur áfram á ermi að aftan og á baki. Rúllukragi: Setjið lykkjurnar yfir á prjón nr. 5,5 takið upp lykkjur meðfram hálskantinum að framan u.þ.b. 6 - 7 lykkjur á hverja 5 sm. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið hringinn 2 sléttar 2 brugðnar 3 sm. skiptið yfir á prjóna nr. 6 og prjónið þar til krag- inn mælist (16) 17 (18) sm. Fellið laust af með sléttum og brugðnum lykkjum. Saumið (lykkið) saman undir hendi. Gangið vel frá öllum endum. = u.þ.b. 16 sm. { { C B A CD =3 Q_ Sl = slétt á réttu (brugðið á röngu) = brugðið á réttu (slétt á röngu) = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan, prjónið 2 sléttar, prjónið lykkjurnar af kaðlaprjóninum sléttar. = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan, prjónið 2 sléttar, prjónið lykkjurnar af kaðlaprjóninum sléttar. = Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan, prjónið 2 sléttar, prjónið fyrstu lykkjuna af kaðlaprjóninum brugðna, prjónið 2 sléttar = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón fyrir aftan, prjónið 2 sléttar, prjónið lykkjuna af kaðlaprjóninum brugðna. = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan, prjónið 1 brugðna, prjónið lykkjurnar af kaðlaprjóninum sléttar.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.