Vikan - 16.11.1999, Page 79
THE
Hér er á ferðinni mögnuð teiknimynd fyrir alla
fjölskylduna sem hefurfarið sannkallaða sigurför
um heiminn. Myndin þykir sniildarlega teiknuð og
skrifuð. Hún er spennandi og fyndin og sögu-
þráðurinn heldur óskertri athygli áhorfenda frá
upphafi til enda. I myndinni segir frá tveimur
bræðrum sem hljóta afar misjöfn örlög í vöggu-
gjöf. Annar er konungborinn og á að taka við
stjórn landsins en hinn ertalinn munaðarleysingi.
Fáir vita hins vegar hið sanna í málinu. Titillag
myndarinnar er When You Believe í flutningi
Mariu Carey og Whitney Houston og hlaut það
óskarsverðlaunin í ár sem besta kvikmyndalag
ársins.
Nú fer hver að verða síðastur í að safna saman
litskrúðugum laufblöðum en það getur verið
mjög fallegt að fylla margs konar glerílát með
þurrkuðum laufum í haustlitunum. Einnig er
bráðsniðugt að nota laufblöð til skreytinga á
gjöfum eða til jólaskreytinga. Þá má gjarnan
úða laufblöðin í gylltum tónum.
Spá Vikunna
Hrúturinn
21.mars-20. apríl
Breytingar liggja í loftinu hjá Hrútnum
þessa viku. Þeim gæti fylgt áhugavert
ferðalag en farðu rólega af stað, mundu að spenna
beltin, gefa stefnuljós tímanlega og fara ekki yfir á
rauðu. Þá getur þú rólegur fylgt þeim góðu táknum
sem þú sérð á vegi þínum um ávinning þér til
handa og glaðst með góðum vinum yfir þeim sigr-
um sem vinnast.
4Mb
Krabbinn
22. júní - 23. júlí
Vikan lofar rómantískum straumum
og það sem eftir er mánaðarins verð-
ur loftið þanið spenntum boga amors sem lætur
örvadrífurnar dynja á fólki sem á vegi þínum verð-
ur. En amor karlinn er ekki mjög hittinn þessa dag-
ana og því verður þú að vera vel á verði þá loks
örin smellur í mark og bleika skýið birtist.
Ljónið
24. júlí - 23. ágúst
Heimilið tekur stakkaskiptum hjá
Ljóninu í dag, hvort það eru jólin sem
náigast, afmæli eða einfaldlega þörf á að breyta til
skal ósagt látið, en eitthvað verulega spennandi
bíður þess að gerast. Þess vegna er best að láta
hendur standa fram úr ermum og undirbúa sem
best komandi gleði. Merkúr kemur í veg fyrir fum
og fát og þú gengur örugglega og hreinlega til
verks.
4/
Meyjan
24. ágúst - 23. september
Ögrandi áskorun mætir Meyjunni og
tækifæri sem krefst vel hugsaðra
orða og vel framsetta. Tunglið er í þriðja húsi
orkunnar sem færir þér þann kraft og það áræði
sem þú þarft á að halda til að taka áskoruninni, ná
tækifærinu í hús og slá nokkrar flugur í sama höggi
með glæsilegri ræðu.
n
Nautið
21. apríl-21.maí
Þú ert félagsþurfi þannig að vinur,
ástmaður, félagi eða samstarfsaðili er
vel þeginn þessa dagana til stuðnings þegar tölvan
frýs, skjöl týnast og þú finnur ekkert af því sem þig
vantar á netinu. Þú verður ósjálfrátt pirraður á
þessu stagli og það bitnar á samskipunum. Hring-
urinn lokast ef þú brýtur ekki málið til mergjar og
eyðir þessum innri vírus.
Tvíburinn
22. maí - 21. júní
I nóvember er Tvíburinn á flakki og
skiptir ört um samastað, hvort sem
það tengist starfi eða skemmtun, nema hvoru-
tveggja sé. Það er mikið fjör í stjörnunum og erill
tengdur þessu flakki, margt fólk og mikið að muna.
Skipulagning er því nauðsyn svo alvaran hverfi
ekki með gleðinni og eftir sitji ekki bara ánægjuleg
stund, heldur einnig gull í mund.
i mn
rmU
Vogin
24. september - 23. október
Einhvers misskilnings gætir í sam-
skiptum þínum þessa dagana og
ferðir verða til einskis. Jafnvel ferð á útsölu mis-
heppnast og það er óbragð af pítunni. En þetta lag-
ast og á fimmtudaginn skipast veður í lofti enda
allt annað hljóð komið í strokkinn og þú nærð út
flottum föstudegi með grípandi helgi.
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Það hefur veriö mikið umleikis hjá þér
að undanförnu, afmæli, viðtöl og
heimþoð. Þessi vika verður engu síðri enda ertu
með hettu á eiturbroddinum svo jákvæða orkan
streymir óhindrað. Með seinasta nýja tungli jukust
líkur þínar verulega að sigra hið ósigrandi. Þú hætt-
ir að reykja án þess að blikka auga og þarft enga
plástra eða tyggjó í þeim létta slag.
Bogamaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Stóra stundin er að renna upp og sú
stund verður þér eftirminnileg um
ókomin ár. Ef ekki fyrir þá frábærustu gjöf sem þú
gast hugsað þér, þá vegna þeirrar óvæntu heim-
sóknar sem þú fékkst og breytti svo mörgu. Það er
stundum skrýtið hvernig örlögin spinna sin vef.
Steingeitin
22. desember - 20. janúar
Vinskapur sem þú hefur stofnað til við
ákveðna persónu tekur á sig nýja
mynd og tengslin eflast. Þörf þín fyrir aukinn frí-
tíma eykst og löngun til skemmtanahalds magnast.
Láttu eftir þér að vera til, stilla strengina og leiktu
af fingrum fram lagið um vinskapinn, frelsið og fá-
nýti hlutanna eins og tölvu sem tapar minninu.
Vatnsberinn
21.janúar-19. febrúar
Þú setur spurningarmerki við að-
ferðafræði kennara þíns og villt brjóta
upp staðnað kerfi. I vinnunni ertu orðinn leiður á
sömu eilífu handtökunum og nennir varla að fara
einn hring enn. Hinn daglegi rúntur er orðinn
mollulegur og þig langar mest að gelta. Slappaðu
af, lærðu að prjóna og í lok vikunnar ertu búinn að
fitja upp á nýrri heimsmynd og það er stuð á ný.
Fiskarnir
20. febrúar - 20. mars
Fiskurinn verður í því að pakka niður
_______og taka upp úr ferðatöskum nú í nóv-
ember, enda er hann kallaður til starfa vítt og breitt
um landið. Þetta getur tengst samningum sem
þurfa mikinn undirbúning og útsjónarsemi, ná-
kvæma yfirlegu og útskýringar sem mega ekki
misskiljast og því kemur til kasta þinna.
Amtsbókasafnið á Akureyri
lllllllllll I llllllll
03 59' 75