Vikan - 02.05.2000, Qupperneq 39
Vítamín við ýmsum kvill
Vítamínþarfir líkamans eru ekki alltaf pær sömu og vissir kvillar krefjast sérstakrar fæðu
og bætiefna. Hér á eftir fer listi yfir nokkra kvilla og uppástungur um bætiefni við beím.
Gelgjubolur
Reynt hefur veriö að meðhöndla gelgjubólur á ýmsan hátt, m.a. með röntgengeislum og sýklalyfjum. Náttúruleg með-
höndlun sem er þess virði að reyna felst í því að taka eftirfarandi bætiefni:
1 fjölvítamín án steinefna á dag. 1 -2 E-vítamíntöflur á dag.
1 -2 A-vítamín, 6 daga vikunnar. 1 tafla þrisvar á dag af 50 mg af zinki.
3-6 hylki af Acidophilus.
Fótsveppur
C-vítamínduft er borið beint á sýkta svæðið. Haltu fótum þínum þurrum og
eins of og mögulegt er þar til sýkingin er gengin yfir.
Andremma
Auk þess að bursta tennurnar og nota tannþráð er ráðlegt að taka inn:
1 chlorophylltöflu eða hylki 1-3 sinnum á dag.
3 acidophylushylki 3 sinnum á dag.
50 mg af zinki 1 -3 sinnum á dag.
Frunsur
Fátt er eins ergilegt og að fá frunsu
þegar mikið stendur til. Gott ráð
til að losna við frunsuna er að
taka:
1000 mg af C-vítamíni kvölds
og morgna.
3 hylki af acidophylus
þrisvar sinnum á dag.
E-vítamínolía, sem borin
er á sýkta svæðið.
Beínbrot
Hafir þú beinbrotnað einhvern tímann, veistu hversu ergileg biðin er eftir
því að brotið grói. Gott ráð við þessar aðstæður er að auka
neyslu á kalki og D-vítamíni. 1000 mg af kalki
og 400 alþjóðaeiningar af D-vítamíni eru
góðir dagskammtar.
Eg, um mig frá mér...
Einbeittu þér af sjálfri þér í líkamsræktinni. Það skipt-
ir engu máli hversu grönn, stælt eða falleg manneskjan
við hliðina á þér er. Þú ætlar að einungis að koma þínum
eigin líkama í gottform.
Flugbreyta
Þeirsem fljúga mik-
ið á milli landa og
tímabelta kannast
við þau vandamál
sem fylgja röskun á
dægursveiflu líkamans.
Til að hjálpa líkamanum að
vinna á móti þessari röskun er gott að taka eftirfarandi bæti-
efni.
2 B-kombín einu sinni ádag.
1 E-vítamín, tvisvar á dag.
Lystarleysi
Ef þú þjáist af lystarleysi er hugsanlegt að þig vanti hvítuefni. Borðar þú
nóg af kjöti, fiski, eggjum mjólkurafurðum, sojabaunum og hnetum ? Ef ekki
ættir þú að taka eina 50 mg B-kombíntöflu með hverri máltíö.
Lystarleysi getur einnig stafað af A-vítamínskorti í fæðunni ef þú borðar lítið
eða ekkert af fiski, lifur, eggjarauðum, smjöri, rjóma og grænu og gulu græn-
meti. Þá er ráð að taka eina B12-vítamíntöflum með morgunmat og eina fjölstein
efnatöflu.
Svitaiykt
Viðvarandi svitalykt getur stafað af skorti á B12-vítamíni hjá þeim sem borða ekki ölger,
lifur, nautakjöt, egg eða nýru. Gott er að taka sömu bætiefni gegn svitalykt og við andremmu.
Ekkert að óttast
Láttu ekki hugmyndina um að hefja líkamsrækt hræða þig.
Þjálfunin þarf ekki endilega að fara fram á líkamsræktarstöö með
speglum út um allt og fólki í þröngum íþróttagöllum. Rösk og góð
ganga um hverfið þitt gerir meira gagn en þjálfun með hálfum huga
' líkamsræktarstöð.
Fjölbreytnin í fyrirrúmi
Reyndu að hafa fjölbreytnina í fyrirrúmi. Ef þú æfir á lík-
amsræktarstöð reyndu þá að fara í mismunandi tíma og
gera síðan eitthvað annað um helgar. Þá er t.d. upplagt
að fara í sund, út að skokka eða hjóla.
Þ
I
Stl
a
Þjálfun með vinum
Reyndu að stunda líkamsrækt sem þú getur
stundað með vini eða vinkonu. Hvort sem þú skokk-
ar, syndir, stundar jóga eða lyftir lóðum er auðveld-
ara að halda sér við efnið þegar þú færð hvatn-
ingu og félagsskap.
Of hátt kólesteról
Þeir sem eru með of hátt kólesteról ættu m.a. að borða ölger, rúsínur og melónur og taka 3 hylki
acidophilus þrisvar sinnum á dag og 2-3 msk af lesitíndufti út á salöt.
af
Ganga frekar en akstur
Notaðu hvert tækifæri til að fá ferskt loft
og hreyfingu. Hjólaðu og gakktu út í búð og
í vinnuna í stað þess að nota bílinn.
r
Dekurverðlaun
Gerðu ferðina í líkamsræktarstöðina
meirafreistandi með því aðtakat.d. meö
þér gott húðkrem eða ilmolíu til að nota
í gufubaði að loknum æfingum.
Vikaii 39