Vikan


Vikan - 02.05.2000, Page 44

Vikan - 02.05.2000, Page 44
 Gunnhildur Lily Magnúsdóttir þýddi. HNEYKSIANLEGT BQNORB „Bless, elskan, sagði Dirk og hallaði sér að Lauru og kyssti hana á munninn. „Viltu að ég opni bíldyrn- ar fyrir þig eins og sönnum herramanni sæmir, bætti hann við glettnislega." mmm „Láttu ekki eins og kjáni,“ sagði Laura. „Þú verður bara blaut- ur í þessu veðri,“ bætti hún við. „Ertu alveg viss um að þú getir ekki hringt í vinnuna og sagst vera veik ?“ spurði Dirk vongóður. „Eg get það ekki,“ sagði Laura mæðulega og kyssti hann á kinn- ina. „Ætlar þú að ná í mig eftir vinnu í dag ?“ spurði hún. „Auðvitað. Ég verð mættur með rauða dregilinn,“ sagði hann. Hún hló. „Allt í lagi, en slepptu dreglinum. Þessi flotti bíll þinn dugar mér alveg.“ Hún glotti. Lífið gat verið stundum verið svo undarlegt. Ef hún hefði vitað að Dirk væri búinn að eignast þenn- an svarta Jagúar þegar hún kom heim í gærkvöldi hefði hún aldrei farið inn og þá væri hún heldur ekki svona of- boðslega hamingjusöm í dag. Laura leit á myndarlegan eiginmann sinn. „Ég verð að drífa mig,“ sagði hún. Hann andvarpaði. „Getum við ekki hist í hádeginu,“ spurði hann eftirvæntingar- fullur eins og lítið barn. „Ég gæti náð í þig og við gætum farið á gistihús og svo...“ Hún dreif sig út úr bílnum og reyndi að leyna þránni sem hún fann vakna með sér. Hún varð að drífa sig áður en hann bræddi hana algjörlega. Hún spennti upp regnhlífina og sagði: „Ég er viss um að þú hefur jafnmikið að gera í dag og ég. Við sjáumst klukkan fimm.“ Hún var enn brosandi þeg- ar hún sá Claudiu standa álengdar með hneykslunar- svip. Éaura varð vandræðaleg eitt andartak en ákvað síðan að slá þessu upp í grín. „Sæl, Claudia, „ sagði hún brosandi. „Hvernig hafðir þú það um helgina? Ég skemmti mér konunglega," bætti Laura við kotroskin. Claudia missti andlitið. „En... en... var þetta ekki eiginmaður þinn þarna í bíln- um? Ég meina...“ spurði Claudia furðu lostin. „Jú þetta var Dirk,“ sagði Laura eðlilega og naut þess að sjá undrun Claudiu. „Éruð þið tekin saman aft- ur?“ spurði hún. „Já,“ sagði Laura án þess að hika. Claudia varð hörkuleg í framan. „Ég vona að þú vitir hvað þú ert að gera,“ sagði hún hæðnislega. „Ég veit að Dirk er mjög myndarlegur maður og gengur vel í starfi en ef ég væri konan hans myndi ég ekki horfa fram hjá því sem hann hefur gert. J une hefur sagt mér að hann sé með nýrri konu í hverri viku. Heldur þú virkilega að hann ætli sér að segja skilið við þetta spennandi piparsveina- líf sitt til þess að taka saman við þig? Þú heldur kannski að þú sért sannkölluð guðs gjöf í augum karlmanna en jafnvel þú gætir misst sjarmann," sagði Claudia. Laura fann hvernig henni hitnaði hamsi. „En fallegt af þér að gefa mér góð ráð í ást- armálum mínum, Claudia,“ sagði hún reiðilega. „Ég get kannski gefið þér eitt ráð líka. Hvað ég geri í mínu einkalífi er mitt mál og bara mitt. En ég get samt upp- lýst þig um það að þú veist greinilega ákaflega lítið um Dirk annað en það sem þessi heimski einkaritari hans fóðrar þig á. Þótt Dirk hafi sést með öðrum konum er ekki þar sem sagt að hann hafi sofið hjá þeim. Ég get al- veg sagt þér það að Dirk er frábær og umhyggjusamur maður, hlýr, tillitssamur og ástríðufullur. Það þekkir eng- inn þá hlið betur en ég og ef ég vil líta fram hjá því sem hann hefur gert á meðan við vorum aðskilin er það mitt mál en ekki þitt. Ég elska Dirk og hann elskar mig. Svo einfalt er það!“ Claudia leil grimmilega á Lauru og reyndi ekki að leyna reiði sinni. „Er það, já? Ef hann elskar þig sýnir hann það alla vega á mjög undar- legan hátt. Þú ert kannski ein af þessum konum sem kunna því bara vel að farið sé með þær eins og gólftuskur. Mundu bara að ég varaði þig við honum!“ sagði Claudia og gekk í burtu. Laura stóð enn í sömu spor- um þegar Hester kom hlaup- andi til hennar. „Líkt mér að gleyma regnhlífinni í dag þeg- ar það hellirignir. Þú lítur al- veg einstaklega vel út, svona eldsnemma á mánudags- morgni, Laura," sagði Hest- er glaðlega. „Það finnst mér ekki,“ sagði Laura dauflega. Hún var ennþá reið og sár út í Claudiu. „Þessi kjóll sýnir alla vega aðeins meira af þínum fallega vexti heldur en þessar form- föstu dragtir sem þú ert venjulega í,“ bætti Hester við. Laura andvarpaði og leit á frekar þröngan kjólinn. Dirk hafði gefið henni hann fyrir nokkrum árum og þegar hún byrjaði að gramsa í fatahrúg- unni á gólfinu í svefnherberg- inu í morgun hafði Dirk rétt henni þennan kjól. „Vertu í þessum kjól og í þessu innan undir,“ hafði hann sagt og rétt henni svarta samfellu með blúndum sem hann hafði einnig gefið henni fyrir löngu. Hún hafði ekki farið í hana heillengi. „Ég er nú ekki vön því að fara í svona flottum nærfötum í vinnuna,“ hafði hún sagt. Hann hafði faðmað hana og sagt: „Ég mun njóta þess að hugsa um þig í vinnunni í þessari þokkafullu samfellu.“ Auðvitað hafði hún ekki getað staðist þessa bón Dirks. En nú leið henni allt í einu frekar illa í þessum klæðnaði. Sennilega var það Claudiu að kenna. „Guð minn góður! Þú hitt- ir Dirk síðastliðinn föstudag til þess að ganga frá skilnað- inum, var það ekki?“ spurði Hester frekar hátt þegar þær gengu inn í Fenwick Fashion bygginguna. „Fyrirgefðu. Ég ætlaði ekki að segja þetta svona hátt en ég er alveg að deyja úr forvitni. Hvað gerð- ist hjá ykkur?“ bætti hún við þegar hún sá að fólk starði á þær. „Förum inn á skrifstofu þar sem þú getur sagt mér frá þessu öllu,“ sagði Hester. Laura andvarpaði. Hún óttaðist að Hester yrði jafn- hneyksluð og Claudia þótt hún myndi sennilega ekki láta það í ljós á sama hátt. En það 44 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.