Vikan - 02.05.2000, Blaðsíða 45
Miranda Lee
var síður en svo auðvelt að
komasl hjá því að segja Hest-
er frá þessu. Laura ákvað því
að það væri best að segja
Hester allan sannleikann og
þar á meðal frá ófrjósemi
Dirks.
„Þetta er nú allt saman
frekar flókið mál,“ sagði
Laura þegar hún hafði lokið
við að segja Hester alla sól-
arsöguna. „Þér finnst ég sj álf-
sagt vera rómantískur kjáni
en ég held að hann elski mig
enn.“
Hester settist við skrifborð-
ið en sagði ekki neitt. Laura
sá samt að hún var áhyggju-
full.
„Allt í lagi, segðu mér hvað
þér finnst,“ bað Laura.
„Ég held að þú gætir haft
rétt fyrir þér með það að hann
elski þig enn en ég held samt
að þú gætir lent í ógöngum í
þessu sambandi."
„Ég vissi að þú myndir
segja eitthvað svona. Ég vissi
það bara. Claudia sá mig stíga
út úr bílnum hans Dirks áðan
og hún sagði mér til synd-
anna. Hún sagði nú næstum
beint út að ég væri barnaleg
og vitlaus að trúa því að þetta
gæti gengið hjá okkur Dirk.
Sennilega hefur hún rétt fyr-
ir sér,“ sagði Laura.
„Hún hefur ekki rétt fyrir
sér ! Þú ert ein sú klárasta og
skynsamasta kona sem ég hef
hitt um ævina. Ef þú heldur
að Dirk elski þig enn hefur þú
sennilega rétt fyrir þér. En
hann getur samt sem áður
ekki gert þér barn og ég held
að hann muni ekki breyta
þeirri skoðun sinni að hann
» vilji að þið verðið elskendur
en ekki hjón. Eftir það sem þú
hefur sagt mér sýnist mér að
hann hafi nú verið dálítið
villtur áður en þið kynntust.
Kannski tókst þér að temja
hann um tíma en þegar í harð-
bakkann sló og samband ykk-
ar lenti í ógöngum flúði hann
af hólmi. Ég held að þú sért
að taka mikla áhættu með því
að taka aftur saman við
Dirk.“
„Af hverju segir þú það ?
Ef mér tókst að breyta hon-
um áður mun mér takast það
aftur,“ sagði Laura, pínulítið
sár.
„Kannski, kannski ekki. En
ég hef nú ekki mikla trú á því
að hann muni breytast til
frambúðar. Ég held að hann
hafi meint það fullkomlega
þegar hann bauð þér að ger-
ast ástkona hans. Hann þráir
þig, á því er enginn vafi, en á
mjög eigingjarnan hátt. Ef þú
aðlagar þig að þessum tak-
mörkunum hans verður þú
kannski hamingjusöm en ég
er ekki viss um að um lang-
tímasamband sé að ræða.“
Laura hlustaði á Hester.
Hún vissi að margt af því sem
Hester hafði sagt hljómaði
skynsamlega og rökrétt en
hún var ekki tilbúin að
horfast í augu við það. Dirk
elskaði hana. Hún fann það
á sér og einhver tilfinning
innra með henni sagði henni
að hún ætti að hlusta á hjarta
sitt en ekki á Claudiu eða
Hester. Það var líka hennar líf
og hamingja sem var í húfi og
því varð hún að taka ákvarð-
anir um þetta sjálf.
Hester andvarpaði. „Ég hef
Vikan
45