Vikan


Vikan - 02.05.2000, Page 51

Vikan - 02.05.2000, Page 51
Þvður sumarblær fra LeClerc hlýja :CcS: --... Fátt jafnast á við það að skapa notalegt umhverfi inni á heimilinu með fallegum húsgögnum. Furuhúsgögn eru ein- staklega vel til þess fallin. Oft skortir líka á góða vinnuað- stöðu inni á heimilinu sem allir geta notað jafnt. Gott skrifborð, tölva og ein góð hirsla er í raun allt sem þarf og fjölskyldan öll getur unnið sín verkefni þar. Það getur einnig skipt sköpum fyrir einbeitinguna og afköstin að umhverfið höfði fagurfræðilega til fólks vegna þess að því hlýlegra og notalegra sem umhverfið er því betur gengur vinnan. Börn og unglingar eru sama marki brennd og um leið og þeim hefur verið sköpuð góð aðstaða er oft með ólíkindum hversu mikið afköstin og viljinn til að vinna eykst. I Línunni fæst geysimikið úrval fallegra og vandaðra furuhúsgagna sem uppfylla fagur- fræðilegar kröfur hvers og eins og því einstak- lega hagkvæmur kostur í vinnuherbergi. ^OGENSE Grennir bæ,ir&fegrar G°ttbia,.,, . ^ ^ s,1(„ Shm Ime tra Bogense er próteinríkur en hitaeiningasnauð- ur drykkur l'yrir þá sem vilja létt- ast. Drykkurinn er fyrst og fremst hugsaður sem hjálp til að aðlagast breyttu mataræði og Bogense leggur áherslu á að hann sé engin löfralausn sem láti aukakílóin hverfa án fyrirhafnar. Hægt er að nota drykkinn á marga mismunandi vegu. Hann má nola í öll mál l.d. í staðinn fyrir mat en alls ekki lengur en þrjár vikur í einu án samráðs við lækni. Einnig er hægt að skipta úl nokkrum máltíðum fyrir drykkinn á hverjum degi eða þú færð þér hann í staðinn fyrir máltíð þegar þig langar til t.d. í staðinn fyrir morgunmal. Þannig nærðu árangri á þeim hraða sem þér hentar. Þar sem duftið er bragðlausl þá velur þú þinn uppáhalds ávaxtasafa og blandar honum við duftið þannig að drykkurinn bragðisl vel. Með drykknum fylgir ítarlegur bæklingur þar sem bent er á aðhald í mataræði og ýmsar fjölbreyttar leiðir við notkun drykksins. Franska snyrtivörufyrirtækið LeClerc hefur sent frá sér sumarlínu í einstaklega mildum og fallegum litum. Línan heitir Douceurs d’Éte sem þýðir á íslensku sunn- anþeyr eða sumarblær og bera litirnir þess merki að þeir eru að reyna að ná fram anda mjúkra, heitra vinda sumars- ins. Safírblár litur Miðjarðarhafsins og mildur rós- bleikur litur eru mest áberandi í augnskuggum og eru bornir á krítarhvítt undirlag. En einnig eru mosa- og grasgrænir augnskuggar og varagloss með nánast gegnsæum gulum blæ. Sérfræðingar hjá LeClerc segja að nýja línan marki stefnu þeirra á tuttugustu og fyrstu öld. Gráir og svartir litir aldarinnar sem leið séu kvaddir um leið og takmarkanirnar sem fólk setti sér. Nú láti fólk ekki stjórnast af öðru en því sem höfðar til þess og hjálpar því að tjá persónu sína, LeClerc veit að í fylgsnum hugans dreymdi alla um að nota fallega, skæra liti en fáir þorðu. Á nýrri öld lætur enginn bábiljur stöðva sig og Douce- urs d'Été sumarblærinn frá LeClerc er sérhannaður fyrir konur sem hafa ákveðið að hér eftir muni þær eingöngu dansa eftir eigin nótum.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.