Vikan


Vikan - 02.05.2000, Page 61

Vikan - 02.05.2000, Page 61
kvikmyndahúsi. Þau voru sam- flota öðrum bíl sem lífvörður þeirra var í. Skyndilega var bíl ekið í veg fyrir bifreið Önnu og maður stökk út úr honum. Hann reyndi án afláts að opna bflhurð- ina sem Anna sat við en hún lét sér hvergi bregða og ríghélt í handfangið svo maðurinn gat ekki opnað. Vegfarandi kom að- vífandi og misskildi ástandið. Hann hélt að bíll Önnu hefði ekið á hinn bílinn og ökumaður- inn væri bara svona reiður vegna árekstrarins og reyndi því að brjótast inn í bíl Önnu. Vegfar- andinn tók eftir konunglegu bfl- númerinu á bíl hennar og reyndi að koma hinum „reiða“ í skilning um þá óvirðingu sem hann væri að sýna konunglegu fólki. Mann- ræninginn var vopnaður og skaut lífvörð Önnu sem særðist. Sá var síðar heiðraður fyrir hugrekki vegna þessa atviks. Anna hefur frá árinu 1970 veitt forstöðu sjóði sem heitir Björg- um börnunum og hefur hún heimsótt Afríku minnst 25 sinn- um vegna starfs síns við sjóðinn. Anna er mikil hesta- og íþróttakona. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyr- ir afrek á þeim sviðum í gegnum árin. Hún keppti fyrir hönd Breta á Ólympíuleikunum árið 1976. Hún býr ásamt fjölskyldu sinni að Gatcombe Park í Gloucters- hire Andrés Viorkálfur Andrés Albert Kristján Ját- varður fæddist 19. febrúar árið 1960. Móðir hans var orðin drottning þegar hann fæddist. Það hafði ekki gerst í 103 ár að ríkjandi drottning eða konung- ur eignaðist barn. Sagt er að Andrés sé eftirlætisbarn móður sinnar enda fjörugur og skemmti- legur. Hann þykir þó hafa nokk- uð grófa kímnigáfu. Andrés kvæntist Söru Fergu- son (f. 15. október 1959) þann 23. júlí 1986 og hlaut þá nafnbótina hertoginn af York. Þau eignuðust tvær dætur sem heita Beatrice El- ísabet María f. 8. ágúst 1988 og Eugenie Viktoría Helena f. 23. mars 1990. Hjónaband Andrésar og Söru var gott og hamingjuríkt fyrstu árin en Sara þreyttist með tíman- um á löngum fjarverum eigin- manns síns. Andrés var löngum að heirnan en starf hans hjá kon- unglega sjóhernum krafðist mik- illar fjarveru. Hann var heima hjá sér í 46 daga á hverju ári. Andr- és var þyrluflugmaður og barð- ist á Falklandseyjum á sínum tíma. Ýmsum fannst vegna kon- unglegra tengsla hans að hann ætti ekki að fara en Elísabet drottning sagði að hann væri for- ingi í hernum og ætti að fara þangað eins og hinir foringjarn- ir. Sara Ferguson þótti koma með hressandi andblæ inn í konungs- fjölskylduna með fjörlegu fasi sínu en með tímanum breyttist álit manna á henni. Hún var tal- in hafa gengið of langt með at- höfnum sínum og orðum og að lokum valdið konungsfjölskyld- unni hneisu. Andrés og Sara skildu að borði og sæng í mars 1992 en löglega í maí 1996. Sara leitaði sér hugg- unar í örmum annarra manna meðan á hjónabandi þeirra stóð. f dag búa þau sitt í hvorri álm- unni í húsi Andrésar, Sunninghill Park, sem er í nágrenni Lundúna. Þau eru perluvinir og hafa sam- eiginlegt forræði yfir dætr- unum. Um tíma var slúðrað um að hún og Andrés tækju saman aftur en samkvæmt nýlegum fréttum af ástar- málum Andrésar á hann að vera yfir sig ástfanginn af ástralskri ljósku, Emmu Gibbs að nafni. Þau kynnt- ust fyrir tveimur mánuðum og hafa verið nær óaðskilj- anleg síðan að sögn slúður- blaðanna. Emma er á þrí- tugsaldri og er sögð geta hlegið að hræðilegu brönd- urunum hans. Andrés hefur alltaf ver- ið hrifinn af íþróttum og þykir nokkuð góður golfari. Leikarimi.. « latuarður Játvarður Anton Rík- harður Lúðvík fæddist þann 10. mars 1964. Hann gekk til liðs við fótgöngulið breska hersins, 22 ára að aldri, en líkaði það ekki og hætti eftir þrjá mánuði. Filippus faðir hans tók því illa og blöðin voru neikvæð í skrifum sínum um málið. Ekki skánuðu þau þegar Játvarður ákvað að gerast leikari og varð meðlimur í leikhópi Andrew Lloyd Webbers. Kvik- sögur um samkynhneigð Ját- varðs efldust við úrsögn hans úr hernum og þótt hann eignaðist vinkonu fékk hann á sig þann orðróm að sambandið væri sett á svið. Þessar sögur hafa vonandi þagnað algjörlega því þessi vin- kona varð eiginkona hans þann 19. júní í fyrra. Hún heitir Sophie Rhys-Jones, fædd 20. janúar 1965. Játvarður fékk, einn systkina sinna, leyfi drottningar til að „lifa í synd“ með elskunni sinni og þau Sophie bjuggu saman í nokkur ár áður en þau giftu sig. Þau bjuggu saman lengur en hjónaband Andrésar og Söru entist. Drottn- ing hefur líklega viljað að Ját- varður kynntist tilvonandi maka sínum vel til að koma í veg fyrir að það sama henti hann og eldri systkini hans þrjú, að hjónaband- ið endaði með skilnaði. Sophie hefur verið gagnrýnd fyrir að halda áfram að vinna við almannatengslafyrirtæki sitt eft- ir að hafa gifst Játvarði. Nú maki hún krókinn vegna konunglegra tengsla sinna. Ef Sophie hefði hætt að vinna hefði hún án efa fengið gagnrýni fyrir að láta aðra halda sér uppi. Ef Andrés og Sophie ákveða að fjölga mannkyninu verða börn þeirra jarlsbörn en fá ekki kon- unglegan titil. Ungu hjónin vildu það sjálf og Elísabet varð við bón þeirra. Vikan 61

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.