Vikan


Vikan - 11.07.2000, Side 11

Vikan - 11.07.2000, Side 11
Sara: „Ég var ánægð í vinn- unni sem ég var í sem blaðamað- ur á Morgunblaðinu og var ekk- ert að hugsa mér til hreyfings þegar ég var boðuð í viðtal. Þetta var mjög erfið ákvörðun að taka þegar mér bauðst starfið. Ég var kannski að taka meiri áhættu en Gísli þar sem hann vann á frétta- stofu Sjónvaprsins og þekkti miðilinn enn betur en ég. Þótt ég hefði gert heimildarþætti fyrir sjónvarpið og kynnst miðlinum örlftið þannig þá var laugin samt dýpri fyrir mig en fyrir Gísla. En það var svo sem engin tími til að velta þessu lengi fyrir sér, mað- ur varð bara að hugsa hratt og ákveða sig.“ Sara 09 stóra systir Gísli: „Það var á Þorláksmessu sem endanlegar viðræður áttu sér stað og við sögðum já. Fyrsti þátt- urinn fór svo í loftið þann 3. jan- úar, undirbúningstíminn var mjög stuttur. Venjulega er byrjað að undirbúa þættina miklu fyrr, til dæmis var byrjað í vor að und- irbúa þætti sem verða á vetrar- dagskrá næsta vetur.“ Sara: „Við sáum sviðsmyndina í fyrsta skipti sjálft útsendingar- kvöldið. Mér leið eins og ég hefði fengið kæruleysissprautu í fyrstu útsendingunni. Ég var svo sall- aróleg. Það var ekki fyrr en eftir þáttinn og þegar fólk fór að koma að máli við mig, sem ég áttaði mig á hversu margir voru að fylgjast með. Þá fór ég að spá f hversu vandlega væri fylgst með okkur. Við gerðum engin stór mistök fyrsta kvöldið, við litum í vitlausar myndavélar og þess háttar en það slípaðist mjög fljótt til.“ Gísli: „Ég er mjög ánægður að hafa tekið þá ákvörðun að taka við þáttastjórnuninni. Starfið er mun fjölbreyttara en hefðbund- in fréttamennska. Við höldum ritstjórnarfundi á morgnana sem fimm aðilar sitja og því fáum við Sara miklu ráðið um efnistökin. Við veljum viðmælendur sjálf og finnum efni sem við teljum að sem stærstur hluti þjóðarinnar hafi áhuga á að horfa á. Við erum himinlifandi með viðtökurnar því í fyrstu könnuninni í mars vorum við með tæplega 21% áhorf og vorum búin að auka það í 26,7 % í næstu könnun. í upphafi settum við markið á 15%, sem var sama og Dagsljós var með þegar það var á móti fréttum Stöðvar 2. Kastljósið er því á „Eg tjáði fegurðardrottningunum í þættinum að ég væri gríðarlcga mikill sinekkiiiaðiir fyrir koiiuni og sló um mig á allan liátt. Þegar ég kom hérna upp á skrifstofu að þættinum lokmmi sá ég liinsvegar að ég, þessi mikli kavaler að eigin siign, hafði verið með buxnaklaiilina galopna allan þáttinn." mjög skömmum tíma orðið vin- sælasti frétta- og dægurmálaþátt- urinn á landinu." Sara: „Þátturinn var algjörlega óskrifað blað þegar við tókum við honum og því höfum við fengið að móta hann. I rauninni er hver dagur ævintýri út af fyrir sig. Við þurfum að fylla 20-30 mínútur á dag með fersku frétta- efni og spennandi dægurmálum. Maður veit ekki að hverju mað- ur gengur þegar maður mætir í vinnuna á morgnana en hlutirn- ir ganga alltaf upp að lokum. Mér finnst algjört ævintýri að hafa fengið tækifæri til að vinna við þennan þátt. Ég hefði aldrei get- að fyrirgefið sjálfri mér að hafna þessu tækifæri þar sem þessi vinna er mjög þroskandi." Hvernig hefur ykkur gengið að fá viðmælendur til að mæta í beina útsendingu til ykkar? Gísli: „Alveg ótrúlega vel. Sjónvarp er sterkur miðill ef þú þarft að koma ákveðnum boð- skap á framfæri eða rétta þinn hlut. Þú finnur ekki sterkari mið- ill en sjónvarp þegar horft er til skammtímaáhrifa. Margir sækj- ast því eftir því að koma fram hjá okkur enda fjórðungur lands- manna að horfa og þar fær það kannski tækifæri til að koma sín- um sjónarmiðum á framfæri." Sara: „Fyrstu vikuna fengum við alla í viðtal sem við óskuð- um eftir að fá. Við bjuggumst við einhverjum afföllum þar sem fólk vissi ekkert um þennan þátt en það gekk mjög vel að fá fólk- ið til að koma. Núna erum við búin að fá meira en 350 manns í þáttinn til okkar.“ Gísli: „Við fáum auðvitað mik- ið af fólki til okkar sem er vant að koma fram, eins og til dæmis leik- ara, stjórnmálamenn og blaða- menn og þeim gengur vel að koma máli sínu á framfæri. Það er líka skemmtilegt að fá gesti sem eru kannski ekki vanir að koma fram en standa sig svo frá- bærlega vel.“ Nú er eldri systir Söru, Eva María, þekkt dagskrárgerðar- kona, sem margir kannast við úr Dagsljósinu forðum. Eru marg- ir að bera ykkur systurnar sam- an? Sara: Nei, ég hef nú lítið orðið vör við það nema þá helst að fólk ruglist á okkur og fari að tala við Evu um að það sé gaman að sjá hana aftur á skjánum. Við störf- um á ólíkum sviðum þannig að það hefur orðið lítið um saman- burð. Ég kem í Sjónvarpið úr blaðamennsku og með frétta- mannabakgrunn á meðan Eva var mikið að fjalla um dægurmál og listir og menningu í Dagsljósi og svo í Stutt í spunann. Fólki finnst það frekar skemmtileg til- viljun að við skulum vera systur að starfa í sama miðli.“ Ungfrú íslantí og opin buxnaklauf Eitthvað hlýtur að hafa farið úrskeiðis í einhverjum þessara eitt hundruð og tíu þátta? Gísli: „Ég minnist þess helst að ég var eitt sinn einn með þáttinn og var með umfjöllun um fegurð- arsamkeppni íslands og var með ungfrú ísland og Dísu í World Class í viðtali. Ég tjáði fegurðardrottningun- um í þættinum að ég væri gríð- arlega mikill smekkmaður á kon- ur og sló um mig á allan hátt. Þeg- ar ég kom hérna upp á skrifstofu að þættinum loknum sá ég hins- vegar að ég, þessi mikli kavaler að eigin sögn, hafði verið með buxnaklaufina galopna allan þáttinn." Sara: „I eitt skiptið þegar ég var að lesa kynningu á þættinum í fréttatímanum fann ég hvernig gleraugun mín toguðust upp frá augunum og voru komin upp á mitt enni. Það voru spennurnar á bak við eyrum sem ollu því að gleraugun fór á flakk." Gísli: „Við höfum byrjað að tala á sama tíma, okkur hefur svelgst á og annað í þeim dúr en sem betur fer höfum við sloppið við stórvægileg mistök.“ Sara: „Nú orðið finnum við um leið ef hitt vill koma með spurn- ingu og við erum farin að gjör- þekkja hvort annað. Það er svo merkilegt hvernig manni tekst að gleyma öllu öðru um leið og mað- ur er kominn í beina útsendingu. Þá þarf maður á öllu sínu að halda til að hafa einbeitinguna í lagi.“ Gísli: „Maður er oft alveg dauðþreyttur eftir þrjátíu mín- útna útsendingu því einbeiting- in þarf að vera svo mikil. Við höf- um engar auglýsingar eða innslög til að bjarga okkur ef eitthvað kemur upp á. Við erum gjörsam- lega berskjölduð og verðum að láta hlutina ganga upp snurðu- laust.“ Kastljósþáttunum lýkur um klukkan átta á kvöldin og því má gera ráð fyrir að vinnudagurinn geti oft orðið mjög langur hjá ykkur? Sara: „Jú, hann er það en við erum svo heppin að hafa bæði gott vinnuúthald. Við tölum okk- ur oftast saman á morgnana um hvernig við viljum hafa þáttinn. Við byrjum yfirleitt klukkan tíu, svo eru ritstjórnarfundir klukkan ellefu. Dagurinn fer svo í að und- irbúa þáttinn og að honum lokn- um horfum við oft saman á hann. Þá horfum við á hann gagnrýnum augum og skoðum hvað við get- um gert betur. Föstudagarnir eru oft aðeins þægilegri því þá er þátturinn léttari hjá okkur og við rifjum upp fréttir vikunnar, sem við erum þegar mjög vel inní. Við hittumst líka stundum og fundum um helgar. Samvinnan við frétta- stofuna hefur líka gengið mjög vel. Hún er lykilatriði því saman þurfa fréttir og Kastljósið að vera sterkt til að fólk kjósi frekar að horfa á Sjónvarpið milli 19 og 20, en á keppinautinn." Gísli: „Við erum yfirleitt ekki búin fyrr en undir níu á kvöldin en á móti kemur að við erum frjálsari fyrri hluta dagsins.“ Þetta getur varla flokkast sem fjölskylduvænn vinnutími. Hvernig eru fjölskylduaðstæður hjá ykkur? Sara: „Ég á mann sem heitir Stefán en hann var að stofna fyr- „Mér leið eins og ég hefði fengið kæriileysissprautu í fyrstu litsendiugiinni. Ég var svo sallaróleg."

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.