Vikan


Vikan - 11.07.2000, Blaðsíða 30

Vikan - 11.07.2000, Blaðsíða 30
Keri Russell hefur lilotið niikið lof fyrir leik sinn sem Felicity og iiiiiut inín Goidcn Giobc verðlaunin fyrir þaft hlutverk í fyrra. vera talsvert flókin eins og hjá Felicity því hún átti í mikilli tilfinningakreppu þegar hún hætti með kærasta sínum til margra ára, leikaranum Tony Lucca, og vildi ekki segja frá því að þau væru hætt saman. Nú er það hins vegar opinbert að hún er komin með nýjan kærasta, (sem hún vildi halda leyndum), Scott Speedman sem leikur Ben í Felicity. Keri er tuttugu og fjögurra ára gömul, fædd 23. mars 1976 í Arizona. Faðir hennar er yfirmaður hjá Nissan-bíla- fyrirtækinu í Bandaríkjunum og starfaði víðs vegar um Bandaríkin á uppvaxtarárum Keriar sem olli því að hún flutti oft á milli staða. Hún lauk menntaskóla- námi í Denver en flutti þá til Kaliforníu til að freista gæf- unnar. Vinkona Mikka músar Keri var þó alls ekki ókunn listagyðjunni áður en hún flutti til Kaliforníu því hún lagði stund á ballett og nú- tímadans á námsárum sínum í Denver þar sem hún var fyrst uppgötvuð. Hún var líka góður námsmaður og virðist lík Felicity að því leyti að hún tók námið alvarlega og var metnaðargjörn. Hún byrjaði feril sinn sem fyrirsæta fyrir vörulista þeg- ar hún var þrettán ára gömul en leiddist fyrirsetan og fór að leika í auglýsingum. Sama ár bauðst henni hlutverk í þátt- um frá Walt Disney um Mikka mús og félaga og lék hún í þeim þáttum í þrjú ár. Fyrsta kvikmyndahlutverk- ið kom þegar Keri var sextán ára þegar hún lék í Walt Dis- ney myndinni, Elskan ég stækkaði barnið, (Honey I Blew Up The Kid). Eins og áður sagði hefur Keri Russell vakið mikla athygli fyrir leik sinn í Felicity og virðast þættirnar hafa opnað henni dyr inn til fræga fólksins í Hollywood. Felicity í samnefndum þátt- um er vel gefin og alvarlega þenkjandi stúlka sem á í ýms- um tilfinningaflækjum. Keri sjálf virðist að sumu leyti ekki vera svo ólík vinkonu sinni Felicity sem hún hefur túlk- að af talsverðri dýpt. Ástamál Keriar virðast Þættirnir um skólastúlkuna Felicity sem sýndir eru á Stöð 2 hafa notið mikilla vinsælda og aflað aðalleikkonunni, (Keri Russell), frægðar og frama. í stuttu máli fjalla bættirnir um Feliclty um hóp skólakrakka í New York sem eru að hefja há- skólanám. Lífið virðist ganga að miklu leyti út á aðra hluti en nám hjá heim, hví bættirnir taka fyrst og fremst á málefnum eins og samskiptum kynjanna, ástinni, kynlífi, fjölskylduvandamálum og leit krakkanna að sjálfstæði og auknu sjálfstrausti. Felicíty er í undirbúningsnámi fyrir læknis- fræði og kom upphaflega til New York til að eltast við æskuástina sína Ben (Scott Speedman) sem hefur bví miður lítinn áhuga á henni. Sem betur fer eignast Felicity góðan kærasta og trausta vini með tímanum. 30 Vikan Stðra tækifærið Frá Walt Disney fór Keri til sápuóperukóngins Aaron Spelling (Beverly Hills 90201, Melrose Place o.fl.) þar sem hún lék í eitt ár í sápuóper- unni Malibu Shores. í millitíðinni hafði Keri leikið í fjórum lítt þekktum kvikmyndum sem sennilega hafa ekki ratað hingað upp á klakann. Stóra tækifærið kom svo, eins og áður, sagði þegar Keri hreppti hlutverk Felicity árið 1998. Felicity virðist hafa opnað dyrnar að Hollywood fyrir Keri því nú hefur hún nýlokið við að leika í róman- tískri dans- og gamanmynd sem heitir Mad about Mam- bo og er framleidd af David A. Kelly, framleiðanda Ally Mcbeal-þáttanna. Keri Russell: -Hún var skírð í höfuðið á afa sínum sem heitir Kermit, eins og froskurinn í Prúðu- leikurunum! -Hún var „rekin“ úr skát- unum fyrir að fara of mörg handahlaup. Skrýtnir þessir Ameríkanar! -Hún átti eitt sinn í ástar- sambandi við leikarann Joey Lawrance sem hætti víst með leikkonunni Jennifer Love Hewitt til að byrja með Keri. -Hún er mikill bókaormur og segist eiga sínar bestu stundir með bók í hönd. -Hún sýndi dans á heims- sýningunni (Expo) með ball- ettflokki sínum í Sydney í Ástralíu árið 1988. -Margir öfunda hana af fal- lega krullaða hárinu sem er reyndar stutt um þessar rnundir. Söngfuglarnir Britn- ey Spears og Christina Aguilera fengu sér báðar permanent til að líkjast Keri þegar þær léku allar saman í Mikka mús þáttunum árið 1988. Felicity og vinir hennar glíma við ýmis vandamál sem fylgja því aft verða fullorðin. texti: Gunnhildur Lily Magnúsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.