Vikan - 11.07.2000, Blaðsíða 36
Hjördís gefur uppskrifi að hollum og góðum grænmetisrétti
6NS „Matur sem börnin mín
- H borða með bestu lysr
lljordi.s asaint
hörnum sínuiii
Adani Sn;i' og
Jarþrúöi Osk.
Von var á Jó-
hanncsi, cigin-
inanni Hjördís
ar, í niat á
hverri stundu.
segir Hjördís og brosir. „Sem
nuddari vinn ég í mikilli ná-
lægð við fólk og því sleppi ég
að nota hvítlauk í þennan rétt
þegar ég er að fara að vinna
daginn eftir. Ég vil ekki vera
angandi af hvítlauk á meðan
ég nudda.“
Hjördís eldar þennan rétt
oft fyrir fjölskylduna og not-
ar hvítlaukinn bara um helg-
ar.
„Ég er mjög fegin að börn-
in mín vilja borða hann en
þau eru að öllu jöfnu ekkert
sérstaklega hrifin af grænmet-
isréttum,“ segir hún.
Zuccinipottréttur
að hætti Hiördfsar
1 laukur
'h blaðlaukur
6-8 kartöflui; meðalstórar
2 zuccini (kúrbítur)
3 msk. ólívuolía
2 heildósir
niðursoðnir tómatar
1 dl vatn
1 grœnmetisteningur
1 hvítlauksgeiri, pressaður
1 'h tsk. salt
1 tsk. oreganó
‘h tsk. timian
'h tsk. pipar
10 stórir sveppir
1 hvítlauksgeiri, pressaður
'h msk. smjör
100 g gráðaostur
jördís Þóra Jóns-
dóttirvinnursjálf-
stætt sem sjúkra-
nuddari. Hún býr
á Seltjarnarnesi og hefur
einnig vinnuaðstöðu þar.
„Fyrir löngu sá ég í blaði
girnilega uppskrift að græn-
metisrétti sem ég man ekki
lengur hvernig er nákvæm-
lega. Ég hef verið að breyta
henni og bæta ýmsu við og er
orðin svo ánægð með árang-
urinn að ég breyti ekki meir,“
Aðferð: Saxið lauk og skerið
blaðlauk í sneiðar. Afhýðið
kartöflur og skerið í bita.
Þvoið zuccinið og skerið það
í sentímetraþykkar sneiðar.
Hitið olíu í djúpri pönnu og
látið lauk og blaðlauk
krauma í henni í smástund.
Setjið kartöflur og zuccini út
í og bætið síðan tómötum,
vatni, teningi, hvítlauksrifi og
kryddi út í. Látið sjóða í 20-25
mínútur. Sneiðið sveppina og
látið þá krauma, á sérpönnu,
í smjörinu með seinna hvít-
lauksrifinu. Setjið þetta út í
grænmetið á djúpu pönnunni
þegar fimm mínútur eru eftir
af suðutíma. Látið blönduna
í eldfast mót og rífið gráða-
ost yfir. Bakið í ofni í 10 mín-
útur við 200 gráður.
Kryddaðar gerbollur og
hrásalat er afar gott að hafa
með.
Kryddaðar gerbollur
50 g þurrger (1 pakki)
7 dl volgt vatn
1 tsk. salt
1 msk. sykur
'h dl matarolía
u.þ.b. 16 dl hveiti
3h msk. basil
3h msk. timian
3h msk. mejram
‘h msk. grójtnalaður pipar
egg til að pensla bollurnar
Leysið þurrgerið upp í
volgu vatninu. Blandið þurr-
efnum og kryddi saman og
bætið gervökvanum út í. Lát-
ið deigið lyfta sér um stund og
hnoðið það síðan niður. Mót-
aðu bollur og láttu þær lyfta
sér. Penslaðu bollurnar með
egginu og bakaðu í ofni við
200 gráður þar til þær eru
orðnar ljósbrúnar.